Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna flutti
stutta kynningu í Skeljanesi fimmtudaginn 8. ágúst. Þar kom m.a. fram, að 18
stöðvar skiluðu inn gögnum í ár, samanborið við 19 í leikunum í fyrra (2018).
Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður ÍRA, þakkaði TF8KY og hópnum frábæra vinnu við undirbúning leikanna. Hann afhenti síðan verðlaun félagsins fyrir 3 efstu sætin:
Hrafnkell kynnti að lokum Íslandsmet í drægni á 23cm bandinu sem náðist í leikunum, en þeir TF3ML og TF8YY höfðu QSO á FM mótun á 1294,5 MHz frá fjallinu Búrfelli til Keflavíkur og var vegalengd 134 km. Í lokin ræddi Keli keppnisreglur og kynnti hugsanlegar breytingar, sem verða til þróunar fyrir næsta ár.
Alls mættu 23 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í blíðviðri í Vesturbænum.
(Niðurstöður verða birtar í heild í 4. tbl. CQ TF sem kemur út 30. september n.k.).
Afhending verðlauna í VHF/UHF leikum ÍRA 2019 fer fram í
Skeljanesi, fimmtudaginn 8. ágúst kl. 20:30.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna, mun jafnframt
fara yfir helstu niðurstöður. Hann mun m.a. skýra frá nýju Íslandsmeti í drægni
á 23 cm bandinu sem sett var í leikunum í ár.
Alls voru tæpir tveir tugir leyfishafa skráðir til þátttöku helgina 20.-21. júlí s.l. Það er jafn góð þátttaka og í fyrra (2018) – sem var besta þátttaka frá upphafi (2012).
Útileikar ársins eru u.þ.b. hálfnaðir þegar þetta er skrifað, eftir hádegi sunnudaginn 4. ágúst. Ágæt þátttaka hefur verið það sem af er – en framundan eru tvö tímabil:
Kl. 21-24 í kvöld (sunnudag); og
Kl. 08-10 í fyrramálið (mánudag).
Meðfylgjandi mynd var tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA í
morgun (sunnudag), en félagsstöðin er að sjálfsögðu QRV í leikunum.
Hafa má sambönd á 4 böndum: 160 m, 80 m, 60 m og 40 m. Sambönd á hærri tíðnum teljast eins og sambönd á 40 m. Tilgreind tímabil (að ofan) eru einungis hugsuð til að þétta virknina, en heimilt er að hafa sambönd alla verslunarmannahelgina.
TF útileikarnir verða haldnir um verslunarmannahelgina, dagana 3–5. ágúst og verða þá 40 ár síðan þeir voru fyrst haldnir.
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður leikanna, mætti í
félagsaðstöðuna í Skeljanesi fimmtudaginn 1. ágúst, flutti stutta kynningu og fór
yfir helstu atriði.
Hafa má sambönd á 4 böndum: 160 m, 80 m, 60 m og 40 m.
Sambönd á hærri tíðnum teljast eins og sambönd á 40 m. Tilgreind tímabil hér að
neðan eru einungis hugsuð til að þétta virknina, en sambönd utan þeirra skrást
jafnt til stiga. Þátttökutímabil:
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-08-01 23:37:372019-08-01 23:48:40TF ÚTILEIKARNIR 2019 ERU UM HELGINA
TF útileikarnir 2019 verða haldnir um verslunarmannahelgina, 3.-5. ágúst n.k., en 40 ár eru síðan fyrstu leikarnir voru haldnir, árið 1979.
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður leikanna, mætir í félagsaðstöðuna í Skeljanesi fimmtudaginn 1. ágúst flytur stutta kynningu og svarar spurningum.
Erindi Einars hefst stundvíslega kl. 20:30.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Veglegar kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-07-29 11:08:452019-07-29 11:10:28BREYTT DAGSETNING, VERÐUR 8. ÁGÚST
Úrslit í VHF/UHF leikunum 2019 verða kynnt í Skeljanesi, fimmtudaginn 8. ágúst, kl. 20:30, en ekki 1. ágúst eins og áður var auglýst.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna, mun fara yfir helstu niðurstöður. Hann mun m.a. skýra frá nýju Íslandsmeti í drægni á 23 cm bandinu sem sett var að þessu sinni.
Alls voru tæpir tveir tugir leyfishafa skráðir til þátttöku í leikunum sem fram fóru helgina 20.-21. júlí s.l. Það er jafn góð þátttaka og í fyrra (2018) – sem var besta þátttaka frá upphafi (2012).
Leikjasíðan verður opin til miðnættis Í kvöld (sunnudagskvöld) 28. júlí. Til þess tíma verður hægt að leiðrétta innsláttarvillur. Eftir það liggja úrslit fyrir og mun verðlaunaafhending fara fram í Skeljanesi, fimmtudaginn 1. ágúst.
Góð gjöf var móttekin fyrir hönd ÍRA í dag, laugardaginn 27. júlí 2019. Um er að ræða 11 metra háan þrístrendan loftnetsturn sem er samsettur ú 4 einingum. Turninn, sem er úr áli, er afar meðfærilegur. Hann hafði verið í geymslu utandyra í nokkurn tíma (eins og sjá má á myndunum), en auðvelt er að spúla einingarnar og þá lítur hann út eins og nýr. Boltar fylgja fyrir samsetningu og varahlutir, gerist þörf á slíku í framtíðinni.
Það er félagsmaður okkar, Jón E. Guðmundsson, TF8-Ø2Ø, sem gefur félaginu þessa gjöf sem mun koma í góð not fyrir TF3IRA.
Stjórn ÍRA þakkar Jóni E. Guðmundssyni, TF8-Ø2Ø, rausnarlega gjöf.
Ennfremur þakkir til Baldvins Þórarinssonar, TF3-Ø33, sem lagði til bifreið og kerru til flutninga turneininganna í Skeljanes.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-07-27 20:26:322019-07-27 21:30:06Góð gjöf til ÍRA móttekin 27. júlí
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 25. júlí. Hann hafði meðferðis og sýndi nýja fjarskiptabúnaðinn sem verður settur upp til að hafa sambönd frá TF3IRA í gegnum Es’Hail-2/P4A / OSCAR 100 gervitunglið.
Hann skýrði hvað væri framundan, þ.e. uppsetning diskloftnets
utanhúss og ýmsar samstillingar. Ari nefndi m.a. að það yrði hægt að sjá raunverulega
vinnutíðni beint á stjórnborði Kenwood TS-2000 stöðvarinnar sem væri mjög til
þæginda.
Ari færði okkur jafnframt glæsilega veislutertu og Nóa
konfekt sem hann bauð mönnum að njóta með kaffinu (en hann átti nýverið
stórafmæli).
Bestu þakkir til Ara fyrir frábært fimmtudagskvöld. Alls mættu 21 félagsmaður og 1 gestur í Skeljanes að þessu sinni.
Búnaðurinn fyrir nýja gervitunglið er kominn til landsins og Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri ÍRA, fékk transverter‘inn tollafgreiddan í dag (23. júlí).
Um er að ræða 20W Oscar 100 transverter frá PE1CMO, sem bæði er fyrir „up“ og „down link“ á 70 cm. Það þýðir, að transverter‘inn tengist Kenwood TS-2000 stöð félagsins beint – og þegar gengið hefur verið frá loftneti, verður TF3IRA QRV um Oscar 100. Ari segir að það muni gerast fljótlega.
Í pakkanum frá PE1CMO fylgdi LNB, sem sérstaklega var breytt til að nota með framangreindum búnaði.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætir í Skeljanes á fimmtudagskvöld (25. júlí) þar sem búnaðurn verður til sýnis.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður VHF/UHF leikanna, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 18. júlí og kynnti reglur leikanna 2019 og svaraði spurningum.
Keli byrjaði stundvíslega kl. 20:30 og sýndi okkur glærur
þar sem hann fór vel yfir helstu atriði og útskýrði m.a. reitakerfið, 6 klst.
regluna, QSO upplýsingar, stigagjöf og margfaldara. Þá fór hann yfir sérstaka
leikasíðu sem hann hefur sett upp á netinu.
Keli fékk að lokum gott klapp fyrir áhugaverða, vandaða og vel flutta kynningu. Alls mættu 20 félagsmenn og 1 gestur í Skeljanes þetta frábæra sumarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Ath. VIÐBÓT 20. JÚLÍ. QSO skráningarblað fyrir VHF/UHF leikinn. Linkurinn reyndist brotinn í appinu. Sækið á nýja slóð hér fyrir neðan:
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-07-19 00:24:142019-07-20 16:50:41VHF/UHF LEIKARNIR VERÐA 20.-21. JÚLÍ
VHF/UHF LEIKAR ÍRA 2019 – ÚRSLIT
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna flutti stutta kynningu í Skeljanesi fimmtudaginn 8. ágúst. Þar kom m.a. fram, að 18 stöðvar skiluðu inn gögnum í ár, samanborið við 19 í leikunum í fyrra (2018).
Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður ÍRA, þakkaði TF8KY og hópnum frábæra vinnu við undirbúning leikanna. Hann afhenti síðan verðlaun félagsins fyrir 3 efstu sætin:
1. sæti, Óðinn Þór Hallgrímsson, TF2MSN, 2.408 heildarstig.
2. sæti, Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, 2.160 heildarstig.
3. sæti, Ólafur B. Ólafsson, TF3ML, 1.581 heildarstig.
Hrafnkell kynnti að lokum Íslandsmet í drægni á 23cm bandinu sem náðist í leikunum, en þeir TF3ML og TF8YY höfðu QSO á FM mótun á 1294,5 MHz frá fjallinu Búrfelli til Keflavíkur og var vegalengd 134 km. Í lokin ræddi Keli keppnisreglur og kynnti hugsanlegar breytingar, sem verða til þróunar fyrir næsta ár.
Alls mættu 23 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í blíðviðri í Vesturbænum.
(Niðurstöður verða birtar í heild í 4. tbl. CQ TF sem kemur út 30. september n.k.).
ÚRSLIT Í VHF/UHF LEIKUM ÍRA 2019
Afhending verðlauna í VHF/UHF leikum ÍRA 2019 fer fram í Skeljanesi, fimmtudaginn 8. ágúst kl. 20:30.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna, mun jafnframt fara yfir helstu niðurstöður. Hann mun m.a. skýra frá nýju Íslandsmeti í drægni á 23 cm bandinu sem sett var í leikunum í ár.
Alls voru tæpir tveir tugir leyfishafa skráðir til þátttöku helgina 20.-21. júlí s.l. Það er jafn góð þátttaka og í fyrra (2018) – sem var besta þátttaka frá upphafi (2012).
Félagar, mætum tímanlega, kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
TF ÚTILEIKARNIR Í FULLUM GANGI
Útileikar ársins eru u.þ.b. hálfnaðir þegar þetta er skrifað, eftir hádegi sunnudaginn 4. ágúst. Ágæt þátttaka hefur verið það sem af er – en framundan eru tvö tímabil:
Meðfylgjandi mynd var tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA í morgun (sunnudag), en félagsstöðin er að sjálfsögðu QRV í leikunum.
Hafa má sambönd á 4 böndum: 160 m, 80 m, 60 m og 40 m. Sambönd á hærri tíðnum teljast eins og sambönd á 40 m. Tilgreind tímabil (að ofan) eru einungis hugsuð til að þétta virknina, en heimilt er að hafa sambönd alla verslunarmannahelgina.
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt.
Stjórn ÍRA.
TF ÚTILEIKARNIR 2019 ERU UM HELGINA
TF útileikarnir verða haldnir um verslunarmannahelgina, dagana 3–5. ágúst og verða þá 40 ár síðan þeir voru fyrst haldnir.
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður leikanna, mætti í félagsaðstöðuna í Skeljanesi fimmtudaginn 1. ágúst, flutti stutta kynningu og fór yfir helstu atriði.
Hafa má sambönd á 4 böndum: 160 m, 80 m, 60 m og 40 m. Sambönd á hærri tíðnum teljast eins og sambönd á 40 m. Tilgreind tímabil hér að neðan eru einungis hugsuð til að þétta virknina, en sambönd utan þeirra skrást jafnt til stiga. Þátttökutímabil:
Dagbækur má senda í tölvupósti eða skila með því að fylla út eyðublað á netinu, vefslóð er: http://eik.klaki.net/cgi-bin/utileikar
Frestur til að ganga frá dagbókum rennur út á miðnætti næsta mánudag eftir verslunarmannahelgi. Nánari upplýsingar í 3. tbl. CQ TF 2019, bls. 37-38. Vefslóð: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/06/cqtf_33arg_2019_03tbl.pdf
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til þátttöku og óskar þeim góðs gengis.
TF útileikarnir, kynning TF3EK 1. ágúst
TF útileikarnir 2019 verða haldnir um verslunarmannahelgina, 3.-5. ágúst n.k., en 40 ár eru síðan fyrstu leikarnir voru haldnir, árið 1979.
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður leikanna, mætir í félagsaðstöðuna í Skeljanesi fimmtudaginn 1. ágúst flytur stutta kynningu og svarar spurningum.
Erindi Einars hefst stundvíslega kl. 20:30.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Veglegar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
BREYTT DAGSETNING, VERÐUR 8. ÁGÚST
Áður auglýst úrslit og verðlaunaafhending í VHF/UHF leikunum 2019 verður fimmtudaginn 8. ágúst en ekki fimmtudag 1. ágúst.
Beðist er velvirðingar á þessari breytingu.
Stjórn ÍRA.
8. ÁGÚST, ÚRSLIT OG AFHENDING VERÐLAUNA
Úrslit í VHF/UHF leikunum 2019 verða kynnt í Skeljanesi, fimmtudaginn 8. ágúst, kl. 20:30, en ekki 1. ágúst eins og áður var auglýst.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna, mun fara yfir helstu niðurstöður. Hann mun m.a. skýra frá nýju Íslandsmeti í drægni á 23 cm bandinu sem sett var að þessu sinni.
Alls voru tæpir tveir tugir leyfishafa skráðir til þátttöku í leikunum sem fram fóru helgina 20.-21. júlí s.l. Það er jafn góð þátttaka og í fyrra (2018) – sem var besta þátttaka frá upphafi (2012).
Leikjasíðan verður opin til miðnættis Í kvöld (sunnudagskvöld) 28. júlí. Til þess tíma verður hægt að leiðrétta innsláttarvillur. Eftir það liggja úrslit fyrir og mun verðlaunaafhending fara fram í Skeljanesi, fimmtudaginn 1. ágúst.
Félagar, mætum tímanlega, veglegar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
Góð gjöf til ÍRA móttekin 27. júlí
Góð gjöf var móttekin fyrir hönd ÍRA í dag, laugardaginn 27. júlí 2019. Um er að ræða 11 metra háan þrístrendan loftnetsturn sem er samsettur ú 4 einingum. Turninn, sem er úr áli, er afar meðfærilegur. Hann hafði verið í geymslu utandyra í nokkurn tíma (eins og sjá má á myndunum), en auðvelt er að spúla einingarnar og þá lítur hann út eins og nýr. Boltar fylgja fyrir samsetningu og varahlutir, gerist þörf á slíku í framtíðinni.
Það er félagsmaður okkar, Jón E. Guðmundsson, TF8-Ø2Ø, sem gefur félaginu þessa gjöf sem mun koma í góð not fyrir TF3IRA.
Stjórn ÍRA þakkar Jóni E. Guðmundssyni, TF8-Ø2Ø, rausnarlega gjöf.
Ennfremur þakkir til Baldvins Þórarinssonar, TF3-Ø33, sem lagði til bifreið og kerru til flutninga turneininganna í Skeljanes.
FLOTTUR FIMMTUDAGUR Í SKELJANESI
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 25. júlí. Hann hafði meðferðis og sýndi nýja fjarskiptabúnaðinn sem verður settur upp til að hafa sambönd frá TF3IRA í gegnum Es’Hail-2/P4A / OSCAR 100 gervitunglið.
Hann skýrði hvað væri framundan, þ.e. uppsetning diskloftnets utanhúss og ýmsar samstillingar. Ari nefndi m.a. að það yrði hægt að sjá raunverulega vinnutíðni beint á stjórnborði Kenwood TS-2000 stöðvarinnar sem væri mjög til þæginda.
Ari færði okkur jafnframt glæsilega veislutertu og Nóa konfekt sem hann bauð mönnum að njóta með kaffinu (en hann átti nýverið stórafmæli).
Bestu þakkir til Ara fyrir frábært fimmtudagskvöld. Alls mættu 21 félagsmaður og 1 gestur í Skeljanes að þessu sinni.
Es’hail-2/P4A / OSCAR 100 búnaðurinn
Búnaðurinn fyrir nýja gervitunglið er kominn til landsins og Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri ÍRA, fékk transverter‘inn tollafgreiddan í dag (23. júlí).
Um er að ræða 20W Oscar 100 transverter frá PE1CMO, sem bæði er fyrir „up“ og „down link“ á 70 cm. Það þýðir, að transverter‘inn tengist Kenwood TS-2000 stöð félagsins beint – og þegar gengið hefur verið frá loftneti, verður TF3IRA QRV um Oscar 100. Ari segir að það muni gerast fljótlega.
Í pakkanum frá PE1CMO fylgdi LNB, sem sérstaklega var breytt til að nota með framangreindum búnaði.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætir í Skeljanes á fimmtudagskvöld (25. júlí) þar sem búnaðurn verður til sýnis.
Stjórn ÍRA.
FIMMTUDAG 25. JÚLÍ, OPIÐ HÚS Í SKELJANESI
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 25. júlí.
Opin málaskrá, nýjustu tímaritin og góður félagsskapur. Kaffi, te, konfekt og meðlæti.
Stjórn ÍRA.
VHF/UHF LEIKARNIR VERÐA 20.-21. JÚLÍ
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður VHF/UHF leikanna, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 18. júlí og kynnti reglur leikanna 2019 og svaraði spurningum.
Keli byrjaði stundvíslega kl. 20:30 og sýndi okkur glærur þar sem hann fór vel yfir helstu atriði og útskýrði m.a. reitakerfið, 6 klst. regluna, QSO upplýsingar, stigagjöf og margfaldara. Þá fór hann yfir sérstaka leikasíðu sem hann hefur sett upp á netinu.
Allar upplýsingar eru á þessari vefslóð:
http://vhfleikar.ira.is/2019/?fbclid=IwAR3oXOf20J82wOJPQkljAq27RuZozuPBfhvyAnB7suRYILuERX40d5Ty20w
Keli fékk að lokum gott klapp fyrir áhugaverða, vandaða og vel flutta kynningu. Alls mættu 20 félagsmenn og 1 gestur í Skeljanes þetta frábæra sumarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Ath. VIÐBÓT 20. JÚLÍ.
QSO skráningarblað fyrir VHF/UHF leikinn.
Linkurinn reyndist brotinn í appinu. Sækið á nýja slóð hér fyrir neðan:
QsoSkraning.pdfPDF
73 de TF8KY.