Andrés Þórarinsson, TF1AM mætir í Skeljanes fimmtudagskvöldið 1. febrúar með erindið: „Heppilegar tíðnir á stuttbylgju til innanlandsfjarskipta“.
Viðamiklar rannsóknir hafa verið gerðar um allan heim um langt árabil á bestu tíðnum til fjarskipta, allt eftir vegalengd, tíma dag, árstíðum og fjölda sólbletta. Ein slík rannsóknarstöð var lengi staðsett í Gufunesi. Sagt verður m.a. frá niðurstöðunum og útskýrt hvernig þær geta hjálpað íslenskum radíóamatörum að hafa samband hvert á land sem er á hvaða tíma dags sem er.
Félagsmenn eru hvattir til að láta þetta efni ekki framhjá sér fara.
QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og raða kortum í hólfin. Kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-27 20:24:212024-02-01 19:51:06ANDRÉS TF1AM Í SKELJANESI 1. FEBRÚAR
Líkt og skýrt var frá á þessum vettvangi 7. desember s.l., náði Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A þeim árangri að uppfylla kröfur fyrir útgáfu fyrstU DXCC Satellite viðurkenningarinnar á Íslandi.
Viðurkenningarskjalið sjálft hefur nú borist til Ara. Það var formlega gefið út 30. október, nr. 485 og er undirritað af forseta ARRL, Richard A. Roderick, K5UR.
Þetta er 14. DXCC viðurkenning Ara sem hafði þessar fyrir: DXCC Mixed, Phone, RTTY/Digital, 80M, 40M, 30M, 20M, 17M, 15M, 12M, 10M, DXCC Challenge og 5BDXCC.
Þess má geta, að aðeins 10 leyfishafar á Norðurlöndunum eru handhafar DXCC Satellite viðurkenningarinnar: Í Svíþjóð (6), Finnlandi (2), Noregi (1) og nú á Íslandi (1).
Innilegar hamingjuóskir til Ara með þennan frábæra árangur.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi var opin fimmtudaginn 25. janúar. Góðar umræður, menn hressir og TF3IRA var í loftinu á 14 MHz á morsi.
Sérstakur gestur okkar var Sergii Matlash, US5LB frá Úkraínu. Serge hefur verið búsettur á Suðurnesjum um nokkurra mánaða skeið. Hann er mikill áhugamaður um mors og færði félaginu að gjöf tvo morslykla. Annar er borðlykill og hinn er lykill af burðarstöð. Þetta eru lyklar í fullkomnu lagi sem gefa mjúka og örugga lyklun. Þakkir til Serge fyrir góða gjöf. Lyklunum verður fundinn staður í fjarskiptaherbergi TF3IRA.
Alls mættu 11 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld þrátt fyrir erfiða vetrarfærð í höfuðborginni.
Stjórn ÍRA.
Björgvin Víglundsson TF3BOI og Andrés Þórarinsson TF1AM.Hrafnkell Sigurðsson TF8KY og Sergii Matlash US5LB.Hrafnkell Sigurðsson TF8KY, Sergii Matlash US5LB og Mathías Hagvaag TF3MH.Morslyklarnir tveir. Sá minni er gerður til að festa á burðarstöð.QSL kort US5LB. Þakkir til Georgs Kulp TF3GZ fyrir ljósmyndir.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-26 09:23:422024-01-26 09:25:35OPIÐ VAR Í SKELJANESI 25. JANÚAR
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-23 13:22:272024-01-23 13:22:29OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 25. JANÚAR
CQ WORLD-WIDE CW 160 METRA KEPPNIN 2024. Hefst kl. 22:00 á föstudag 26. janúar og lýkur kl. 22:00 á sunndag 28. janúar. Keppnin fer fram á CW (morsi) á 160 metrum. Skilaboð TF stöðva: RST + CQ svæði. Skilaboð W/VE stöðva: RST + ríki í Bandaríkjunum / fylki í Kanada. https://www.cq160.com/rules.htm
REF KEPPNIN 2024. Hefst kl. 12:00 á laugardag 27. janúar og lýkur kl. 12:00 á sunnudag 28. janúar. Keppnin fer fram á CW (morsi) á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + raðnúmer. Microsoft Word – reg_cdfhf_dx.docx (r-e-f.org)
BARTG RTTY SPRINT KEPPNIN 2024. Hefst kl. 06:00 á laugardag 27. janúar og lýkur kl. 18:00 á sunnudag 28. janúar. Keppnin fer fram á RTTY (fjarritun) á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: Raðnúmer. http://bartg.org.uk/wp/bartg-sprint-contest/
Myndin er af Yaesu FTdx5000MP sendi-/móttökustöðinni sem kom á markað árið 2009 og var mjög vinsæl um árabil hjá radíóamatörum til nota í alþjóðlegum keppnum.Hún er sýnd hér með SM-5000 “Station Monitor” sem var seldur sem aukahlutur.
Brynjólfur Jónsson, TF5B hafði alls 29.628 QSO á árinu 2023. Fjöldi DXCC eininga varð 147. Þetta er í annað skiptið sem hann er við eða yfir 30 þúsund QSO‘a múrinn. Samböndin voru öll höfð á FT8 samskiptareglum undir MFSK mótun. Til samanburðar, QSO TF5B á ári sl. fjögur ár:
2023: Alls 29.628 QSO 2022: Alls 22.558 QSO. 2021: Alls 25.237 QSO. 2020: Alls 30.103 QSO.
Þess má geta að Billi er með staðfestar alls 297 DXCC einingar og er handhafi 11 DXCC viðurkenninga: Mixed, Phone, RTTY/Digital, 40M, 30M, 20M, 17M, 15M, 12M, 10M og DXCC Challenge.
Hamingjuóskir til Billa með frábæran DX árangur á nýliðnu ári!
Stjórn ÍRA
Loftnet TF5B á Akureyri. Fritzel Fritzel FB-33, 3 staka Yagi loftnet fyrir 14, 21 og 28 MHz; Fritzel tvípóll fyrir 10, 18 og 24 MHz; Hamstick tvípóll (láréttur) fyrir 3.5 MHz; Hamstick tvípóll (láréttur) fyrir 1.8 MHz og Diamond X-30 stangarloftnet fyrir 144/430 MHz. Ljósmynd: TF5B.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-18 12:39:152024-01-19 15:36:09TF5B MEÐ NÆR 30.000 QSO 2023
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-15 15:39:222024-01-15 15:39:23OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 18. JANÚAR
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 6.-12. janúar 2024.
Alls fengu 15 TF kallmerki skráningu. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8), en einnig á morsi (CW), fjarritun (RTTY) og tali (SSB). Bönd: 10, 12, 15, 17, 20, 40, 80 og 160 metrar.
Kallmerki fær skráningu þegar leyfishafi [eða hlustari] hefur haft samband við [eða heyrt í] TF kallmerki. Svokallað „self spotting“ er ekki tekið með. Upplýsingarnar eru fengnar á http://new.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar.
Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
TF1A FT8 á 10 metrum. TF1EIN FT8 á 12 og 60 metrum. TF1EM FT8 á 10, 12 og 60 metrum. TF1OL FT8 á 10 og 12 metrum. TF2CT FT8 á 40 og 160 metrum. TF2MSN FT8 á 10, 17 og 160 metrum og SSB á 10 metrum. TF3AO RTTY á 10, 20 og 40 metrum. TF3DC CW á 10, 12 og 30 metrum. TF3EK/P FT8 á 10 metrum. TF3PKN FT8 á 10 metrum. TF3PPN RTTY á 15 metrum. TF3VE FT8 á 10, 12 og 60 metrum. TF3VG FT8 á 40 og 60 metrum. TF5B FT8 á 10, 10 og 80 metrum. TF8SM FT4 og FT8 á á 10 metrum.
Jón Gunnar Harðarson TF3PPN var virkur á RTTY vikuna 5.-12. janúar. Myndin sýnir glæsilega fjarskiptaaðstöðu hans heima í Kópavogi. Ljósmynd: TF3PPN.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-13 13:35:412024-01-13 13:35:42Vísbending um virkni
YB DX KEPPNIN stendur yfir laugardaginn 13. janúar. Hún hefst kl. 00:00 og lýkur kl. 23:59. Keppnin fer fram á SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + raðnúmer. http://ybdxcontest.com/
SKCC Weekend Sprintathon KEPPNIN hefst kl. 12:00 á laugardag 13. janúar og lýkur kl. 24:00 á sunnudag 14. janúar. Keppnin fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + NAFN + NONE („None“ ef menn eru ekki SKCC félagar). https://www.skccgroup.com/operating_activities/weekend_sprintathon/
NORTH AMERICAN QSO PARTY KEPPNIN hefst kl. 18:00 á laugardag 13. janúar og lýkur kl. 05:59 á sunnudag 14. janúar. Keppnin fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + NAFN. https://www.ncjweb.com/NAQP-Rules.pdf
NRAU BALTIC KEPPNIN, SSB stendur yfir frá kl. 06.30-08:30 á laugardag 13. janúar. Keppnin fer fram á SSB á 80 og 40 metrum. Skilaboð TF stöðva: RS + raðnúmer + TF. https://www.nraubaltic.eu/
NRAU BALTIC KEPPNIN, CW stendur yfir frá kl. 09:00-11:00 laugardag 13. janúar. Keppnin fer fram á CW á 80 og 40 metrum. Skilaboð TF stöðva: RST + raðnúmer + TF. https://www.nraubaltic.eu/
Þann 14. janúar hefur Margrét Þórhildur Danadrottning verið á veldisstóli í 52 ár. Hún mun þá formlega stíga til hliðar og sama dag og verður Friðrik krónprins krýndur konungur Danaveldis.
Danskir radíóamatörar hafa ákveðið að halda upp á viðburðinn og setja sérstakt kallmerki í loftið, OZ24FX til heiðurs Friðrik X.
Kallmerkið verður sett í loftið 14. janúar kl. 00:01 og verður virkt til 21. janúar kl. 23:59. Til greina kemur, að viðburðurinn verði framlengdur út janúarmánuð.
Kallmerkið verður í loftinu á 160-10 metrum. Miðað er við sambönd á CW, SSB og DIGI mótunum. Radíóamatörar í Evrópu (þ.á.m. á Íslandi) geta sótt um glæsileg viðurkenningarskjöl nái þeir samböndum. Í boði eru: GULL (QSO á 6 böndum); SILFUR (QSO á 4 böndum) og BRONS (QSO á 3 böndum).
QSL: OZ1ACB. Upplýsingar: oz1acb@wiland.dk
Með ósk um gott gengi.
Stjórn ÍRA.
Margrét Þórhildur drottning og Friðrik krónprins ásamt fleirum í höllinni 4. janúar. Ljósmynd: Keld Navntoft, Kongehuset
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-01-08 21:11:062024-01-08 21:17:54ENN TEKIÐ Á MÓTI EFNI Í CQ TF
ANDRÉS TF1AM Í SKELJANESI 1. FEBRÚAR
Andrés Þórarinsson, TF1AM mætir í Skeljanes fimmtudagskvöldið 1. febrúar með erindið: „Heppilegar tíðnir á stuttbylgju til innanlandsfjarskipta“.
Viðamiklar rannsóknir hafa verið gerðar um allan heim um langt árabil á bestu tíðnum til fjarskipta, allt eftir vegalengd, tíma dag, árstíðum og fjölda sólbletta. Ein slík rannsóknarstöð var lengi staðsett í Gufunesi. Sagt verður m.a. frá niðurstöðunum og útskýrt hvernig þær geta hjálpað íslenskum radíóamatörum að hafa samband hvert á land sem er á hvaða tíma dags sem er.
Félagsmenn eru hvattir til að láta þetta efni ekki framhjá sér fara.
QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og raða kortum í hólfin. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
.
FYRSTA DXCC SATELLITE VIÐURKENNINGIN
Líkt og skýrt var frá á þessum vettvangi 7. desember s.l., náði Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A þeim árangri að uppfylla kröfur fyrir útgáfu fyrstU DXCC Satellite viðurkenningarinnar á Íslandi.
Viðurkenningarskjalið sjálft hefur nú borist til Ara. Það var formlega gefið út 30. október, nr. 485 og er undirritað af forseta ARRL, Richard A. Roderick, K5UR.
Þetta er 14. DXCC viðurkenning Ara sem hafði þessar fyrir: DXCC Mixed, Phone, RTTY/Digital, 80M, 40M, 30M, 20M, 17M, 15M, 12M, 10M, DXCC Challenge og 5BDXCC.
Þess má geta, að aðeins 10 leyfishafar á Norðurlöndunum eru handhafar DXCC Satellite viðurkenningarinnar: Í Svíþjóð (6), Finnlandi (2), Noregi (1) og nú á Íslandi (1).
Innilegar hamingjuóskir til Ara með þennan frábæra árangur.
Stjórn ÍRA.
OPIÐ VAR Í SKELJANESI 25. JANÚAR
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi var opin fimmtudaginn 25. janúar. Góðar umræður, menn hressir og TF3IRA var í loftinu á 14 MHz á morsi.
Sérstakur gestur okkar var Sergii Matlash, US5LB frá Úkraínu. Serge hefur verið búsettur á Suðurnesjum um nokkurra mánaða skeið. Hann er mikill áhugamaður um mors og færði félaginu að gjöf tvo morslykla. Annar er borðlykill og hinn er lykill af burðarstöð. Þetta eru lyklar í fullkomnu lagi sem gefa mjúka og örugga lyklun. Þakkir til Serge fyrir góða gjöf. Lyklunum verður fundinn staður í fjarskiptaherbergi TF3IRA.
Alls mættu 11 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld þrátt fyrir erfiða vetrarfærð í höfuðborginni.
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 25. JANÚAR
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 25. janúar fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin.
Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið, flokka kortasendingar og raða í hólfin. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR 26.-28. JANÚAR.
CQ WORLD-WIDE CW 160 METRA KEPPNIN 2024.
Hefst kl. 22:00 á föstudag 26. janúar og lýkur kl. 22:00 á sunndag 28. janúar.
Keppnin fer fram á CW (morsi) á 160 metrum.
Skilaboð TF stöðva: RST + CQ svæði.
Skilaboð W/VE stöðva: RST + ríki í Bandaríkjunum / fylki í Kanada.
https://www.cq160.com/rules.htm
REF KEPPNIN 2024.
Hefst kl. 12:00 á laugardag 27. janúar og lýkur kl. 12:00 á sunnudag 28. janúar.
Keppnin fer fram á CW (morsi) á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
Microsoft Word – reg_cdfhf_dx.docx (r-e-f.org)
BARTG RTTY SPRINT KEPPNIN 2024.
Hefst kl. 06:00 á laugardag 27. janúar og lýkur kl. 18:00 á sunnudag 28. janúar.
Keppnin fer fram á RTTY (fjarritun) á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: Raðnúmer.
http://bartg.org.uk/wp/bartg-sprint-contest/
UBA DX SSB KEPPNIN 2024.
Hefst kl. 13:00 á laugardag 27. janúar og lýkur kl. 13:00 á sunnudag 28. janúar.
Skilaboð: RS + raðnúmer.
https://www.uba.be/en/hf/contest-rules/uba-dx-contest
Með ósk um gott gengi.
Stjórn ÍRA.
.
TF5B MEÐ NÆR 30.000 QSO 2023
Brynjólfur Jónsson, TF5B hafði alls 29.628 QSO á árinu 2023. Fjöldi DXCC eininga varð 147. Þetta er í annað skiptið sem hann er við eða yfir 30 þúsund QSO‘a múrinn. Samböndin voru öll höfð á FT8 samskiptareglum undir MFSK mótun. Til samanburðar, QSO TF5B á ári sl. fjögur ár:
2023: Alls 29.628 QSO
2022: Alls 22.558 QSO.
2021: Alls 25.237 QSO.
2020: Alls 30.103 QSO.
Þess má geta að Billi er með staðfestar alls 297 DXCC einingar og er handhafi 11 DXCC viðurkenninga: Mixed, Phone, RTTY/Digital, 40M, 30M, 20M, 17M, 15M, 12M, 10M og DXCC Challenge.
Hamingjuóskir til Billa með frábæran DX árangur á nýliðnu ári!
Stjórn ÍRA
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 18. JANÚAR
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 18. janúar fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin.
QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið, flokka kortasendingar og raða í hólfin. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
Vísbending um virkni
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 6.-12. janúar 2024.
Alls fengu 15 TF kallmerki skráningu. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8), en einnig á morsi (CW), fjarritun (RTTY) og tali (SSB). Bönd: 10, 12, 15, 17, 20, 40, 80 og 160 metrar.
Kallmerki fær skráningu þegar leyfishafi [eða hlustari] hefur haft samband við [eða heyrt í] TF kallmerki. Svokallað „self spotting“ er ekki tekið með. Upplýsingarnar eru fengnar á http://new.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar.
Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
TF1A FT8 á 10 metrum.
TF1EIN FT8 á 12 og 60 metrum.
TF1EM FT8 á 10, 12 og 60 metrum.
TF1OL FT8 á 10 og 12 metrum.
TF2CT FT8 á 40 og 160 metrum.
TF2MSN FT8 á 10, 17 og 160 metrum og SSB á 10 metrum.
TF3AO RTTY á 10, 20 og 40 metrum.
TF3DC CW á 10, 12 og 30 metrum.
TF3EK/P FT8 á 10 metrum.
TF3PKN FT8 á 10 metrum.
TF3PPN RTTY á 15 metrum.
TF3VE FT8 á 10, 12 og 60 metrum.
TF3VG FT8 á 40 og 60 metrum.
TF5B FT8 á 10, 10 og 80 metrum.
TF8SM FT4 og FT8 á á 10 metrum.
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR 13.-14. JANÚAR.
YB DX KEPPNIN stendur yfir laugardaginn 13. janúar. Hún hefst kl. 00:00 og lýkur kl. 23:59. Keppnin fer fram á SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
http://ybdxcontest.com/
SKCC Weekend Sprintathon KEPPNIN hefst kl. 12:00 á laugardag 13. janúar og lýkur kl. 24:00 á sunnudag 14. janúar.
Keppnin fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + NAFN + NONE („None“ ef menn eru ekki SKCC félagar).
https://www.skccgroup.com/operating_activities/weekend_sprintathon/
UBA PSK63 PREFEX KEPPNIN hefst kl. 12:00 á laugardag 13. janúar og lýkur kl. 12:00 á sunndag 14. janúar. Keppnin fer fram á BPSK63 á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RSQ + raðnúmer.
https://www.uba.be/en/hf/contest-rules/uba-psk63-prefix-contest
NORTH AMERICAN QSO PARTY KEPPNIN hefst kl. 18:00 á laugardag 13. janúar og lýkur kl. 05:59 á sunnudag 14. janúar. Keppnin fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + NAFN.
https://www.ncjweb.com/NAQP-Rules.pdf
NRAU BALTIC KEPPNIN, SSB stendur yfir frá kl. 06.30-08:30 á laugardag 13. janúar. Keppnin fer fram á SSB á 80 og 40 metrum.
Skilaboð TF stöðva: RS + raðnúmer + TF.
https://www.nraubaltic.eu/
NRAU BALTIC KEPPNIN, CW stendur yfir frá kl. 09:00-11:00 laugardag 13. janúar. Keppnin fer fram á CW á 80 og 40 metrum.
Skilaboð TF stöðva: RST + raðnúmer + TF.
https://www.nraubaltic.eu/
Með ósk um gott gengi.
Stjórn ÍRA.
.
OZ24FX, SÉRSTAKT KALLMERKI Í JANÚAR.
Þann 14. janúar hefur Margrét Þórhildur Danadrottning verið á veldisstóli í 52 ár. Hún mun þá formlega stíga til hliðar og sama dag og verður Friðrik krónprins krýndur konungur Danaveldis.
Danskir radíóamatörar hafa ákveðið að halda upp á viðburðinn og setja sérstakt kallmerki í loftið, OZ24FX til heiðurs Friðrik X.
Kallmerkið verður sett í loftið 14. janúar kl. 00:01 og verður virkt til 21. janúar kl. 23:59. Til greina kemur, að viðburðurinn verði framlengdur út janúarmánuð.
Kallmerkið verður í loftinu á 160-10 metrum. Miðað er við sambönd á CW, SSB og DIGI mótunum. Radíóamatörar í Evrópu (þ.á.m. á Íslandi) geta sótt um glæsileg viðurkenningarskjöl nái þeir samböndum. Í boði eru: GULL (QSO á 6 böndum); SILFUR (QSO á 4 böndum) og BRONS (QSO á 3 böndum).
QSL: OZ1ACB. Upplýsingar: oz1acb@wiland.dk
Með ósk um gott gengi.
Stjórn ÍRA.
ENN TEKIÐ Á MÓTI EFNI Í CQ TF
Ritstjóri vekur athygli á að enn er hægt að senda efni í næsta tölublað CQ TF, eða fram á laugardagskvöld 14. janúar.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið, s.s. frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Athygli er vakin á að félagsmönnum er boðið að auglýsa frítt í blaðinu notuð fjarskiptatæki og/eða búnað sem tilheyrir áhugamálinu.
Netfang ritstjóra: saemi@hi.is
Fyrirfram þakkir og 73,
Sæmi, TF3UA
ritstjóri CQ TF.
BJÖRGÚLFUR BACHMANN, TF3EL ER LÁTINN.
Björgúlfur Bachmann, TF3EL hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Samkvæmt upplýsingum í Mbl. lést hann á Hjúkrunarheimilinu Eir þann 23. desember s.l. og hefur útför hans farið fram í kyrrþey.
Björgúlfur var á 94. aldursári og handhafi leyfisbréfs radíóamatöra nr. 72.
Um leið og við minnumst Björgúlfs með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar ÍRA,
Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður