Á
stjórnafundi í félaginu þann 16. janúar var Elín Sigurðardóttir, TF2EQ skipuð í
embætti ungmennafulltrúa ÍRA. Elín fluttist erlendis nú um áramótin, en hefur
tekið að sér að móta nýtt embætti ungmennafulltrúa sem er verðmætt verkefni til
framtíðar.
Elín mun
m.a. annast samskipti við Lisu Leenders, PA2LS sem er Youth Coordinator í IARU
Svæði 1.
Stjórn félagsins býður hana velkomna til starfa væntir mikils af störfum hennar.
Fyrir
skömmu var rætt á Facebook um þörf á vettvangi þar sem menn geta sett inn
auglýsingar um amatörstöðvar og/eða búnað til sölu – eða óskað eftir að kaupa
slíkt dót.
Nú hefur
Ágúst, TF3OM, sett upp Facebook síðu
fyrir okkur sem kemur til móts við þessar þarfir. Nýja síðan heitir „Flóamarkaður
Radíóamatöra“.
Ágúst
skrifar eftirfarandi formála með síðunni:
Þetta er
Flóamarkaður Radíóamatöra þar sem hægt er að birta auglýsingar er varða
áhugamálið.
Vinsamlegast
eyðið auglýsingum eða merkið með “Selt” eftir að viðskipti hafa farið
fram.
Þessi
vefur er ekki ætlaður fyrir hljómflutningstæki, sjónvörp og þess háttar. Hann
er ekki ætlaður fyrir almennt spjall, til þess eru aðrir vefir.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-01-11 20:47:022019-01-11 20:49:57Opið fyrir innsendingu efnis til 13. janúar
Í samræmi við starfsáætlun stjórnar ÍRA og að höfðu samráði
við Prófnefnd og Umsjónarmann námskeiða, hefur verið ákveðið að kanna áhuga á
þátttöku í námskeiði til amatörprófs.
Fyrirhugað er að námskeiðið hefjist 12. febrúar n.k. og ljúki með prófi Póst- og fjarskiptastofnunar 11. maí. Kennt verður tvo daga í viku í húsnæði Háskólans í Reykjavík, kl. 17-21:30. Námskeiðið er öllum opið og ekki eru gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang
á “ira hjá ira.is”. Ath. að skráningu fylgir engin skuldbinding, en veitir
félaginu mikilvægar upplýsingar um fyrirhugaðan fjölda nemenda.
Fyrirspurnum má beina á sama tölvupóstfang.
Skráning er opin til 20. janúar n.k. Félagið setur þann
fyrirvara um námskeiðshald, að lágmarksþátttaka fáist.
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A mætti með mælitækin í
Skeljanes laugardaginn 5. janúar.
Að þessu sinni voru sérstaklega til skoðunar gæði í
sendingum á einhliðarbandsmótun (SSB) frá nokkrum þekktum amatörstöðvum á 14
MHz. Þessar stöðvar voru: ELECRAFT KX-2, ICOM IC-706, IC-7300 og IC-7620, KENWOOD
TS-2000 og YAESU FT-1000. Allar stöðvarnar stóðust lágmarkskröfur. Ari Þórólfur hefur til skoðunar að taka saman
greinargerð til birtingar í CQ TF.
Gæði í sendingu voru skoðuð á mismunandi afli. Skoðað var
m.a. afleiðing þess að skrúfa upp mögnun til að kalla fram bjögun og fylgst með
aflestri á ALC-mæli um leið. Prófuð voru áhrif á gæði í sendingu með
innsetningu talpressu (e. processor)
og prófanirnar gerðar á mismunandi afli. Fram kom m.a. að venjulegur aflmælir
sýnir kannski mest 10W þegar notuð er einhliðabandsstöð á fullu afli (100W) út
í loftnet eða gerviálag, en til að fá „raunverulega“ aflmælingu þarf að nota
PEP aflmæli.
Alls mættu 12 félagar og 2 gestir í Skeljanes þennan ágæta laugardagseftirmiðdag. Ara Þórólfi Jóhannessyni TF1A eru hér með færðar bestu þakkir fyrir skemmtilegan viðburð og fróðlegar tilraunir. Hugmyndin er að hittast á ný að 2 vikum liðnum með nýtt verkefni (verður auglýst síðar).
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-01-05 20:57:312019-01-05 21:22:57MÆLINGAR OG PÆLINGAR Í SKELJANESI Í JANÚAR
Ari Þór Jóhannesson TF1A kemur með mælitækin í Skeljanes á morgun, laugardag 5. janúar.
Hugmyndin er að skoða útsendingargæði nokkurra amatörstöðva; m.a. að skipta út hljóðnemum og skoða tíðnisvörun og hvernig má varast að nota of mikla mögnun.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-01-04 17:41:392019-01-04 17:44:43Laugardagur 5. janúar í Skeljanesi
Nú hafa öll blöð gefin út af amatörfélögum á norðurlöndunum verið sett á netið frá síðasta ári. Svíarnir virðast vera hvað duglegastir og er fyrsta tölublað 2019 SSA komið á netið.
Í valmynd má finna blöðin hér: Félagið -> Fréttablöð -> Norðurlandablöð NRAU.
Við minnum á að félagar þurfa að vera skráðir inn til að geta skoðað blöðin. Síðan sem hýsir blöðin verður ekki sýnileg fyrr en búið er að skrá sig inn.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2018-12-31 08:54:432018-12-31 18:42:39Gleðilegt og farsælt nýtt ár 2019 frá ÍRA
Myndin er tekin í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi. Mathías Hagvaag QSL stjóri TF ÍRA QSL Bureau. Ljósmynd: TF3JB.
Áramótaútsending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer að þessu sinni fram mánudaginn 14. janúar 2019. Áramótaútsending er í raun, þegar nánast öll kort sem safnast hafa upp hjá stofunni, (t.d. til smærri staða) eru “hreinsuð upp” og póstlögð til systurstofnana landsfélaga radíóamatörfélaga um allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2018/19 er fimmtudagskvöldið 3. janúar 2019. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar í janúar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2018-12-29 00:24:322018-12-29 00:44:57ÁRAMÓTAHREINSUN ÍRA QSL BUREAU 3. JANÚAR
Elín TF2EQ er nýr ungmennafulltrúi ÍRA
Á stjórnafundi í félaginu þann 16. janúar var Elín Sigurðardóttir, TF2EQ skipuð í embætti ungmennafulltrúa ÍRA. Elín fluttist erlendis nú um áramótin, en hefur tekið að sér að móta nýtt embætti ungmennafulltrúa sem er verðmætt verkefni til framtíðar.
Elín mun m.a. annast samskipti við Lisu Leenders, PA2LS sem er Youth Coordinator í IARU Svæði 1.
Stjórn félagsins býður hana velkomna til starfa væntir mikils af störfum hennar.
FIMMTUDAGUR Í SKELJANESI – opið hús 17. jan.
Opið hús verður í Skeljanesi fimmtudaginn 17. janúar kl. 20-22.
Opin málaskrá, kaffi og kex og góður félagsskapur.
Vetrardagskrá 2019 hefst síðan á fullu 7. febrúar n.k.
ný SÍÐA UM: „TIL SÖLU“ og „ÓSKAST KEYPT“
Fyrir skömmu var rætt á Facebook um þörf á vettvangi þar sem menn geta sett inn auglýsingar um amatörstöðvar og/eða búnað til sölu – eða óskað eftir að kaupa slíkt dót.
Nú hefur Ágúst, TF3OM, sett upp Facebook síðu fyrir okkur sem kemur til móts við þessar þarfir. Nýja síðan heitir „Flóamarkaður Radíóamatöra“.
Ágúst skrifar eftirfarandi formála með síðunni:
Þetta er Flóamarkaður Radíóamatöra þar sem hægt er að birta auglýsingar er varða áhugamálið.
Vinsamlegast eyðið auglýsingum eða merkið með “Selt” eftir að viðskipti hafa farið fram.
Þessi vefur er ekki ætlaður fyrir hljómflutningstæki, sjónvörp og þess háttar. Hann er ekki ætlaður fyrir almennt spjall, til þess eru aðrir vefir.
73 de Ágúst, TF3OM.
Slóðin er: https://www.facebook.com/groups/radiofloamarkadur #�lvl
Opið fyrir innsendingu efnis til 13. janúar
1. tbl. CQ TF kemur út á heimasíðu félagsins 25. janúar n.k.
Opið er fyrir innsendingu efnis fram á sunnudag, 13. janúar.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið – frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Netfang ritstjóra: tf3sb@ox.is
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
FIMMTUDAGUR Í SKELJANESI – OPIÐ HÚS
Opið hús verður í Skeljanesi fimmtudaginn 10. janúar frá kl. 20.
Opin málaskrá, ilmandi kaffi og góður félagsskapur.
Vetrardagskrá 2019 hefst síðan 31. janúar n.k.
NÁMSKEIÐ TIL AMATÖRPRÓFS FEBRÚAR-MAÍ 2019
Í samræmi við starfsáætlun stjórnar ÍRA og að höfðu samráði við Prófnefnd og Umsjónarmann námskeiða, hefur verið ákveðið að kanna áhuga á þátttöku í námskeiði til amatörprófs.
Fyrirhugað er að námskeiðið hefjist 12. febrúar n.k. og ljúki með prófi Póst- og fjarskiptastofnunar 11. maí. Kennt verður tvo daga í viku í húsnæði Háskólans í Reykjavík, kl. 17-21:30. Námskeiðið er öllum opið og ekki eru gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang á “ira hjá ira.is”. Ath. að skráningu fylgir engin skuldbinding, en veitir félaginu mikilvægar upplýsingar um fyrirhugaðan fjölda nemenda.
Fyrirspurnum má beina á sama tölvupóstfang.
Skráning er opin til 20. janúar n.k. Félagið setur þann fyrirvara um námskeiðshald, að lágmarksþátttaka fáist.
MÆLINGAR OG PÆLINGAR Í SKELJANESI Í JANÚAR
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A mætti með mælitækin í Skeljanes laugardaginn 5. janúar.
Að þessu sinni voru sérstaklega til skoðunar gæði í sendingum á einhliðarbandsmótun (SSB) frá nokkrum þekktum amatörstöðvum á 14 MHz. Þessar stöðvar voru: ELECRAFT KX-2, ICOM IC-706, IC-7300 og IC-7620, KENWOOD TS-2000 og YAESU FT-1000. Allar stöðvarnar stóðust lágmarkskröfur. Ari Þórólfur hefur til skoðunar að taka saman greinargerð til birtingar í CQ TF.
Gæði í sendingu voru skoðuð á mismunandi afli. Skoðað var m.a. afleiðing þess að skrúfa upp mögnun til að kalla fram bjögun og fylgst með aflestri á ALC-mæli um leið. Prófuð voru áhrif á gæði í sendingu með innsetningu talpressu (e. processor) og prófanirnar gerðar á mismunandi afli. Fram kom m.a. að venjulegur aflmælir sýnir kannski mest 10W þegar notuð er einhliðabandsstöð á fullu afli (100W) út í loftnet eða gerviálag, en til að fá „raunverulega“ aflmælingu þarf að nota PEP aflmæli.
Alls mættu 12 félagar og 2 gestir í Skeljanes þennan ágæta laugardagseftirmiðdag. Ara Þórólfi Jóhannessyni TF1A eru hér með færðar bestu þakkir fyrir skemmtilegan viðburð og fróðlegar tilraunir. Hugmyndin er að hittast á ný að 2 vikum liðnum með nýtt verkefni (verður auglýst síðar).
Laugardagur 5. janúar í Skeljanesi
Ari Þór Jóhannesson TF1A kemur með mælitækin í Skeljanes á morgun, laugardag 5. janúar.
Hugmyndin er að skoða útsendingargæði nokkurra amatörstöðva; m.a. að skipta út hljóðnemum og skoða tíðnisvörun og hvernig má varast að nota of mikla mögnun.
Húsið opnar kl. 14. Kaffi á könnunni.
Norðurlandablöðin – NRAU
Nú hafa öll blöð gefin út af amatörfélögum á norðurlöndunum verið sett á netið frá síðasta ári. Svíarnir virðast vera hvað duglegastir og er fyrsta tölublað 2019 SSA komið á netið.
Í valmynd má finna blöðin hér: Félagið -> Fréttablöð -> Norðurlandablöð NRAU.
Við minnum á að félagar þurfa að vera skráðir inn til að geta skoðað blöðin. Síðan sem hýsir blöðin verður ekki sýnileg fyrr en búið er að skrá sig inn.
Hér má finna síðu The Nordic Radio Amateur Union: https://www.nrau.net/
NÝTT TÖLUBLAÐ CQ TF VÆNTANLEGT 25. JANÚAR
Nú styttist í janúarhefti CQ TF.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið – frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Skilafrestur efnis er til sunnudags 13. janúar n.k. Netfang er: tf3sb@ox.is
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
Gleðilegt og farsælt nýtt ár 2019 frá ÍRA
Stjórn ÍRA óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra farsældar á nýju ári.
ÁRAMÓTAHREINSUN ÍRA QSL BUREAU 3. JANÚAR
Myndin er tekin í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi. Mathías Hagvaag QSL stjóri TF ÍRA QSL Bureau. Ljósmynd: TF3JB.
Áramótaútsending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer að þessu sinni fram mánudaginn 14. janúar 2019. Áramótaútsending er í raun, þegar nánast öll kort sem safnast hafa upp hjá stofunni, (t.d. til smærri staða) eru “hreinsuð upp” og póstlögð til systurstofnana landsfélaga radíóamatörfélaga um allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2018/19 er fimmtudagskvöldið 3. janúar 2019. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar í janúar.
Reykjavík 29. desember 2018.
Mathías Hagvaag, TF3MH,
QSL stjóri ÍRA.