Í kvöld fmmtudag ætla ég að mæta niður í Skeljanes með spectrumanalyzer og tracking generator.
Á mannlegu máli er þetta viðtæki sem tekur á móti og getur sent út á sama tíma. Hægt er að senda inn á rás eða kristalsíu merki og mæla hvað kemur út á hinum endanum. Ætla ég meðal annars að að taka síu fyrir endurvarpa , skoða stilla og skoða tap. Ef þú átt síu fyrir einhverja tíðni, ertu að smiða síu , taktu hana endalega með , ég verð með N tengi og UHF (Pl259) til að tengja tækið. Tíðnisviðið sem tækið ræður við er 100Khz – 6Ghz og bandbreidd í mælingu niður í 300 hz.
Einnig er hægt að mæla nákvæmni tíðnisviðs sendis. Tækifæri til að sjá radíóbylgjuna.
TF3ARI ætlar að koma með tæki og tól og sýna okkur hvernig á að stilla síur.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-12-06 19:26:302017-12-07 14:22:59Opið í Skeljanesi frá 20 – 22 í kvöld 7. desember
TF3JM, Jóhannes Magnússon fær skírteinið sitt í dag eða á morgun og við bjóðum Jóhannes velkominn í loftið sem fyrst. Jóhannes var á námskeiðinu sem haldið var í haust og hann er búinn að panta sér QRP smíðasett, sendi-viðtæki fyrir 40 metra bandið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-12-06 10:30:102018-01-02 16:46:25TF3JM á von á sínu skírteini inn um póstlúguna í dag
Nýju leyfishafarnir tínast inn, í síðustu viku fékk Sigurður Sigurðsson, TF9SSB, skírteinið sitt. Sigurður býr á Sauðárkróki, við bjóðum Sigurð velkominn í loftið og bíðum spenntir eftir að heyra í honum á 80 metrunum frá Sauðárkróki.
Mælifellshnjúkur í Skagafirði – mynd Mbl.
Mælifellshnjúkurinn er 1147 metra hár staðsettur innarlega í Skagafjarðarsveit. Víðsýnt er af hnjúknum um hálendi Íslands og héraðið liggur allt opið fyrir fótum fjallsins. Staðsetningin hentar vel fyrir víðsýnan endurvarpa en ekkert rafmagn á staðnum og ekki auðvelt að sinna viðhaldi þar uppi að vetri til.
Hnjúkurinn hefur SOTA númerið NL-056. Enginn hefur SOTA-virkjað tindinn þegar þetta er skrifað.
IARU er þáttakandi í alþjóðadegi fólks með hömlun. Félög radíóamatöra víða um heim skipuleggja sérstaka viðveru í loftinu á þessum degi og kynna vinnu við ýmis verkefni sem auðvelda fólki með ýmiskonar hömlun að stunda radíóáhugamálið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-12-03 19:08:392017-12-03 20:50:57Í dag er alþjóðadagur fólks með hömlun.
Félagi minn Joel Shelton N8XJ/A65BX sem hélt kynningu í félagsheimilinu sumarið 2015 um könnun sem hann gerði um Amatör Radíó hefur lokið við skýrslu um niðurstöðuna. Áherslan í könnuninni er á framtíð áhugamálsins og ástæðu fólks til að velja áhugamálið. Hvað það er sem vekur áhugann, almennt og sérstaklega hjá ungu fólki. Joel vill að fram komi að könnunin var gerð á meðal bandarískra amatöra og forsendur miðast við það.
Í skýrslunni er niðurstaða úr könnun sem gerð var meðal bandarískra radíóáhugamanna sem fengu leyfið á árunum 2000 – 2015. Í skýrslunni eru atriði tengd aldri amatöranna, áhuga þeirra á CW og tengsl milli vinnu eða viðfangsefna og innkomu í radíóamatöráhugamálið. Könnuð eru líkleg áhrif aðstæðna og aldurs sem leiddu amatörinn í áhugamálið.
Niðurstöður úr könnun á aldursþættinum geta hjálpað til við að búa aðferð eða aðstæður sem eru líklegar til að fjölga radíóamatörum.
mynd úr eftirfarandi skýrslu
Kannski ætti að taka upp MOTA, miðaldra radíóamatörar í loftinu?
Spurningarnar um CW eru ekki síður áhugaverðar:
Þekkir þú CW? Já sögðu 12 % en nei sögðu 88 % og af þeim sem ekki þekktu CW sögðust einungis 18 % engan áhuga hafa á að læra CW.
Af þessu má álykta að þrátt fyrir að Morse hafi verið aflagt sem krafa til leyfis radíóamatörs er Morse alls ekki deyjandi samskiptaháttur og miklar líkur á að amatörar læri Morse.
Áhrif radíóáhugamálsins á starfsval:
Um þriðjungur radíóamatöra segja að áhugamálið hafi haft áhrif á starfsval og þriðjungur radíóamatöra segja að starfið hafi haft áhrif á að þeir urðu radíóamatörar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-12-02 10:32:492018-04-11 20:02:18Doug, W1DMH ætlar að SOTA nokkur fjöll á Íslandi
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-12-01 15:14:202017-12-02 13:42:12Endurvarpar radíóamatöra á Íslandi
TF3ARI, Ari, samþykkti nýlega að taka að sér að vera VHF-stjóri félagsins. Ari kemur til okkar í Skeljanes annað kvöld og segir okkur frá uppbyggingu VHF og UHF amatörendurvarpa á Íslandi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-11-29 18:25:002017-11-30 07:56:40TF3ARI segir frá VHF/UHF endurvörpum á Íslandi
Í dag eru Andrés Ólafsson, TF2ADN, Valgeir Pétursson, TF3VP og Vilhelm Sigurðsson, TF3AWS komnir með skírteinin sín að loknu prófi síðasta laugardag 25. nóvember 2017. Átta mættu til prófs, tveir náðu N-leyfi og fimm náðu G-leyfi þar af einn N-leyfishafi sem fór í prófið til að hækka sig.
Til hamingju hver og einn með þinn áfanga og nú er næsta skref að koma sér í loftið, nýta leyfið.
Amatörpróf verður haldið í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 25. nóvember 2017. Ennþá er hægt að skrá sig í prófið með því að senda póst á ira@ira.is. Prófið er tvískipt, tæknipróf byrjar klukkan 10 og stendur til klukkan 12. Reglugerðarpróf byrjar klukkan 13 og stendur til klukkan 15. Prófið er haldið í stofu V108 í HR.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Óskar Sverrissonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngÓskar Sverrisson2017-11-20 17:46:212017-12-04 09:24:47Ekki er ráð nema í tíma sé tekið – Skilaboð frá QSL stjóra ÍRA
Opið í Skeljanesi frá 20 – 22 í kvöld 7. desember
Ari skrifar í dag á fésbók:
Í kvöld fmmtudag ætla ég að mæta niður í Skeljanes með spectrumanalyzer og tracking generator.
Á mannlegu máli er þetta viðtæki sem tekur á móti og getur sent út á sama tíma. Hægt er að senda inn á rás eða kristalsíu merki og mæla hvað kemur út á hinum endanum. Ætla ég meðal annars að að taka síu fyrir endurvarpa , skoða stilla og skoða tap. Ef þú átt síu fyrir einhverja tíðni, ertu að smiða síu , taktu hana endalega með , ég verð með N tengi og UHF (Pl259) til að tengja tækið. Tíðnisviðið sem tækið ræður við er 100Khz – 6Ghz og bandbreidd í mælingu niður í 300 hz.
Einnig er hægt að mæla nákvæmni tíðnisviðs sendis. Tækifæri til að sjá radíóbylgjuna.
TF3ARI ætlar að koma með tæki og tól og sýna okkur hvernig á að stilla síur.
kaffi, kleinur og spjall …
TF3JM á von á sínu skírteini inn um póstlúguna í dag
TF3JM, Jóhannes Magnússon fær skírteinið sitt í dag eða á morgun og við bjóðum Jóhannes velkominn í loftið sem fyrst. Jóhannes var á námskeiðinu sem haldið var í haust og hann er búinn að panta sér QRP smíðasett, sendi-viðtæki fyrir 40 metra bandið.
QRP Labs 40 m CW
Nýr radíóamatör, Sigurður TF9SSB á Sauðárkróki
Nýju leyfishafarnir tínast inn, í síðustu viku fékk Sigurður Sigurðsson, TF9SSB, skírteinið sitt. Sigurður býr á Sauðárkróki, við bjóðum Sigurð velkominn í loftið og bíðum spenntir eftir að heyra í honum á 80 metrunum frá Sauðárkróki.
Mælifellshnjúkur í Skagafirði – mynd Mbl.
Mælifellshnjúkurinn er 1147 metra hár staðsettur innarlega í Skagafjarðarsveit. Víðsýnt er af hnjúknum um hálendi Íslands og héraðið liggur allt opið fyrir fótum fjallsins. Staðsetningin hentar vel fyrir víðsýnan endurvarpa en ekkert rafmagn á staðnum og ekki auðvelt að sinna viðhaldi þar uppi að vetri til.
Hnjúkurinn hefur SOTA númerið NL-056. Enginn hefur SOTA-virkjað tindinn þegar þetta er skrifað.
Í dag er alþjóðadagur fólks með hömlun.
IARU er þáttakandi í alþjóðadegi fólks með hömlun. Félög radíóamatöra víða um heim skipuleggja sérstaka viðveru í loftinu á þessum degi og kynna vinnu við ýmis verkefni sem auðvelda fólki með ýmiskonar hömlun að stunda radíóáhugamálið.
Framtíð radíóamatöráhugamálsins?
Félagi minn Joel Shelton N8XJ/A65BX sem hélt kynningu í félagsheimilinu sumarið 2015 um könnun sem hann gerði um Amatör Radíó hefur lokið við skýrslu um niðurstöðuna. Áherslan í könnuninni er á framtíð áhugamálsins og ástæðu fólks til að velja áhugamálið. Hvað það er sem vekur áhugann, almennt og sérstaklega hjá ungu fólki. Joel vill að fram komi að könnunin var gerð á meðal bandarískra amatöra og forsendur miðast við það.
Kynning Joels sumarið 2015.
73 de TF8KY
Úrdráttur
Í skýrslunni er niðurstaða úr könnun sem gerð var meðal bandarískra radíóáhugamanna sem fengu leyfið á árunum 2000 – 2015. Í skýrslunni eru atriði tengd aldri amatöranna, áhuga þeirra á CW og tengsl milli vinnu eða viðfangsefna og innkomu í radíóamatöráhugamálið. Könnuð eru líkleg áhrif aðstæðna og aldurs sem leiddu amatörinn í áhugamálið.
Niðurstöður úr könnun á aldursþættinum geta hjálpað til við að búa aðferð eða aðstæður sem eru líklegar til að fjölga radíóamatörum.
mynd úr eftirfarandi skýrslu
Kannski ætti að taka upp MOTA, miðaldra radíóamatörar í loftinu?
Spurningarnar um CW eru ekki síður áhugaverðar:
Þekkir þú CW? Já sögðu 12 % en nei sögðu 88 % og af þeim sem ekki þekktu CW sögðust einungis 18 % engan áhuga hafa á að læra CW.
Af þessu má álykta að þrátt fyrir að Morse hafi verið aflagt sem krafa til leyfis radíóamatörs er Morse alls ekki deyjandi samskiptaháttur og miklar líkur á að amatörar læri Morse.
Áhrif radíóáhugamálsins á starfsval:
Um þriðjungur radíóamatöra segja að áhugamálið hafi haft áhrif á starfsval og þriðjungur radíóamatöra segja að starfið hafi haft áhrif á að þeir urðu radíóamatörar.
73 de TF3JA
Doug, W1DMH ætlar að SOTA nokkur fjöll á Íslandi
http://w1dmh.blogspot.is/
W1DMH
http://w1dmh.blogspot.is/2014/06/rainier-w7wrs-001-sota.html
W1DMH
Endurvarpar radíóamatöra á Íslandi
TF3ARI kynnti í gærkvöldi í Skeljanesi uppbyggingu VHF/UHF endurvarpa radíóamatöra á Íslandi og hér eru slæðurnar sem hann sýndi okkur.
TF3ARI segir frá VHF/UHF endurvörpum á Íslandi
TF3ARI, Ari, samþykkti nýlega að taka að sér að vera VHF-stjóri félagsins. Ari kemur til okkar í Skeljanes annað kvöld og segir okkur frá uppbyggingu VHF og UHF amatörendurvarpa á Íslandi.
Kaffi á könnunni frá klukkan 20 og opið til 22.
Sex nýir leyfishafar
Í dag eru Andrés Ólafsson, TF2ADN, Valgeir Pétursson, TF3VP og Vilhelm Sigurðsson, TF3AWS komnir með skírteinin sín að loknu prófi síðasta laugardag 25. nóvember 2017. Átta mættu til prófs, tveir náðu N-leyfi og fimm náðu G-leyfi þar af einn N-leyfishafi sem fór í prófið til að hækka sig.
Til hamingju hver og einn með þinn áfanga og nú er næsta skref að koma sér í loftið, nýta leyfið.
stjórn ÍRA
Amatörpróf á laugardag 25. nóvember klukkan 10.
Amatörpróf verður haldið í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 25. nóvember 2017. Ennþá er hægt að skrá sig í prófið með því að senda póst á ira@ira.is. Prófið er tvískipt, tæknipróf byrjar klukkan 10 og stendur til klukkan 12. Reglugerðarpróf byrjar klukkan 13 og stendur til klukkan 15. Prófið er haldið í stofu V108 í HR.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið – Skilaboð frá QSL stjóra ÍRA
Kæru félagar,
nú er komið að árlegri hreinsun kortastofu ÍRA. Matti, TF3MH er QSL stjóri ÍRA en síminn hjá honum er 892 2067.
Verum snemma á ferðinni með skilin í ár – en síðasti skiladagur er fimmtudagurinn 4. janúar 2018.
Matti QSL-stjóri í góðra vina hópi.
Sýnishorn af flottu íslensku QSL korti.
Nánar um QSL kort almennt hér:
http://www.ira.is/qsl-kort/
IARU – gagn og gaman
Samvinna í 90 ár
Haldið upp á níutíu ára samvinnu