CQ WW DX SSB keppnin fór fram síðustu helgina í október í þokkalegum skilyrðum og ekki að sjá annað en þáttakan hafi verið góð. Íslenskar stöðvar í keppninni voru eftir betri heimildum TF2LL, TF2MSN, TF2AO, TF3CW, TF3CY, TF3DC, TF3MHN, TF3VS, TF3Y, TF4X fjarstýrð af TF3SG frá Reykjavík og TF8HP. Á vefsíðunni “Unofficial claimed scores” er hægt að fylgjast með óformlegum niðurstöðum keppninnar en formleg niðurstaða verður á vefsíðu keppninnar “CQ WW DX SSB” innan tíðar.
CW hluti keppninnar verður síðustu helgina í nóvember eftir réttar fjórar vikur og allar líkur á að þá verði stöð félagsins í Skeljanesi komin í gott lag að sögn stjórnar ÍRA.
VA7XX fjórhyrningur – draumaloftnet og færi vel á grasinu við Skeljanesið.
Fimmtudaginn 6. nóvember munu Vilhjálmur, TF3DX, og Kristján, TF3KB, halda erindi og svara spurningum um NRAU ráðstefnuna sem haldin var 15.-17 ágúst sl. og IARU region1 ráðstefnuna, sem haldin var 20.-27. september sl..
Vonandi sjá sem flestir félagar sér fært að mæta í félagsheimilið og hlusta á fróðlegt erindi.
TF4X keppnisstöðin í Otradal tók þátt í CQ WW SSB 2014 og var stjórnað með fjaraðgangi frá Reykjavík. TF3SG sem operator með K3 frá Elecraft og tilheyrandi fjaraðgangsbúnað tók þátt í flokkinum SOSB 160m High Power.
CQ WW SSB keppnin í ár fór af stað rétt eftir kröftugasta sólgos sem orðið hefur í 24 ár.
Nú til dags eru öflug hlustunarnet og öflugt sendinet og allt sem því fylgir á 160m um margt forréttindi. Það er aldrei ljósar en í miðju kröftugu sólgosi hvað stöðin er öflug. Veikustu merkin voru læsileg alveg niður í suð. Það verður ekki við ráðið ef merkin ná ekki í gegn vegna norðurljósa. Vandamálið hér á landi er ekki endilega að heyra veikustu merkin, miklu frekar að þeir sem kalla heyra ekki merkið frá TF4X vegna QRM þeirra megin. Við sólgosið tók bandið dýfu en jafnaði sig að nokkru leiti á nokkrum klukkutímum. Fyrir mig var þetta ein skemmtilegasta og lærdómsríkasta keppni fram til þessa. Allur búnaður var hnökralaus. Fjöldi sambanda var rétt rúmlega 260, 8 CQ og DXC 44. Takk fyrir mig Þorvaldur.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3SG - Guðmundur Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3SG - Guðmundur Sveinsson2014-10-28 10:09:222017-07-21 10:09:47Fjaraðgangsbúnaður og þátttaka TF4X í CQ WW SSB 2014
Á QRZNOW.COM birtist í vikunni grein um stafræna talmótun á HF, “FreeDV HF Digital Voice for Radio Amateurs” eða Stafrænt tal á HF.
FreeDVerGUIforritfyrir Windows,Linux ogMacOS(BSD og Android eru í þróun). Með forritinu er hægt að nota venjulegt SSB sendiviðtæki fyrir stafrænt tal á litlumbitahraða. Talið er þjappaðniður í1600bita/s runu sem mótuð er með 16 QPSK aðferð á 1,25kHzbreiða burðarbylgju. Í móttöku er merkið afmótað ogafkóðaðmeðFreeDV. Samskipti eru læsilegniður í 2dBS/N hlutfallog 1-2vatta sendiafl nægir fyrir samskipti yfir langar vegalengdir.FreeDVvar búið til í samstarfialþjóðlegs hópsradíóamatöra.FreeDVer opinnhugbúnaður, skrifaður í “GNUPublicLicense”útgáfu2.1. Bæði talkóðarinn og afkóðarinn eru opinn hugbúnaður.
En hvers vegna stafræn mótun og FreeDV? Amateur radíóiðer að færast frá hliðrænum sendingum tilstafrænna, sem er svipar til breytingarinnarfráAMtilSSB á árunum 1950 til 60. Hvernig væri staðan efeitt eðatvö fyrirtæki ættu einkaleyfi á SSB og neyddu amatöra til að notaþeirra tækni ogólöglegt væri að gera tilraunirmeð eðajafnvelskilja SSB-tækninaog þannig yrði staðan næstu100 árin? Þaðer einmittþað semvar að gerast meðstafrænt tal. En núeru radíóamatörar að ná stjórn átækniþróuninniaftur!
FreeDVereinstakur 100% opinn hugbúnaðaður fyrir flutning á hljóði. Engin leyndarmál, ekkert einkamál! FreeDV er leið21. aldar radíóamatöra til að myndaumhverfi þar sem frjálst er að gera tilraunir og prófa nýjungar, í stað þess að vera fastir í umhverfi fárra framleiðenda.
…já og takið eftir, 100 sinnum minna útsent afl og helmingi minni bandvídd…fyrir betri flutningsgæði.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2014-10-26 10:08:272017-07-21 10:09:16Talsamskipti radíóamatöra eru smá saman að fara yfir í stafræna mótun
seinni hluta sunnudags kom TF3CY aftur inn í keppnina af mikilum krafti á 10 metrunum, TF4X vaknaði aftur til lífsins á fjarstýringu frá TF3SG í Reykjavík og TF2LL hélt sínu striki á 20 og 80 metrunum …þegar klukkan er langt gengin í tíu hefur TF3IG bæst á listann á dxwatch.com… klukkan er orðin rúmlega níu og einn mesti keppnismaður íslenskra radíóamatöra, TF3CW, kominn á fulla ferð í keppninni, hér er staðan á DXWATCH.COM:
Einu heimildirnar um þáttöku íslenskra stöðva í CQ WW DX SSB keppninni um helgina eru listinn á DXWATCH.COM og símtal frá TF3SG í gær sem sagðist vera í loftinu á TF4X fjarstýrðri frá Reykjavík á 160 metrunum. Þetta er staðan núna klukkan 6 á sunnudagsmorgni í eins stigs frosti og vindleysu, allt bendir til sólríks sunnudags og lítil hætta á að loftnetaskelfirinn leysist úr læðingi. En hver á þetta skemmtilega kallmerki TF0HQ? sem bendir til þess að stjórn ÍRA hafi skroppið á gossvæðið í nótt. Kallmerkið HQ er venjulega frátekið fyrir “head quarter” stöðvar.
Í gær kom í ljós að SteppIR-greiðan í Skeljanesi virkaði ekki fullkomlega. Snemma í morgun mættu nokkrir félagar til vinnu í Skeljanesið og luku verkinu í eftirmiðdag. Endurnýjaðar voru næstum allar tengingar á stýristrengjum til staka loftnetsins. TF3Y tók að sér að klífa nokkrum sinnum upp að loftnetinu og þurfti því ekki að fella mastrið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2014-10-25 10:06:442017-07-21 20:30:33Nokkrir félagar mættu í Skeljanesið snemma í morgun og luku viðgerð á SteppIR-greiðunni
Á fimmtudagskvöld var TF3DC að koma inn í Skeljanesið og hitti þá fyrir erlend hjón. Óskar segir frá:
Ég hitti þau Gordon/VE3FRB og Theresu/VA3TGS fyrir utan félagsheimilið þar sem ég renndi í hlað. Þau stigu út úr leigubíl. Sögðust hafa farið á heimasíðuna og getað séð að fundir væru á þessum tíma í félagsheimilinu. Þau eru mest á VHF en taka þátt í stærri viðburðum amatöra í Canada. Aðspurð sögðust þau vera mjög lítið á HF og hefðu t.d. ekki haft samband við neina TF stöð. Þau Gordon og Theresa komu upp í sjakk og voru hrifin af aðstöðunni og af þeim fjölda sem var í félagsheimilinu. 73 de TF3DC.
Nokkrar íslenskar stöðvar eru að taka þátt í keppninni um helgina, TF4X fjarstýrð frá Reykjavík, TF3CW, TF3CY, TF2LL og kannski fleiri, sagt verður frá því betur hér að lokinni öflun upplýsinga.
Á DXCOFFEE.com var í gær komin frétt um að IG9Y keppnisliðið sem ætlaði að taka þátt í keppninni frá Lampedusaeyju á kallmerkinu IQ9Y væri hætt við þáttöku því loftnetin þeirra sem sjást á myndinni hér fyrir neðan fuku öll og eyðilögðust í stormi sem geisaði í Miðjarðarhafinu aðfaranótt fimmtudags. Eyjan Lampedusa er sunnan við Sikiley í Miðjarðarhafinu hálfa leið yfir til Túnis.
TF3DX sendi á irapóstinn í gær eftirfarandi frétt:
Sælt veri fólkið!
Fékk óvænt QSO í gær um kaffileytið. Kallaði í ZD8R á 12 m úr bílnum. Hann heilsaði mér með nafni og sagði “QSP frm OH2KI …. pse 28.001”.
Ég fór þangað og þar kallaði ZD8X í mig, og mikið rétt, þetta var Jorma OH2KI. Ég kynntist honum á fundinum í Finnlandi í haust, og á ráðstefnunni í Albena varð hann góður vinur og kröftugur stuðningsmaður tillögu okkar. Þá vildi svo til að konan hans hafði pantað ferð fyrir þau til Reykjavíkur vikulokin eftir að ráðstefnunni lauk, svo við hittumst líka hér og hann tók dálitla rispu á lykilinn í bílnum úti við Gróttu, sem TF/OH2KI/M. Ég skuldaði honum tölvupóst frá því fyrir viku u.þ.b. (latur að opna þessa dagana) og var einmitt að hugsa um að koma mér heim og svara honum þegar þetta QSO kom, mér alveg að óvörum! Hafði ekkert heyrt af þeirri fyrirætlan hans að vera á Ascension Island núna. Það er nærri beint í suður frá okkur, u.þ.b. 8° sunnan miðbaugs.
Hann er þarna ásamt Olli OH0XX (ZD8R) og Oliver W6NV (ZD8W). Þeir verða í CQWW SSB keppninni um helgina, og svo áfram fram á næsta fimmtudag og skottast þá í loftið, bæði CW og SSB trúi ég. Jorma verður líklega einkum á 10 m, hann er með monoband Yagi þar, sjá ZD8X á QRZ.com:
Í gærkvöldi lauk TF3Y við að tengja og stilla stýriboxið fyrir rótor SteppIR greiðunnar í Skeljanesi, Bjarni og félagar höfðu áður lokið við viðgerð á rótornum og er því félagsstöðin tilbúin til notkunar ef einhver eða einhverjir vilja nýta sér stöðina til þáttöku í CQ WW DX SSB keppninni um helgina. Líklega er Skeljanesið eitt besta virka amatör QTHið á landinu eins og er þó svo að aðstaðan keppi ekki við loftnetin í Otradal.
Marcel ON6UQ, Jef DD2CW, Dirk ONL741 og Roger ON7TQ verða í keppninni á kallmerkinu SI9AM í Svíþjóð.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2014-10-24 10:04:322017-07-21 10:04:57CQ WW DX SSB keppnin er um helgina – eru ekki allir með?
The live broadcast from Grimeton will begin at 12 PM (UTC 10) on Friday. The broadcast can be viewed on www.unday.org. The broadcast will go on for about 30 – 40 min, approximately. Unfortunately, there will be no transmission with SAQ.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2014-10-21 10:03:532017-07-21 10:04:25Líkast til engin útsending á 17,2 kHz á degi Sameinuðu þjóðanna
Skilaboð frá Lars SM6NM, Grimeton Radio/SAQ aukaútsending
Vonast er til að hægt verði að senda út skeyti á Alexanderson rafalnum í Grimeton á 17,2 kHz á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október, 2014 klukkan 10:00 UTC. Tíminn og hvenær byrjað verður að hita upp sendinn og stilla er ekki alveg vitað í dag en réttir tímar verða tilkynntir þegar nær dregur. Danskir námsmenn búa til skeytið sem sent verður. Í þetta skiptið er ekki ætlast til að skipst verði á QSL. Eftir sem áður verður árleg útsending á aðfangadag 24. desember klukkan 08:00, og byrjað að hita upp og stilla sendinn um klukkan 07:30 UTC, að sögn Lars.
Grimeton radíósendistöðin var tekin í notkun 1924 fyrir daga aflmikilla lampa. Notaðir eru riðstraumsrafalar til að búa til 17,2 kHz radíómerkið, aflið er 200 kW. Stöðin hefur kallmerkið SAQ og er eina stöðin sem varðveist hefur úr kerfi 18 sendistöðva sem byggt var á millistríðsárunum fyrir kreppuna miklu og náði um allan heim. Stöðinni var valinn staður á vesturströnd Svíþjóðar eftir mikla útreikninga og loftnetinu beint að USA. Stöðin í USA var á Long Island. Á fyrri hluta tuttugustu aldar var samkeppnin hörð milli radíóstöðva og ritsímasæstrengja um millilandaskeytasendingar. Til gamans má geta þess að stuttbylgju fjarskiptastöðin í Reykjavík hafði kallmerkið TFA, sendarnir voru á Rjúpnahæð og móttakan í Gufunesi. Stjórn- og afgreiðslubúnaður TFA var í Gufunesi.
Í gær laugardag mætti hópur vaskra amatöra í Skeljanesið og tókst að koma SteppIR greiðunni í samband á ný. Ekki er þó hægt með góðu móti að snúa loftnetinu í bili því í ljós kom að stýriboxið fyrir rótorinn var bilað eins og sést á myndum hér neðar. En áfram verður unnið að viðgerð og tók TF3Y boxið að sér. SteppIR prjónninn var skoðaður og eitt af næstu skrefum verður að koma honum í gagnið sem ætti að vera fljótgert eftir að nýja stýriboxið nær til landsins.
TF3DC, TF3Y, TF8HP, TF3GB, TF3VS. TF3JA tók myndina.
TF3Y tók þessa fínu mynd af Bjarna, TF3GB.
TF3SG mætti líka til vinnu en náðist ekki inná myndina.
Við aldursgreiningu kom í ljós að meðalaldur hópsins var nálægt 64 árum en þeir elstu nýttust til að stjórna aðgerðinni og hita kaffi, prýðis kaffi reyndar og 3DC brá sér í bakaríið og keypti ekta sixties bakkelsi þar á meðal dýrindis jólaköku að beiðni 3GB sem þó varla hafði tíma til að leggja frá sér verkfærin og koma niður úr stiganum til að njóta veitinganna.
CQ WW DX SSB, íslensk þáttaka
CQ WW DX SSB keppnin fór fram síðustu helgina í október í þokkalegum skilyrðum og ekki að sjá annað en þáttakan hafi verið góð. Íslenskar stöðvar í keppninni voru eftir betri heimildum TF2LL, TF2MSN, TF2AO, TF3CW, TF3CY, TF3DC, TF3MHN, TF3VS, TF3Y, TF4X fjarstýrð af TF3SG frá Reykjavík og TF8HP. Á vefsíðunni “Unofficial claimed scores” er hægt að fylgjast með óformlegum niðurstöðum keppninnar en formleg niðurstaða verður á vefsíðu keppninnar “CQ WW DX SSB” innan tíðar.
Þáttaka skv. lista á CQ WW DX
CW hluti keppninnar verður síðustu helgina í nóvember eftir réttar fjórar vikur og allar líkur á að þá verði stöð félagsins í Skeljanesi komin í gott lag að sögn stjórnar ÍRA.
VA7XX fjórhyrningur – draumaloftnet og færi vel á grasinu við Skeljanesið.
NRAU-IARU kynning.
Sælir félagar.
Af óviðráðanlegum ástæðum er erindi því er flytja átti
fimmtudaginn 6. nóvember frestað til fimmtudagsins
13. nóvember.
Bjarni, TF3GB, ritari ÍRA.
NRAU – IARU kynning.
Sælir félagar.
Fimmtudaginn 6. nóvember munu Vilhjálmur, TF3DX, og Kristján, TF3KB, halda erindi og svara spurningum um NRAU ráðstefnuna sem haldin var 15.-17 ágúst sl. og IARU region1 ráðstefnuna, sem haldin var 20.-27. september sl..
Vonandi sjá sem flestir félagar sér fært að mæta í félagsheimilið og hlusta á fróðlegt erindi.
Samkvæmt venju hefst erindið kl 20.30.
Bjarni, TF3GB, ritari ÍRA.
Fjaraðgangsbúnaður og þátttaka TF4X í CQ WW SSB 2014
TF4X keppnisstöðin í Otradal tók þátt í CQ WW SSB 2014 og var stjórnað með fjaraðgangi frá Reykjavík. TF3SG sem operator með K3 frá Elecraft og tilheyrandi fjaraðgangsbúnað tók þátt í flokkinum SOSB 160m High Power.
CQ WW SSB keppnin í ár fór af stað rétt eftir kröftugasta sólgos sem orðið hefur í 24 ár.
Nú til dags eru öflug hlustunarnet og öflugt sendinet og allt sem því fylgir á 160m um margt forréttindi. Það er aldrei ljósar en í miðju kröftugu sólgosi hvað stöðin er öflug. Veikustu merkin voru læsileg alveg niður í suð. Það verður ekki við ráðið ef merkin ná ekki í gegn vegna norðurljósa. Vandamálið hér á landi er ekki endilega að heyra veikustu merkin, miklu frekar að þeir sem kalla heyra ekki merkið frá TF4X vegna QRM þeirra megin. Við sólgosið tók bandið dýfu en jafnaði sig að nokkru leiti á nokkrum klukkutímum. Fyrir mig var þetta ein skemmtilegasta og lærdómsríkasta keppni fram til þessa. Allur búnaður var hnökralaus. Fjöldi sambanda var rétt rúmlega 260, 8 CQ og DXC 44. Takk fyrir mig Þorvaldur.
73
Guðmundur, TF3SG
Talsamskipti radíóamatöra eru smá saman að fara yfir í stafræna mótun
Á QRZNOW.COM birtist í vikunni grein um stafræna talmótun á HF, “FreeDV HF Digital Voice for Radio Amateurs” eða Stafrænt tal á HF.![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/FreeDV.png)
FreeDV er GUI forrit fyrir Windows, Linux og MacOS (BSD og Android eru í þróun). Með forritinu er hægt að nota venjulegt SSB sendiviðtæki fyrir stafrænt tal á litlum bitahraða. Talið er þjappað niður í 1600 bita/s runu sem mótuð er með 16 QPSK aðferð á 1,25 kHz breiða burðarbylgju. Í móttöku er merkið afmótað og afkóðaðmeð FreeDV. Samskipti eru læsileg niður í 2 dB S/N hlutfall og 1-2 vatta sendiafl nægir fyrir samskipti yfir langar vegalengdir. FreeDV var búið til í samstarfi alþjóðlegs hóps radíóamatöra. FreeDV er opinn hugbúnaður, skrifaður í “GNU Public License”útgáfu 2.1. Bæði talkóðarinn og afkóðarinn eru opinn hugbúnaður.
En hvers vegna stafræn mótun og FreeDV?
Amateur radíóið er að færast frá hliðrænum sendingum til stafrænna, sem er svipar til breytingarinnar frá AM til SSB á árunum 1950 til 60. Hvernig væri staðan ef eitt eðatvö fyrirtæki ættu einkaleyfi á SSB og neyddu amatöra til að nota þeirra tækni og ólöglegt væri að gera tilraunir með eða jafnvel skilja SSB-tæknina og þannig yrði staðan næstu 100 árin? Það er einmitt það sem var að gerast með stafrænt tal. En núeru radíóamatörar að ná stjórn á tækniþróuninni aftur!
FreeDV er einstakur 100% opinn hugbúnaðaður fyrir flutning á hljóði. Engin leyndarmál, ekkert einkamál! FreeDV er leið 21. aldar radíóamatöra til að myndaumhverfi þar sem frjálst er að gera tilraunir og prófa nýjungar, í stað þess að vera fastir í umhverfi fárra framleiðenda.
…já og takið eftir, 100 sinnum minna útsent afl og helmingi minni bandvídd…fyrir betri flutningsgæði.
Framtíðin er komin, við látum ekki hefta okkur!
…þýtt og endursagt de TF3JA
Íslenskar stöðvar í CQ keppninni
staðan á DXWATCH.COM stuttu eftir lok keppninnar..
KD4PXY
TF2LL
14263
59 nc
0003z 27 Oct
N6DBF
TF2LL
14263
2359z 26 Oct
9A7A
TF4X
1832.5
2353z 26 Oct
CN2AA
TF4X
1832.4
2342z 26 Oct
K6ST
TF2LL
14263
2338z 26 Oct
K6ST
TF3CY
14232.6
2331z 26 Oct
K7RL
TF3CY
14232.6
USB
2320z 26 Oct
K7RL
TF2LL
14263
USB
2320z 26 Oct
DB3MA
TF4X
1832.4
5914 73 harald
2320z 26 Oct
GM4AFF
TF4X
1832.4
2315z 26 Oct
NW3H
TF2LL
14263
40
2311z 26 Oct
N2FF
TF2LL
14263
2304z 26 Oct
AA7V
TF3CY
14232.6
2304z 26 Oct
TF2MSN
TF3CY
14232.5
CQ TEST
2252z 26 Oct
N2TX
TF3CY
14232.6
USB
2248z 26 Oct
seinni hluta sunnudags kom TF3CY aftur inn í keppnina af mikilum krafti á 10 metrunum, TF4X vaknaði aftur til lífsins á fjarstýringu frá TF3SG í Reykjavík og TF2LL hélt sínu striki á 20 og 80 metrunum …þegar klukkan er langt gengin í tíu hefur TF3IG bæst á listann á dxwatch.com… klukkan er orðin rúmlega níu og einn mesti keppnismaður íslenskra radíóamatöra, TF3CW, kominn á fulla ferð í keppninni, hér er staðan á DXWATCH.COM:
Einu heimildirnar um þáttöku íslenskra stöðva í CQ WW DX SSB keppninni um helgina eru listinn á DXWATCH.COM og símtal frá TF3SG í gær sem sagðist vera í loftinu á TF4X fjarstýrðri frá Reykjavík á 160 metrunum. Þetta er staðan núna klukkan 6 á sunnudagsmorgni í eins stigs frosti og vindleysu, allt bendir til sólríks sunnudags og lítil hætta á að loftnetaskelfirinn leysist úr læðingi. En hver á þetta skemmtilega kallmerki TF0HQ? sem bendir til þess að stjórn ÍRA hafi skroppið á gossvæðið í nótt. Kallmerkið HQ er venjulega frátekið fyrir “head quarter” stöðvar.
Nokkrir félagar mættu í Skeljanesið snemma í morgun og luku viðgerð á SteppIR-greiðunni
Í gær kom í ljós að SteppIR-greiðan í Skeljanesi virkaði ekki fullkomlega. Snemma í morgun mættu nokkrir félagar til vinnu í Skeljanesið og luku verkinu í eftirmiðdag. Endurnýjaðar voru næstum allar tengingar á stýristrengjum til staka loftnetsins. TF3Y tók að sér að klífa nokkrum sinnum upp að loftnetinu og þurfti því ekki að fella mastrið.
TF3GB, TF3Y, TF3DC og TF3VS, myndina tók TF3JA
CQ WW DX SSB, heimsókn kanadískra amatörhjóna í Skeljanesið og fleira.
Á fimmtudagskvöld var TF3DC að koma inn í Skeljanesið og hitti þá fyrir erlend hjón. Óskar segir frá:
Ég hitti þau Gordon/VE3FRB og Theresu/VA3TGS fyrir utan félagsheimilið þar sem ég renndi í hlað. Þau stigu út úr leigubíl. Sögðust hafa farið á heimasíðuna og getað séð að fundir væru á þessum tíma í félagsheimilinu. Þau eru mest á VHF en taka þátt í stærri viðburðum amatöra í Canada. Aðspurð sögðust þau vera mjög lítið á HF og hefðu t.d. ekki haft samband við neina TF stöð. Þau Gordon og Theresa komu upp í sjakk og voru hrifin af aðstöðunni og af þeim fjölda sem var í félagsheimilinu. 73 de TF3DC.
Nokkrar íslenskar stöðvar eru að taka þátt í keppninni um helgina, TF4X fjarstýrð frá Reykjavík, TF3CW, TF3CY, TF2LL og kannski fleiri, sagt verður frá því betur hér að lokinni öflun upplýsinga.
Á DXCOFFEE.com var í gær komin frétt um að IG9Y keppnisliðið sem ætlaði að taka þátt í keppninni frá Lampedusaeyju á kallmerkinu IQ9Y væri hætt við þáttöku því loftnetin þeirra sem sjást á myndinni hér fyrir neðan fuku öll og eyðilögðust í stormi sem geisaði í Miðjarðarhafinu aðfaranótt fimmtudags. Eyjan Lampedusa er sunnan við Sikiley í Miðjarðarhafinu hálfa leið yfir til Túnis.
TF3DX sendi á irapóstinn í gær eftirfarandi frétt:
Sælt veri fólkið!
Fékk óvænt QSO í gær um kaffileytið. Kallaði í ZD8R á 12 m úr bílnum. Hann heilsaði mér með nafni og sagði “QSP frm OH2KI …. pse 28.001”.
Ég fór þangað og þar kallaði ZD8X í mig, og mikið rétt, þetta var Jorma OH2KI. Ég kynntist honum á fundinum í Finnlandi í haust, og á ráðstefnunni í Albena varð hann góður vinur og kröftugur stuðningsmaður tillögu okkar. Þá vildi svo til að konan hans hafði pantað ferð fyrir þau til Reykjavíkur vikulokin eftir að ráðstefnunni lauk, svo við hittumst líka hér og hann tók dálitla rispu á lykilinn í bílnum úti við Gróttu, sem TF/OH2KI/M. Ég skuldaði honum tölvupóst frá því fyrir viku u.þ.b. (latur að opna þessa dagana) og var einmitt að hugsa um að koma mér heim og svara honum þegar þetta QSO kom, mér alveg að óvörum! Hafði ekkert heyrt af þeirri fyrirætlan hans að vera á Ascension Island núna. Það er nærri beint í suður frá okkur, u.þ.b. 8° sunnan miðbaugs.
Hann er þarna ásamt Olli OH0XX (ZD8R) og Oliver W6NV (ZD8W). Þeir verða í CQWW SSB keppninni um helgina, og svo áfram fram á næsta fimmtudag og skottast þá í loftið, bæði CW og SSB trúi ég. Jorma verður líklega einkum á 10 m, hann er með monoband Yagi þar, sjá ZD8X á QRZ.com:
CQWWSSB 2014, ZD8X á SSB, 28 MHz, liðið ZD8W, ZD8R, ZD8X…. ZD8X QSL beint: Jorma Saloranta, OH2KI, Marjoniementie 28, 13330 Harviala, Finland. Sjá: Vefsíða OH2KI.
Lítill maður með stóru greiðuna sína: 4 stök á 10 metrum:
Mynd: G0CKV
73, Villi TF3DX
CQ WW DX SSB keppnin er um helgina – eru ekki allir með?
Í gærkvöldi lauk TF3Y við að tengja og stilla stýriboxið fyrir rótor SteppIR greiðunnar í Skeljanesi, Bjarni og félagar höfðu áður lokið við viðgerð á rótornum og er því félagsstöðin tilbúin til notkunar ef einhver eða einhverjir vilja nýta sér stöðina til þáttöku í CQ WW DX SSB keppninni um helgina. Líklega er Skeljanesið eitt besta virka amatör QTHið á landinu eins og er þó svo að aðstaðan keppi ekki við loftnetin í Otradal.
Marcel ON6UQ, Jef DD2CW, Dirk ONL741 og Roger ON7TQ verða í keppninni á kallmerkinu SI9AM í Svíþjóð.
Líkast til engin útsending á 17,2 kHz á degi Sameinuðu þjóðanna
…en hægt að fylgjast með beinni útsendingu á netinu sem hefst klukkan tíu á föstudagsmorgun á unday.org…
World Heritage Grimeton Radio station
The live broadcast from Grimeton will begin at 12 PM (UTC 10) on Friday. The broadcast can be viewed on www.unday.org. The broadcast will go on for about 30 – 40 min, approximately. Unfortunately, there will be no transmission with SAQ.
Auka útsending á degi Sameinuðu þjóðanna 24 október
Skilaboð frá Lars SM6NM, Grimeton Radio/SAQ aukaútsending
Vonast er til að hægt verði að senda út skeyti á Alexanderson rafalnum í Grimeton á 17,2 kHz á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október, 2014 klukkan 10:00 UTC. Tíminn og hvenær byrjað verður að hita upp sendinn og stilla er ekki alveg vitað í dag en réttir tímar verða tilkynntir þegar nær dregur. Danskir námsmenn búa til skeytið sem sent verður. Í þetta skiptið er ekki ætlast til að skipst verði á QSL. Eftir sem áður verður árleg útsending á aðfangadag 24. desember klukkan 08:00, og byrjað að hita upp og stilla sendinn um klukkan 07:30 UTC, að sögn Lars.
Grimeton radíósendistöðin var tekin í notkun 1924 fyrir daga aflmikilla lampa. Notaðir eru riðstraumsrafalar til að búa til 17,2 kHz radíómerkið, aflið er 200 kW. Stöðin hefur kallmerkið SAQ og er eina stöðin sem varðveist hefur úr kerfi 18 sendistöðva sem byggt var á millistríðsárunum fyrir kreppuna miklu og náði um allan heim. Stöðinni var valinn staður á vesturströnd Svíþjóðar eftir mikla útreikninga og loftnetinu beint að USA. Stöðin í USA var á Long Island. Á fyrri hluta tuttugustu aldar var samkeppnin hörð milli radíóstöðva og ritsímasæstrengja um millilandaskeytasendingar. Til gamans má geta þess að stuttbylgju fjarskiptastöðin í Reykjavík hafði kallmerkið TFA, sendarnir voru á Rjúpnahæð og móttakan í Gufunesi. Stjórn- og afgreiðslubúnaður TFA var í Gufunesi.
Loftnetið í Grimeton
QSL kort frá Grimeton
Unnið við loftnet í Skeljanesi
Í gær laugardag mætti hópur vaskra amatöra í Skeljanesið og tókst að koma SteppIR greiðunni í samband á ný. Ekki er þó hægt með góðu móti að snúa loftnetinu í bili því í ljós kom að stýriboxið fyrir rótorinn var bilað eins og sést á myndum hér neðar. En áfram verður unnið að viðgerð og tók TF3Y boxið að sér. SteppIR prjónninn var skoðaður og eitt af næstu skrefum verður að koma honum í gagnið sem ætti að vera fljótgert eftir að nýja stýriboxið nær til landsins.
TF3DC, TF3Y, TF8HP, TF3GB, TF3VS. TF3JA tók myndina.
TF3Y tók þessa fínu mynd af Bjarna, TF3GB.
TF3SG mætti líka til vinnu en náðist ekki inná myndina.
Við aldursgreiningu kom í ljós að meðalaldur hópsins var nálægt 64 árum en þeir elstu nýttust til að stjórna aðgerðinni og hita kaffi, prýðis kaffi reyndar og 3DC brá sér í bakaríið og keypti ekta sixties bakkelsi þar á meðal dýrindis jólaköku að beiðni 3GB sem þó varla hafði tíma til að leggja frá sér verkfærin og koma niður úr stiganum til að njóta veitinganna.
Brunnar tengingar í rótorstýriboxinu.
Plata úr óskemmdu boxi, mynd TF3Y
SteppIR greiðan komin upp.
Neðsti hluti SteppIR prjónsins