Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN skoðar „spýtumorslykil” TF3VS samkvæmt forskrift TF3DX á sunnudag.
Skemmtilegir viðburðir voru í boði á vetrardagskrá Í.R.A. helgina 7.-10. mars. Helgin hófst á hefðbundnu fimmtudagserindi, síðan var hraðnámskeið í gær (laugardag) og sunnudagsopnun í morgun, á messutíma. Samtals sóttu yfir 40 félagsmenn þessa þrjá viðburði.
TF3JB flutti fimmtudagserindið þann 7. mars. Það fjallaði um „nýju böndin” svokölluðu, þ.e. 4 metra, 60 metra, 160 metra (1850-1900 kHz) og 630 metra. Þá leiðbeindi TF3Y á upprifjun-1 í notkun Win-Test keppnisdagbókarforritsins laugardaginn 9. mars og loks hafði TF3SA umsjón með 2. sunnudagsopnun vetrarins þann 10. mars, þar sem yfirskriftin var: „Félagar koma með morslykla sína í Skeljanes”.
Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Jónasi Bjarnasyni, TF3JB; Yngva Harðarsyni, TF3Y og Stefáni Arndal, TF3SA, fyrir vel heppnaða viðburði. Ennfremur þakkir til Sigurbjörns Þórs Bjarnasonar, TF3SB, fyrir ljósmyndir.
Skeljanesi 7. mars. TF3JB flutti erindi um nýju böndin. Fjallað var m.a. um tímabundnar sérheimildir á 5 MHz og á 70 MHz, sérheimild um aðgang að tíðnisviðinu 1850-1900 kHz og um nýja tíðnisviðið á 472-479 kHz.
Skeljanesi 9. mars. Frá vinstri: TF3JA og TF3Y. Yngvi leiðbeindi á upprifjun-1 um Win-Test keppnisforritið.
Skeljanesi 10. mars. TF3SG (fremst), TF3SA og TF3SB. Lyklar og pöllur (spaðalyklar) prófaðir.
Skeljanesi 10. mars. TF3SA útskýrði vel hinar mismunandi gerðir Vibroplex spaðalykla.
Skeljanesi 10. mars. Nokkrir af þeim morslyklum sem menn tók með sér í Skeljanes í morgun. Allir sem komu með lykla, útskýrðu tegund og gerð og jafnframt ef einhver saga var sem fylgdi. Stöðin á myndinni er Elecraft K3.
Skeljanesi 10. mars. TF3HP kom með nokkra morslykla, þ.á.m. þennan handmorslykil frá Kent.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-10 10:14:272017-07-22 10:17:41TF3JB, TF3Y og TF3SA í Skeljanesi um helgina
Stefán Arndal TF3SA við stjórnvölinn á TF3IRA í Skeljanesi í september s.l. Ljósm.: TF3JA.
2. sunnudagsopnun Í.R.A. á yfirstandandi vetrardagskrá verður haldin í félagsaðstöðunni í Skeljanesi sunnudaginn 10. mars n.k. Yfirskriftin er: „Félagar koma með morslykla sína í Skeljanes”. Stefán ætlar að koma með sex morslykla úr eigin safni og skorar á aðra félaga að taka sem flesta lykla með sér. Húsið opnar kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
Handmorslykill frá Kent Engineers, sömu gerðar og notaður er við félagsstöðina TF3IRA.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-08 10:12:252017-07-22 10:14:19TF3SA verður á 2. sunnudagsopnun vetrarins
Í.R.A. gengst fyrir upprifjun-1 á notkun Win-Test keppnisdagbókarforritsins laugardaginn 9. mars n.k. kl. 10:00-12:00. Námskeiðið verður haldið í fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Leiðbeinandi: Yngvi Harðarson, TF3Y.
Félagsmönnum er bent á, að þetta er upplagt tækifæri fyrir fyrir þá, sem e.t.v. þurfa smávægilega upprifjun, eða hafa spurningar um grundvallarþætti í notkun forritsins. Þeir sem lengra eru komnir, myndu e.t.v. frekar mæta á síðari hluta námskeiðsins hjá Yngva (upprifjun-2) sem verður haldinn eftir viku á sama stað, þ.e. laugardaginn 16. mars og verður auglýstur þegar nær dregur.
Stjórn Í.R.A. hvetur áhugasama félaga til að nýta þetta frábæra tækifæri.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-07 10:11:072017-07-22 10:12:15TF3Y verður á Win-Test námskeiði á laugardag
Á myndinni má sjá hluta af loftnetum Georgs Magnússonar TF2LL sem TF2RR notaði í CQ WW RTTY keppninni 2012. Á turninum eru OptiBeam 18-6 fyrir 40 til 10 metra böndin og OptiBeam 1-80 fyrir 80 metrana. Turninn er 28 metra hár, að stærstum hluta heimasmíðaður.
Þrjár íslenskar stöðvar skiluðu gögnum til keppnisnefndar CQ tímaritsins vegna þátttöku í CQ World-Wide DX RTTY keppninni 2012, sem haldin var helgina 29.-30. september síðastliðinn. Í marshefti CQ tímaritsins 2013 eru birtar niðurstöður úr keppninni. Samkvæmt þeim, náði TF2RR 11. sæti yfir Evrópu og 14. sæti yfir heiminn í sínum keppnisflokki. Að baki þessum árangri voru 2.968 QSO og 3,382,323 heildarstig. Þetta er glæsilegur árangur þegar tekið er tillit til þess hve skilyrði versnuðu síðari dag keppninnar sem endaði með því, að hópurinn ákvað að ljúka þátttöku síðdegis þann dag. Þrátt fyrir allt, er þetta líklega besti árangur sem náðst hefur frá TF stöð í alþjóðlegri RTTY keppni hingað til.
Í keppninni var unnið var frá vel útbúinni stöð TF2LL í Borgarfirði. TF2RR keppti í „fleirmenningsflokki/einn sendir/öll bönd/hámarksafl”. TF2RR (og TF3RR) eru kallmerki Radíóklúbbsins Radíó refir. Klúbbfélagar eru: Ársæll Óskarsson TF3AO, Georg Magnússon TF2LL, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG, Haraldur Þórðarson TF3HP og Jón Gunnar Harðarson TF3PPN, auk Andrésar Þórarinssonar TF3AM, sem nýlega gekk til liðs við refina.
Tvær aðrar TF stöðvar skiluðu inn keppnisgögnum. Það voru TF3G sem var með 120 QSO og 16.940 heildarstig. Gísli keppti í „einmenningsflokki/einn sendir/öll bönd/lágafl”. Þá skilaði TF8SM samanburðargögnum (e. check-log) til keppnisnefndar
Stjórn Í.R.A. óskar Radíó refum innilega til hamingju með frábæran árangur í keppninni, svo og öðrum íslenskum leyfishöfum sem tóku þátt að þessu sinni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-06 10:09:472017-07-22 10:10:49Glæsilegur árangur TF2RR, 11. sæti í Evrópu
TF5RPD notar svarta stangarloftnetið, en loftnetið sem stendur út frá H-staurnum er „Slimminn” sem er varanet endurvarpans. Ljósmynd: Þór Þórisson TF3GW.
Endurvarpi félagsins í Vaðlaheiði, TF5RPD, var gangsettur á ný þann 1. mars. Hann hafði þá verið úti um nokkurn tíma. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, TF3GS,hafði aflgjafinn slegið út. Hann segir að allt virðist nú í góðu lagi, m.a. auðkenni á morsi.
Endurvarpinn hefur annars gengið mjög vel eftir að hann var settur yfir á „stóra” loftnetið sem tengt var á ný í júlí s.l. sumar (sbr. mynd). En við það tækifæri var m.a. skipt um festingar, fæðilínu og tengi.
Stjórn Í.R.A. þakkar Guðmundi Sigurðssyni, TF3GS, fyrir gangsetningu endurvarpans.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-05 10:08:372017-07-22 10:09:36TF5RPD á Vaðlaheiði QRV á ný
TF3WO sýnir virkan „Sky Command System II+” í félagsaðstöðunni í Skeljanesi þann 3. mars.
Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, stýrði 1. sunnudagsopnun vetrarins í Skeljanesi þann 3. mars. Yfirskrift viðburðarins var kynning á Kenwood „Sky Command System II+”.
Dagskráin var þrískipt. Fyrst greinargóð PowerPoint kynning, síðan fluttu viðstaddir sig upp í fjarskiptaherbergi TF3IRA og loks niður í stóra sófasettið á 1. hæð þar sem í boði var kaffi og meðlæti. Fram kom m.a., að kerfið er innbyggt í stöðvar af 2000 gerð frá Kenwood og bílstöðvar og handstöðvar frá sama framleiðanda, þannig að ekki þarf að nota (kaupa) sérstakan hugbúnað, aukalega. „Sky Command” gerir eigendum TS-2000 stöðva (og fleiri frá sama framleiðanda) kleift að stýra þeim frá bílstöðvum eða handstöðvum á 2 metrum eða 70 cm, t.d. gerðum TH-D7A/G, TM-D700A eða TM-D710A. Umræðum lauk á settum tíma, upp úr hádegi. Alls mættu 10 félagar í Skeljanes þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í höfuðborginni, úr kallsvæðum TF1, TF2 og TF3.
Stjórn Í.R.A. þakkar Guðjóni Helga Egilssyni, TF3WO, fyrir fróðlegan og vel heppnaðan viðburð.
Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, flutti greinargóða PowerPoint kynningu á „Sky Command System II+”.
Henry Arnar Hálfdánarson TF3HRY flutti fimmtudagserindið í þann 28. febrúar. Ljósmynd: TF3LMN.
Vetrardagskrá Í.R.A. var haldið áfram í félagsaðstöðunni fimmtudagskvöldið 18. febrúar. Að þessu sinni kom Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY, í Skeljanes með erindi sem hann nefndi: „Væntanlegt stafræntsjónvarp á Íslandi”.
Erindið var afar fróðlegt og áhugavert. Henry er hvorutveggja vel heima í fræðunum og áhugasamur um viðfangsefnið. Hann útskýrði vel tæknilegar forsendur og möguleika stafræns sjónvarps umfram hliðræntog þá möguleika sem felast í nýrri tækni. Félagsmenn höfðu margs að spyrja og var greiðlega leyst úr spurningum þeirra. Alls mættu 26 félagsmenn í Skeljanes þetta veðurmilda
fimmtudagskvöld í höfuðborginni.
Stjórn Í.R.A. þakkar Henry Arnari Hálfdánarsyni, TF3HRY, fyrir heppnað erindi og Jóni Svavarssyni, TF3LMN, og Sigurbirni Þóri Bjarnasyni, TF3SB, fyrir ljósmyndir.
Erindi TF3HRY endaði á „vettvangsferð” í útsendingarbifreið RÚV fyrir utan félagsaðstöðuna í Skeljanesi.
Næsta erindi á vetrardagskrá félagsins verður haldið fimmtudaginn 7. mars n.k. kl. 20:30 í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Fyrirlesari kvöldsins er Jónas Bjarnason, TF3JB og nefnist erindi hans: „Nýju böndin á 4, 60 og 630 metrum”.
Sérstakar tímabundnar sérheimildir íslenskra radíóamatöra á 5 MHz (60 metrum) og á 70 MHz (4 metrum) voru nýverið endurnýjaðar af Póst- og fjarskiptastofnun fyrir almanaksárin 2013 og 2014. Ennfremur var sérheimild um aðgang að tíðnisviðinu 1850-1900 kHz í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2013, nýverið endurnýjuð. Loks fengum við nýju tíðnisviði úthlutað á 472-479 kHz (630 metrum) þann 16. janúar s.l.
Í erindi sínu, mun Jónas fara stuttlega yfir hvert band fyrir sig. Útskýrt verður m.a. hvað og hvernig menn þurfa að bera sig að til að fá heimildir. Við hverju er að búast hvað varðar útbreiðslu. Einnig verður farið yfir sameiginlega tíðniskiptingu NRRL og Í.R.A. á 60 metra bandinu, ásamt því að veitt verður yfirlit yfir praktíska þætti, s.s. útvegun/smíði sendi-/móttökustöðva og loftneta í þessum tíðnisviðum.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta stundvíslega.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-03 10:03:292017-07-22 10:05:12TF3JB verður með fimmtudagserindið
TF3TNT losar gömlu festinguna. Sumir boltarnir snérust í sundur strax og tekið var á þeim.
Eins og fram kom í síðasta mánuði, er áhugi fyrir að félagsstöðin, TF3IRA, eignist nýjan RF magnara.
Nokkrir félagar hafa tekið sig saman og hrint af stað söfnun til að létta undir með félagssjóði og hjálpa
til við að fjármagna kaupin. Markmiðið er að safna allt að 300 þúsund krónum og þá geti félagssjóður
brúað bilið upp á það sem vantar.
Menn sjá fyrir sér að hugsanlega geti 30 félagar verið tilbúnir til að leggja verkefninu lið, til dæmis með 10 þúsund króna framlagi hver, en að sjálfsögðu má framlag hvers og eins vera minna eða meira en sú fjárhæð. Hugmyndin er þegar þar að kemur, að boðað verði til fundar þar sem tekin verði sameiginleg ákvörðun um kaup á tiltekinni tegund og gerð magnara.
Stefán Arndal, TF3SA, opnaði reikning þann 1. febrúar síðastliðinn í þágu söfnunarinnar í Íslandsbanka, fyrir væntanleg framlög. Reikningurinn ber nafnið: „HF magnari fyrir Í.R.A.” og er reikningsnúmerið 0515-14-122257. Kennitalan er á hans nafni, 260831-2839 og hefur hann þegar lagt persónulega inn á þennan reikning 20 þúsund króna framlag.
Stefán er forsvarsmaður söfnunarinnar og vörslumaður fjárins og mun hann svara fyrirspurnum félagsmanna vegna söfnunarinnar. Fyrir liggur staðfesting stjórnar félagsins þess efnis, að félagssjóður muni styrkja kaupin. Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni, höfðu alls 9 félagar gefið samtals 112.345 krónur í söfnunina að kvöldi fimmtudagsins 28. febrúar. Undirritaður hvetur félagsmenn til að styðja þetta góða framtak.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-03-01 10:02:232017-07-22 10:03:23Safnað fyrir RF magnara fyrir TF3IRA
1. sunnudagsopnun á yfirstandandi vetrardagskrá verður haldin sunnudaginn 3. mars n.k. kl. 10:30 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes.Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, mætir í sófaumræður og kynnir Skycommand System II+ frá Kenwood. Húsið verður opnað kl. 10 árdegis og er miðað við að dagskrá verði
tæmd á hádegi.
Kenwood kynnti SkyCommand kerfið árið 2005 í Bandaríkjunum. Það gerir notendum TS-2000/2000X/B2000 stöðva kleift, að stýra þeim frá bílstöðvum eða handstöðvum á 2 metrum eða 70 cm frá sama framleiðanda, t.d. gerðum TH-D7A/G, TM-D700A eða TM-D710A. Bandarískir leyfishafar fengu heimild stjórnvalda til að nota SkyCommand í lok árs 2006.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
(Viðburðurinn var áður auglýstur þann 17. febrúar s.l., en þurfti að fresta).
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-02-26 21:13:402017-07-21 21:14:44TF3WO verður á 1. sunnudagsopnun vetrarins
SSB hluti ARRL International DX keppninnar 2013 verður haldinn um komandi helgi, 2.-3. mars n.k. Keppnin stendur í tvo sólarhringa, hefst á miðnætti á laugardag (kl. 00:00) og lýkur á sunnudagskvöld kl. 23:59.
Markmiðið er að hafa eins mörg QSO og mögulegt er á þessum tveimur sólarhringum við aðrar amatörstöðvar í Bandaríkjunum og Kanada. Mest er hægt að hafa 63 margfaldara á einu bandi.
Hvert ríki í Bandaríkjunum og hvert fylki í Kanada telja. Öll ríki í Bandaríkjunum gilda þannig sem margfaldarar (nema KH6 og KL7) en “District of Columbia, DC” kemur inn sem margfaldari í keppninni.
Í Kanada gilda fylkin: NB (VE1, 9); NS (VE1); QC (VE2); ON (VE3); MB (VE4); SK (VE5); AB (VE6); BC (VE7); NWT (VE8); NF (VO1); LB (VO2); NU (VYØ); YT (VY1); og PEI (VY2). Frestur til að skila inn keppnisdagbókum er til 2. apríl n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-02-25 21:12:472017-07-21 21:13:35ARRL SSB keppnin 2013 verður um helgina
Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY, stillir Collins 75S-3C viðtækið í fjarskiptaherberginu. Ljósmynd: TF3AM.
Næsta erindi á vetrardagskrá félagsins verður haldið fimmtudaginn 28. febrúar n.k. kl. 20:30 í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Fyrirlesari kvöldsins er Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY og nefnist erindi hans: „Væntanlegt stafrænt sjónvarp á Íslandi”.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að taka frá næstkomandi fimmtudagskvöld og mæta stundvíslega í félagsaðstöðuna. Kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-02-24 21:11:482017-07-21 21:12:41TF3HRY verður með fimmtudagserindið
TF3JB, TF3Y og TF3SA í Skeljanesi um helgina
Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN skoðar „spýtumorslykil” TF3VS samkvæmt forskrift TF3DX á sunnudag.
Skemmtilegir viðburðir voru í boði á vetrardagskrá Í.R.A. helgina 7.-10. mars. Helgin hófst á hefðbundnu fimmtudagserindi, síðan var hraðnámskeið í gær (laugardag) og sunnudagsopnun í morgun, á messutíma. Samtals sóttu yfir 40 félagsmenn þessa þrjá viðburði.
TF3JB flutti fimmtudagserindið þann 7. mars. Það fjallaði um „nýju böndin” svokölluðu, þ.e. 4 metra, 60 metra, 160 metra (1850-1900 kHz) og 630 metra. Þá leiðbeindi TF3Y á upprifjun-1 í notkun Win-Test keppnisdagbókarforritsins laugardaginn 9. mars og loks hafði TF3SA umsjón með 2. sunnudagsopnun vetrarins þann 10. mars, þar sem yfirskriftin var: „Félagar koma með morslykla sína í Skeljanes”.
Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Jónasi Bjarnasyni, TF3JB; Yngva Harðarsyni, TF3Y og Stefáni Arndal, TF3SA, fyrir vel heppnaða viðburði. Ennfremur þakkir til Sigurbjörns Þórs Bjarnasonar, TF3SB, fyrir ljósmyndir.
Skeljanesi 7. mars. TF3JB flutti erindi um nýju böndin. Fjallað var m.a. um tímabundnar sérheimildir á 5 MHz og á 70 MHz, sérheimild um aðgang að tíðnisviðinu 1850-1900 kHz og um nýja tíðnisviðið á 472-479 kHz.
Skeljanesi 9. mars. Frá vinstri: TF3JA og TF3Y. Yngvi leiðbeindi á upprifjun-1 um Win-Test keppnisforritið.
Skeljanesi 10. mars. TF3SG (fremst), TF3SA og TF3SB. Lyklar og pöllur (spaðalyklar) prófaðir.
Skeljanesi 10. mars. TF3SA útskýrði vel hinar mismunandi gerðir Vibroplex spaðalykla.
Skeljanesi 10. mars. TF3SG, TF3JA, TF3HP, TF2WIN, TF3SB, TF3VS, TF3DC, TF3SA og TF3CY.
Skeljanesi 10. mars. Nokkrir af þeim morslyklum sem menn tók með sér í Skeljanes í morgun. Allir sem komu með lykla, útskýrðu tegund og gerð og jafnframt ef einhver saga var sem fylgdi. Stöðin á myndinni er Elecraft K3.
Skeljanesi 10. mars. TF3HP kom með nokkra morslykla, þ.á.m. þennan handmorslykil frá Kent.
TF3SA verður á 2. sunnudagsopnun vetrarins
Stefán Arndal TF3SA við stjórnvölinn á TF3IRA í Skeljanesi í september s.l. Ljósm.: TF3JA.
2. sunnudagsopnun Í.R.A. á yfirstandandi vetrardagskrá verður haldin í félagsaðstöðunni í Skeljanesi sunnudaginn 10. mars n.k. Yfirskriftin er: „Félagar koma með morslykla sína í Skeljanes”. Stefán ætlar að koma með sex morslykla úr eigin safni og skorar á aðra félaga að taka sem flesta lykla með sér. Húsið opnar kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
Handmorslykill frá Kent Engineers, sömu gerðar og notaður er við félagsstöðina TF3IRA.
TF3Y verður á Win-Test námskeiði á laugardag
Yngvi Harðarson, TF3Y.
Í.R.A. gengst fyrir upprifjun-1 á notkun Win-Test keppnisdagbókarforritsins laugardaginn 9. mars n.k. kl. 10:00-12:00. Námskeiðið verður haldið í fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Leiðbeinandi: Yngvi Harðarson, TF3Y.
Félagsmönnum er bent á, að þetta er upplagt tækifæri fyrir fyrir þá, sem e.t.v. þurfa smávægilega upprifjun, eða hafa spurningar um grundvallarþætti í notkun forritsins. Þeir sem lengra eru komnir, myndu e.t.v. frekar mæta á síðari hluta námskeiðsins hjá Yngva (upprifjun-2) sem verður haldinn eftir viku á sama stað, þ.e. laugardaginn 16. mars og verður auglýstur þegar nær dregur.
Stjórn Í.R.A. hvetur áhugasama félaga til að nýta þetta frábæra tækifæri.
Hlekkur á heimasíðu Win-Test: http://www.win-test.com/
Glæsilegur árangur TF2RR, 11. sæti í Evrópu
Á myndinni má sjá hluta af loftnetum Georgs Magnússonar TF2LL sem TF2RR notaði í CQ WW RTTY keppninni 2012. Á turninum eru OptiBeam 18-6 fyrir 40 til 10 metra böndin og OptiBeam 1-80 fyrir 80 metrana. Turninn er 28 metra hár, að stærstum hluta heimasmíðaður.
Þrjár íslenskar stöðvar skiluðu gögnum til keppnisnefndar CQ tímaritsins vegna þátttöku í CQ World-Wide DX RTTY keppninni 2012, sem haldin var helgina 29.-30. september síðastliðinn. Í marshefti CQ tímaritsins 2013 eru birtar niðurstöður úr keppninni. Samkvæmt þeim, náði TF2RR 11. sæti yfir Evrópu og 14. sæti yfir heiminn í sínum keppnisflokki. Að baki þessum árangri voru 2.968 QSO og 3,382,323 heildarstig. Þetta er glæsilegur árangur þegar tekið er tillit til þess hve skilyrði versnuðu síðari dag keppninnar sem endaði með því, að hópurinn ákvað að ljúka þátttöku síðdegis þann dag. Þrátt fyrir allt, er þetta líklega besti árangur sem náðst hefur frá TF stöð í alþjóðlegri RTTY keppni hingað til.
Í keppninni var unnið var frá vel útbúinni stöð TF2LL í Borgarfirði. TF2RR keppti í „fleirmenningsflokki/einn sendir/öll bönd/hámarksafl”. TF2RR (og TF3RR) eru kallmerki Radíóklúbbsins Radíó refir. Klúbbfélagar eru: Ársæll Óskarsson TF3AO, Georg Magnússon TF2LL, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG, Haraldur Þórðarson TF3HP og Jón Gunnar Harðarson TF3PPN, auk Andrésar Þórarinssonar TF3AM, sem nýlega gekk til liðs við refina.
Tvær aðrar TF stöðvar skiluðu inn keppnisgögnum. Það voru TF3G sem var með 120 QSO og 16.940 heildarstig. Gísli keppti í „einmenningsflokki/einn sendir/öll bönd/lágafl”. Þá skilaði TF8SM samanburðargögnum (e. check-log) til keppnisnefndar
Stjórn Í.R.A. óskar Radíó refum innilega til hamingju með frábæran árangur í keppninni, svo og öðrum íslenskum leyfishöfum sem tóku þátt að þessu sinni.
TF5RPD á Vaðlaheiði QRV á ný
TF5RPD notar svarta stangarloftnetið, en loftnetið sem stendur út frá H-staurnum er „Slimminn” sem er varanet endurvarpans. Ljósmynd: Þór Þórisson TF3GW.
Endurvarpi félagsins í Vaðlaheiði, TF5RPD, var gangsettur á ný þann 1. mars. Hann hafði þá verið úti um nokkurn tíma. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, TF3GS,hafði aflgjafinn slegið út. Hann segir að allt virðist nú í góðu lagi, m.a. auðkenni á morsi.
Endurvarpinn hefur annars gengið mjög vel eftir að hann var settur yfir á „stóra” loftnetið sem tengt var á ný í júlí s.l. sumar (sbr. mynd). En við það tækifæri var m.a. skipt um festingar, fæðilínu og tengi.
Stjórn Í.R.A. þakkar Guðmundi Sigurðssyni, TF3GS, fyrir gangsetningu endurvarpans.
Vel heppnaður sunnudagur í Skeljanesi
TF3WO sýnir virkan „Sky Command System II+” í félagsaðstöðunni í Skeljanesi þann 3. mars.
Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, stýrði 1. sunnudagsopnun vetrarins í Skeljanesi þann 3. mars. Yfirskrift viðburðarins var kynning á Kenwood „Sky Command System II+”.
Dagskráin var þrískipt. Fyrst greinargóð PowerPoint kynning, síðan fluttu viðstaddir sig upp í fjarskiptaherbergi TF3IRA og loks niður í stóra sófasettið á 1. hæð þar sem í boði var kaffi og meðlæti. Fram kom m.a., að kerfið er innbyggt í stöðvar af 2000 gerð frá Kenwood og bílstöðvar og handstöðvar frá sama framleiðanda, þannig að ekki þarf að nota (kaupa) sérstakan hugbúnað, aukalega. „Sky Command” gerir eigendum TS-2000 stöðva (og fleiri frá sama framleiðanda) kleift að stýra þeim frá bílstöðvum eða handstöðvum á 2 metrum eða 70 cm, t.d. gerðum TH-D7A/G, TM-D700A eða TM-D710A. Umræðum lauk á settum tíma, upp úr hádegi. Alls mættu 10 félagar í Skeljanes þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í höfuðborginni, úr kallsvæðum TF1, TF2 og TF3.
Stjórn Í.R.A. þakkar Guðjóni Helga Egilssyni, TF3WO, fyrir fróðlegan og vel heppnaðan viðburð.
Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, flutti greinargóða PowerPoint kynningu á „Sky Command System II+”.
Vel heppnað fimmtudagserindi hjá TF3HRY
Henry Arnar Hálfdánarson TF3HRY flutti fimmtudagserindið í þann 28. febrúar. Ljósmynd: TF3LMN.
Vetrardagskrá Í.R.A. var haldið áfram í félagsaðstöðunni fimmtudagskvöldið 18. febrúar. Að þessu sinni kom Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY, í Skeljanes með erindi sem hann nefndi: „Væntanlegt stafrænt sjónvarp á Íslandi”.
Erindið var afar fróðlegt og áhugavert. Henry er hvorutveggja vel heima í fræðunum og áhugasamur um viðfangsefnið. Hann útskýrði vel tæknilegar forsendur og möguleika stafræns sjónvarps umfram hliðræntog þá möguleika sem felast í nýrri tækni. Félagsmenn höfðu margs að spyrja og var greiðlega leyst úr spurningum þeirra. Alls mættu 26 félagsmenn í Skeljanes þetta veðurmilda
fimmtudagskvöld í höfuðborginni.
Stjórn Í.R.A. þakkar Henry Arnari Hálfdánarsyni, TF3HRY, fyrir heppnað erindi og Jóni Svavarssyni, TF3LMN, og Sigurbirni Þóri Bjarnasyni, TF3SB, fyrir ljósmyndir.
Erindi TF3HRY endaði á „vettvangsferð” í útsendingarbifreið RÚV fyrir utan félagsaðstöðuna í Skeljanesi.
TF3JB verður með fimmtudagserindið
Jónas Bjarnason, TF3JB
Næsta erindi á vetrardagskrá félagsins verður haldið fimmtudaginn 7. mars n.k. kl. 20:30 í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Fyrirlesari kvöldsins er Jónas Bjarnason, TF3JB og nefnist erindi hans: „Nýju böndin á 4, 60 og 630 metrum”.
Sérstakar tímabundnar sérheimildir íslenskra radíóamatöra á 5 MHz (60 metrum) og á 70 MHz (4 metrum) voru nýverið endurnýjaðar af Póst- og fjarskiptastofnun fyrir almanaksárin 2013 og 2014. Ennfremur var sérheimild um aðgang að tíðnisviðinu 1850-1900 kHz í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2013, nýverið endurnýjuð. Loks fengum við nýju tíðnisviði úthlutað á 472-479 kHz (630 metrum) þann 16. janúar s.l.
Í erindi sínu, mun Jónas fara stuttlega yfir hvert band fyrir sig. Útskýrt verður m.a. hvað og hvernig menn þurfa að bera sig að til að fá heimildir. Við hverju er að búast hvað varðar útbreiðslu. Einnig verður farið yfir sameiginlega tíðniskiptingu NRRL og Í.R.A. á 60 metra bandinu, ásamt því að veitt verður yfirlit yfir praktíska þætti, s.s. útvegun/smíði sendi-/móttökustöðva og loftneta í þessum tíðnisviðum.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta stundvíslega.
Safnað fyrir RF magnara fyrir TF3IRA
TF3TNT losar gömlu festinguna. Sumir boltarnir snérust í sundur strax og tekið var á þeim.
Eins og fram kom í síðasta mánuði, er áhugi fyrir að félagsstöðin, TF3IRA, eignist nýjan RF magnara.
Nokkrir félagar hafa tekið sig saman og hrint af stað söfnun til að létta undir með félagssjóði og hjálpa
til við að fjármagna kaupin. Markmiðið er að safna allt að 300 þúsund krónum og þá geti félagssjóður
brúað bilið upp á það sem vantar.
Menn sjá fyrir sér að hugsanlega geti 30 félagar verið tilbúnir til að leggja verkefninu lið, til dæmis með 10 þúsund króna framlagi hver, en að sjálfsögðu má framlag hvers og eins vera minna eða meira en sú fjárhæð. Hugmyndin er þegar þar að kemur, að boðað verði til fundar þar sem tekin verði sameiginleg ákvörðun um kaup á tiltekinni tegund og gerð magnara.
Stefán Arndal, TF3SA, opnaði reikning þann 1. febrúar síðastliðinn í þágu söfnunarinnar í Íslandsbanka, fyrir væntanleg framlög. Reikningurinn ber nafnið: „HF magnari fyrir Í.R.A.” og er reikningsnúmerið 0515-14-122257. Kennitalan er á hans nafni, 260831-2839 og hefur hann þegar lagt persónulega inn á þennan reikning 20 þúsund króna framlag.
Stefán er forsvarsmaður söfnunarinnar og vörslumaður fjárins og mun hann svara fyrirspurnum félagsmanna vegna söfnunarinnar. Fyrir liggur staðfesting stjórnar félagsins þess efnis, að félagssjóður muni styrkja kaupin. Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni, höfðu alls 9 félagar gefið samtals 112.345 krónur í söfnunina að kvöldi fimmtudagsins 28. febrúar. Undirritaður hvetur félagsmenn til að styðja þetta góða framtak.
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.
TF3WO verður á 1. sunnudagsopnun vetrarins
Guðjón Helgi Elíasson, TF3WO.
1. sunnudagsopnun á yfirstandandi vetrardagskrá verður haldin sunnudaginn 3. mars n.k. kl. 10:30 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes. Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, mætir í sófaumræður og kynnir Skycommand System II+ frá Kenwood. Húsið verður opnað kl. 10 árdegis og er miðað við að dagskrá verði
tæmd á hádegi.
Kenwood kynnti SkyCommand kerfið árið 2005 í Bandaríkjunum. Það gerir notendum TS-2000/2000X/B2000 stöðva kleift, að stýra þeim frá bílstöðvum eða handstöðvum á 2 metrum eða 70 cm frá sama framleiðanda, t.d. gerðum TH-D7A/G, TM-D700A eða TM-D710A. Bandarískir leyfishafar fengu heimild stjórnvalda til að nota SkyCommand í lok árs 2006.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
(Viðburðurinn var áður auglýstur þann 17. febrúar s.l., en þurfti að fresta).
ARRL SSB keppnin 2013 verður um helgina
SSB hluti ARRL International DX keppninnar 2013 verður haldinn um komandi helgi, 2.-3. mars n.k. Keppnin stendur í tvo sólarhringa, hefst á miðnætti á laugardag (kl. 00:00) og lýkur á sunnudagskvöld kl. 23:59.
Markmiðið er að hafa eins mörg QSO og mögulegt er á þessum tveimur sólarhringum við aðrar amatörstöðvar í Bandaríkjunum og Kanada. Mest er hægt að hafa 63 margfaldara á einu bandi.
Hvert ríki í Bandaríkjunum og hvert fylki í Kanada telja. Öll ríki í Bandaríkjunum gilda þannig sem margfaldarar (nema KH6 og KL7) en “District of Columbia, DC” kemur inn sem margfaldari í keppninni.
Í Kanada gilda fylkin: NB (VE1, 9); NS (VE1); QC (VE2); ON (VE3); MB (VE4); SK (VE5); AB (VE6); BC (VE7); NWT (VE8); NF (VO1); LB (VO2); NU (VYØ); YT (VY1); og PEI (VY2). Frestur til að skila inn keppnisdagbókum er til 2. apríl n.k.
Vefslóð fyrir upplýsingar um keppnina og keppnisreglur: http://www.arrl.org/arrl-dx
TF3HRY verður með fimmtudagserindið