Benedikt Sveinsson TF3CY flutti erindi um RF magnara í Skeljanesi 26. apríl.
Benedikt Sveinsson, TF3CY, flutti fimmtudagserindið þann 26. apríl og fjallaði um RF magnara radíóamatöra. Erindið var fræðandi og skemmtilega flutt. Hann fjallaði m.a. um helsta mun á lampa og transistormögnurum og skýrði frá eigin reynslu í magnarasmíðum og benti mönnum á nytsamar vefslóðir í þeim efnum. Erindi Benedikts var það síðasta í röð erinda á vetrardagskrá félagsins og það
16. á starfsárinu.
Stjórn Í.R.A. þakkar Benedikt Sveinssyni, TF3CY, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi og Jóni Svavarsyni, TF3LMN, fyrir myndatökuna.
Power Point glærur með erindi Benedikts verða fljótlega til reiðu á heimasíðu Í.R.A.
Hluti félagmanna sem sótti erindi Bendikts í Skeljanesi 26. apríl. Ljósm.: TF3LMN.
Hluti þátttakenda í prófi til amatörleyfis í Skeljanesi 28. apríl.
Próf á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis var haldið í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes 28. apríl. Prófið var tvískipt, annarsvegar í undirstöðuatriðum í raffræði og radíótækni og hinsvegar í reglugerð og viðskiptum.
Alls þreyttu átta manns fyrri hluta prófsins og fimm manns þann síðari. Tveir náðu fullnægjandi árangri til G-leyfis í tæknihlutanum og allir fimm náðu fullnægjandi árangri til réttinda í reglugerðahlutanum, þar af þrír til G-leyfis og tveir til N-leyfis.
Prófnefnd Í.R.A. annaðist undirbúning og framkvæmd að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar. Prófið var skriflegt og fór bæði fram á íslensku og ensku. Prófið var að þessu sinni haldið án undanfarandi námskeiðs.
Fulltrúar prófnefndar Í.R.A. á prófstað: Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX formaður, Kristján Benediktsson TF3KB, Kristinn Andersen TF3KX og Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, auk Þórs Þórissonar TF3GW. Fulltrúi Póst- og fjarskiptastofnunnar: Bjarni Sigurðsson séfræðingur. Fulltrúar stjórnar Í.R.A. á prófstað: Jónas Bjarnason TF2JB og Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA.
Prófnefnd Í.R.A. að störfum eftir prófið 28. apríl ásamt fulltrúa Póst- og fjarskipta- stofnunar. Frá vinstri: Kristján Benediktsson TF3KB, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson TF3VS, Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX formaður prófnefndar, Bjarni Sigurðsson sérfræðingur hjá PFS og Kristinn Andersen TF3KX. Ljósmynd: TF2JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-29 13:46:002017-07-16 13:47:17Próf til amatörleyfis fór fram 28. apríl
Með tilvísan til 16. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar Í.R.A. laugardaginn 19. maí 2012. Fundurinn verður haldinn í Snæfelli (áður “Yale”) fundarsal Radisson Blu hótel Sögu, við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt félagslögum.
Samkvæmt ákvæði í 26. gr. laganna þurftu tillögur að lagabreytingum að berast stjórn félagsins fyrir 15. apríl s.l. Með tillögum að breytingum skyldu fylgja skriflegar greinargerðir þar sem gerð var grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntanlegum áhrifum þeirra. Kynning á ákvæði 26. gr. var birt á heimasíðu félagsins og póstlista þann 2. apríl s.l.
Frumvörp til lagabreytinga á aðalfundi 2012 sem bárust stjórn fyrir tilskilinn frest er dreift með þessu aðalfundarboði.
Myndin sýnir hluta nemenda er sátu próf til amatörleyfis fyrir tveimur árum í Fjölbrautaskólanum í Hafnarfirði.
Próf til amatörleyfis verður haldið laugardaginn 28. apríl 2012 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes í Reykjavík. Prófið hefst stundvíslega kl. 10 árdegis. Hafa skal meðferðis blýanta, strokleður, reglustiku og reiknivél sem ekki getur geymt gögn. Önnur gögn eru ekki leyfð.
Prófið er í tveimur hlutum: Amatörpróf í undirstöðuatriðum raffræði og radíótækni. Það er í 30 liðum. Lágmarkseinkunn 4,0 gefur rétt til N-leyfis og 6,0 til G-leyfis. Próf í reglugerð og viðskiptum: Það er í 20 liðum. Lágmarkseinkunn 6,0 gefur rétt til G-leyfis og 4,0 til N-leyfis. Prófnefnd Í.R.A. semur prófin (þó ekki próf í reglugerð og viðskiptum) en annast framkvæmd prófhalds, að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.
Að jafnaði eru prófin dæmd og bráðabirgðaeinkunn gefin í framhaldi af prófhaldinu, gjarnan 2-3 klst síðar. Þá fer fram prófsýning í Skeljanesi ef aðstæður og þátttaka leyfir. Endanleg staðfesting niðurstöðu liggur hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Standast þarf báða hluta prófs til leyfis. Árangur í hvoru prófi stendur framvegis, óháð gengi í hinu prófinu.
Fyrirspurnum má beina til Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX, formanns prófnefndar. Veffang: villik(hjá)hi.is
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-24 13:42:512017-07-16 13:43:43Próf til amatörleyfis verður haldið 28. apríl
Síðasta erindið á yfirstandandi vetrardagskrá Í.R.A. verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi fimmtudaginn26. apríl næstkomandi. Benedikt Sveinsson, TF3CY, mun fjalla um RF magnara
fyrir tíðnir radíóamatöra. Í erindinu mun hann m.a. fjalla um magnara sem búnir eru lampaútgangi og bera saman við magnara sem búnir eru transistorútgangi, auk þess að koma inn á heimasmíðar.
Erindið hefst stundvíslega kl. 20:30 og hvetur stjórn Í.R.A. félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-22 13:40:592017-07-16 13:42:40Benedikt TF3CY verður með fimmtudagserindið
Ari Þ. Jóhannesson TF3ARI við uppsetningu loftnets fyrir TF8RPH á Garðskaga 21. apríl. Ljósm.: TF8SM.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI og Sigurður Smári Hreinsson, TF8SM, gerðu ferð suður á Garðskaga 21. apríl settu upp loftnet og tengdu Kenwood endurvarpsstöð félagsins.
Kallmerkið er TF8RPH. Endurvarpinn tekur á móti á 145.125 MHz og sendir út á 145.725 MHz. Þessi endurvarpi er frábrugðinn öðrum endurvörpum félagsins að því leyti, að með sendingunni inn á hann þarf að fylgja sérstakur tónkóði, DCS 023, svo hann opnist. Þetta fyrirkomulag verður notað til prufu til að byrja með. Fljótlega verður skipt yfir á CTCSS læsingu, en þess má geta að nánast allar verksmiðjuframleiddar metrabylgjustöðvar fyrir radíóamatöra undanfarna þrjá áratugi eru búnar tónkóðun af því tagi. (Ath. að hægt er að hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að afkóða sendingar í móttöku).
Endurvarpinn er af gerðinni Kenwood TKR-750, sendir út 25W FM á “wideband” mótun. Til umræðu er, að skipta yfir á “narrowband” mótun. Loftnetið er OPEC UVS-300 húsloftnet sem er u.þ.b. 12 metra yfir jörðu.
Stöðin sendir út auðkenni á morsi á 30 mínútna fresti.
Um er að ræða sérstakt tilraunaverkefni á vegum félagsins og er miðað við að endurvarpinn verði a.m.k. QRV það sem eftir lifir af þessum mánuði og út næsta mánuð (maí). Þá verður tekin ákvörðun um hvort verður af framtíðarstaðsetningu á þessum stað. Sjá nánar umfjöllun í 2. tbl. CQ TF sem er væntanlegt í næstu viku.
Um leið og stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að prófa nýja endurvarpann, eru þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI og Sigurði Smára Hreinssyni, TF8SM, færar þakkir fyrir að hafa veg og vanda af uppsetningu stöðvarinnar. Bestu þakkir einnig til Páls B. Jónssonar, TF8PB, fyrir að lána loftnet fyrir TF8RPH.
Ari Þórólfur gengur frá tengingu TKR-750 við “Cavity” síurnar sex frá Decibel Products. Ljósmynd: TF8SM.
Loftnet TF8RPH er staðsett á turninum við vitavarðarhúsið. Myndin var tekin á Vita- og vitaskipahelginni 2010.
Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson TF3VS fjallaði um undirstöðuatriði í samskiptasiðum radíóamatöra.
Í.R.A. efndi til sérstaks fræðslukvölds í Skeljanesi miðvikudaginn 18. apríl. Dagskráin var miðuð við þarfir þeirra sem stefna að því að gangast undir próf til amatörleyfis þann 28. apríl n.k. Undirbúningur og framkvæmd var í höndum þeirra Vilhjálms Þórs Kjartanssonar,TF3DX og Vilhjálms Ívars Sigurjónssonar, TF3VS, prófnefndarmanna.
Vilhjálmur Ívar flutti erindi er nefndist Réttindi, ábyrgð og siði radíóamatöra. Það var flutt með tilvísan til rits þeirra J. Devoldere, ON4UN og M. Demeuleneere, ON4WW, Siðfræði og samskiptasiðir radíóamatöra, sem Vilhjálmur þýddi á íslensku og kom út á vegum félagsins árið 2009.
Vilhjálmur Þór flutti erindi er nefndist Mótun og stilling hennar, ágrip af fræðum og sýnikennsla. Það var flutt, með tilvísan til samantektar Vilhjálms um Merki og mótun sem kynnt var vorið 2011 (og vistuð er á vefsvæði prófnefndar á heimasíðu) svo og framlagðrar greinar eftir hann um Afl og truflanir sem birtist í septemberhefti CQ TF 2005. Að loknum erindisflutningi, fór Vilhjálmur yfir verklega þátt í stillingu mótunar á SSB. Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá Yaesu FT-840 og Icom IC-718 100W sendi-/móttökustöðvar ásamt aukabúnaði sem notaður var við sýnikennsluna.
Sjórn Í.R.A. þakkar þeim Vilhjálmi Þór Kjartanssyni, TF3DX, formanni prófnefndar og Vilhjálmi Ívari Sigurjónssyni, TF3VS, prófnefndarmanni, fyrir vel heppnuð og áhugaverð erindi og óskar væntanlegum próftökum góðs gengis þann 28. apríl n.k.
Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX fjallaði fræðilega og verklega um umfjöllunarefnið “Merki og mótun”.
Sýnikennsla Vilhjálms var bæði áhugaverð og lífleg og tóku viðstaddir virkan þátt í prófunum (sbr. mynd).
Ákveðið hefur verið að félagsaðstaða Í.R.A. við Skeljanes verði lokuð fimmtudaginn 19. apríl n.k. sem er sumardagurinn fyrsti. Næsti opnunardagur félagsaðstöðunnar verður fimmtudaginn 26. apríl, en þá lýkur vetrardagskrá félagsins á yfirstandandi starfsári með erindi Benedikts Sveinssonar, TF3CY, um QRO málefni (sem verður nánar kynnt síðar).
Stjórn Í.R.A. óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-15 13:29:392017-07-16 13:30:08Lokað í Skeljanesi fimmtudaginn 19. apríl
Næstkomandi miðvikudagskvöld, 18. apríl kl. 20:00 verður haldið fræðslukvöld fyrir verðandi próftaka í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes. Allir eru hvattir til að mæta, sérstaklega þeir sem ekki hafa áður fengið umfjöllun um þetta efni. Dagskrá er eftirfarandi:
1. Réttindi, ábyrgð og siðir radíóamatöra, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS.
2. Mótun og stilling hennar, ágrip af fræðum og sýnikennsla, Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX.
Fræðileg umfjöllun verður knappari en vera myndi á námskeiði, svo gott væri ef þátttakendur væru
búnir að kynna sér og prenta út skjalið Merki og mótun, sem er að finna á heimasíðu Í.R.A.
Vefslóð: http://www.ira.is/namsefni/
Einnig verður kannaður áhugi þátttakenda á að fá 1-2 dæmakvöld í vikunni fyrir próf.
Mælingahús háloftadeildar Raunvísindastofnunar H.Í. í Leirvogi. Mælingar hafa verið gerðar frá 1957.
Töluverðar truflanir hafa verið í segulsviðinu s.l. sólarhring, 12.-13. apríl, sbr. meðfylgjandi línurit. Á línuritunum má sjá stöðuna frá kl. 10 árdegis (í gær) til kl. 10 árdegis í dag, 13. apríl. Truflanirnar hófust upp úr kl. 16 í gær (12. apríl). Skilyrðaspár benda til að þær geti haldið eitthvað áfram.
Efsta línuritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla (nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 346° merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 346° til austurs eða 14° til vesturs (360-346 = 14). Meðalmisvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 16° V í þessu dæmi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-13 13:25:222017-07-16 13:26:21Truflanir í segulsviðinu
Erindi Bendikts Sveinssonar, TF3CY, sem halda átti í kvöld, fimmtudaginn 12. apríl kl. 20:30 er hér með frestað af óviðráðanlegum ástæðum um 2 vikur til fimmtudagsins 26. apríl n.k. kl. 20:30.
Opið hús verður í Skeljanesi í kvöld frá kl. 20-22:00 og kaffi á könnunni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-12 13:24:432017-07-16 13:25:15Fimmtudagserindi TF3CY í dag frestast
Hluti nemenda sem sat próf til amatörleyfis í félagsaðstöðunni við Skeljanes í maí 2011.
Próf til amatörleyfis verður haldið laugardaginn 28. apríl 2012 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes í Reykjavík. Prófið hefst stundvíslega kl. 10 árdegis. Hafa skal meðferðis blýanta, strokleður, reglustiku og reiknivél sem ekki getur geymt gögn. Önnur gögn eru ekki leyfð.
Prófið er í tveimur hlutum: Amatörpróf í undirstöðuatriðum raffræði og radíótækni. Það er í 30 liðum. Lágmarkseinkunn 4,0 gefur rétt til N-leyfis og 6,0 til G-leyfis. Próf í reglugerð og viðskiptum: Það er í 20 liðum. Lágmarkseinkunn 6,0 gefur rétt til G-leyfis og 4,0 til N-leyfis. Prófnefnd Í.R.A. semur prófin og annast framkvæmd prófhalds, að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.
Að jafnaði eru prófin dæmd og bráðabirgðaeinkunn gefin í framhaldi af prófhaldinu, gjarnan 2 – 3 klst síðar. Þá fer fram prófsýning í Skeljanesi ef aðstæður og þátttaka leyfir. Endanleg staðfesting niðurstöðu liggur hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Standast þarf báða hluta prófs til leyfis. Árangur í hvoru prófi stendur framvegis, óháð gengi í hinu prófinu.
Fyrirspurnum má beina til Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX, formanns prófnefndar. Veffang: villik(hjá)hi.is
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-04-11 13:23:122017-07-16 13:24:32Próf til amatörleyfis verður haldið 28. april
Vel heppnað fimmtudagserindi TF3CY
Benedikt Sveinsson TF3CY flutti erindi um RF magnara í Skeljanesi 26. apríl.
Benedikt Sveinsson, TF3CY, flutti fimmtudagserindið þann 26. apríl og fjallaði um RF magnara radíóamatöra. Erindið var fræðandi og skemmtilega flutt. Hann fjallaði m.a. um helsta mun á lampa og transistormögnurum og skýrði frá eigin reynslu í magnarasmíðum og benti mönnum á nytsamar vefslóðir í þeim efnum. Erindi Benedikts var það síðasta í röð erinda á vetrardagskrá félagsins og það
16. á starfsárinu.
Stjórn Í.R.A. þakkar Benedikt Sveinssyni, TF3CY, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi og Jóni Svavarsyni, TF3LMN, fyrir myndatökuna.
Power Point glærur með erindi Benedikts verða fljótlega til reiðu á heimasíðu Í.R.A.
Hluti félagmanna sem sótti erindi Bendikts í Skeljanesi 26. apríl. Ljósm.: TF3LMN.
Próf til amatörleyfis fór fram 28. apríl
Hluti þátttakenda í prófi til amatörleyfis í Skeljanesi 28. apríl.
Próf á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis var haldið í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes 28. apríl. Prófið var tvískipt, annarsvegar í undirstöðuatriðum í raffræði og radíótækni og hinsvegar í reglugerð og viðskiptum.
Alls þreyttu átta manns fyrri hluta prófsins og fimm manns þann síðari. Tveir náðu fullnægjandi árangri til G-leyfis í tæknihlutanum og allir fimm náðu fullnægjandi árangri til réttinda í reglugerðahlutanum, þar af þrír til G-leyfis og tveir til N-leyfis.
Prófnefnd Í.R.A. annaðist undirbúning og framkvæmd að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar. Prófið var skriflegt og fór bæði fram á íslensku og ensku. Prófið var að þessu sinni haldið án undanfarandi námskeiðs.
Fulltrúar prófnefndar Í.R.A. á prófstað: Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX formaður, Kristján Benediktsson TF3KB, Kristinn Andersen TF3KX og Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, auk Þórs Þórissonar TF3GW. Fulltrúi Póst- og fjarskiptastofnunnar: Bjarni Sigurðsson séfræðingur. Fulltrúar stjórnar Í.R.A. á prófstað: Jónas Bjarnason TF2JB og Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA.
Prófnefnd Í.R.A. að störfum eftir prófið 28. apríl ásamt fulltrúa Póst- og fjarskipta-
stofnunar. Frá vinstri: Kristján Benediktsson TF3KB, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson
TF3VS, Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX formaður prófnefndar, Bjarni Sigurðsson
sérfræðingur hjá PFS og Kristinn Andersen TF3KX. Ljósmynd: TF2JB.
Boðun aðalfundar Í.R.A. 19. maí 2012
Með tilvísan til 16. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar Í.R.A. laugardaginn 19. maí 2012. Fundurinn verður haldinn í Snæfelli (áður “Yale”) fundarsal Radisson Blu hótel Sögu, við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt félagslögum.
Samkvæmt ákvæði í 26. gr. laganna þurftu tillögur að lagabreytingum að berast stjórn félagsins fyrir 15. apríl s.l. Með tillögum að breytingum skyldu fylgja skriflegar greinargerðir þar sem gerð var grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntanlegum áhrifum þeirra. Kynning á ákvæði 26. gr. var birt á heimasíðu félagsins og póstlista þann 2. apríl s.l.
Frumvörp til lagabreytinga á aðalfundi 2012 sem bárust stjórn fyrir tilskilinn frest er dreift með þessu aðalfundarboði.
Ofangreindu til staðfestingar,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Próf til amatörleyfis verður haldið 28. apríl
Myndin sýnir hluta nemenda er sátu próf til amatörleyfis fyrir tveimur árum í Fjölbrautaskólanum í Hafnarfirði.
Próf til amatörleyfis verður haldið laugardaginn 28. apríl 2012 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes í Reykjavík. Prófið hefst stundvíslega kl. 10 árdegis. Hafa skal meðferðis blýanta, strokleður, reglustiku og reiknivél sem ekki getur geymt gögn. Önnur gögn eru ekki leyfð.
Prófið er í tveimur hlutum: Amatörpróf í undirstöðuatriðum raffræði og radíótækni. Það er í 30 liðum. Lágmarkseinkunn 4,0 gefur rétt til N-leyfis og 6,0 til G-leyfis. Próf í reglugerð og viðskiptum: Það er í 20 liðum. Lágmarkseinkunn 6,0 gefur rétt til G-leyfis og 4,0 til N-leyfis. Prófnefnd Í.R.A. semur prófin (þó ekki próf í reglugerð og viðskiptum) en annast framkvæmd prófhalds, að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.
Að jafnaði eru prófin dæmd og bráðabirgðaeinkunn gefin í framhaldi af prófhaldinu, gjarnan 2-3 klst síðar. Þá fer fram prófsýning í Skeljanesi ef aðstæður og þátttaka leyfir. Endanleg staðfesting niðurstöðu liggur hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Standast þarf báða hluta prófs til leyfis. Árangur í hvoru prófi stendur framvegis, óháð gengi í hinu prófinu.
Fyrirspurnum má beina til Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX, formanns prófnefndar. Veffang: villik(hjá)hi.is
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Benedikt TF3CY verður með fimmtudagserindið
Benedikt Sveinsson, TF3T
Síðasta erindið á yfirstandandi vetrardagskrá Í.R.A. verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi. Benedikt Sveinsson, TF3CY, mun fjalla um RF magnara
fyrir tíðnir radíóamatöra. Í erindinu mun hann m.a. fjalla um magnara sem búnir eru lampaútgangi og bera saman við magnara sem búnir eru transistorútgangi, auk þess að koma inn á heimasmíðar.
Erindið hefst stundvíslega kl. 20:30 og hvetur stjórn Í.R.A. félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.
TF8RPH – nýr endurvarpi QRV á Garðskaga
Ari Þ. Jóhannesson TF3ARI við uppsetningu loftnets fyrir TF8RPH á Garðskaga 21. apríl. Ljósm.: TF8SM.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI og Sigurður Smári Hreinsson, TF8SM, gerðu ferð suður á Garðskaga 21. apríl settu upp loftnet og tengdu Kenwood endurvarpsstöð félagsins.
Kallmerkið er TF8RPH. Endurvarpinn tekur á móti á 145.125 MHz og sendir út á 145.725 MHz. Þessi endurvarpi er frábrugðinn öðrum endurvörpum félagsins að því leyti, að með sendingunni inn á hann þarf að fylgja sérstakur tónkóði, DCS 023, svo hann opnist. Þetta fyrirkomulag verður notað til prufu til að byrja með. Fljótlega verður skipt yfir á CTCSS læsingu, en þess má geta að nánast allar verksmiðjuframleiddar metrabylgjustöðvar fyrir radíóamatöra undanfarna þrjá áratugi eru búnar tónkóðun af því tagi. (Ath. að hægt er að hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að afkóða sendingar í móttöku).
Endurvarpinn er af gerðinni Kenwood TKR-750, sendir út 25W FM á “wideband” mótun. Til umræðu er, að skipta yfir á “narrowband” mótun. Loftnetið er OPEC UVS-300 húsloftnet sem er u.þ.b. 12 metra yfir jörðu.
Stöðin sendir út auðkenni á morsi á 30 mínútna fresti.
Um er að ræða sérstakt tilraunaverkefni á vegum félagsins og er miðað við að endurvarpinn verði a.m.k. QRV það sem eftir lifir af þessum mánuði og út næsta mánuð (maí). Þá verður tekin ákvörðun um hvort verður af framtíðarstaðsetningu á þessum stað. Sjá nánar umfjöllun í 2. tbl. CQ TF sem er væntanlegt í næstu viku.
Um leið og stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að prófa nýja endurvarpann, eru þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI og Sigurði Smára Hreinssyni, TF8SM, færar þakkir fyrir að hafa veg og vanda af uppsetningu stöðvarinnar. Bestu þakkir einnig til Páls B. Jónssonar, TF8PB, fyrir að lána loftnet fyrir TF8RPH.
Ari Þórólfur gengur frá tengingu TKR-750 við “Cavity” síurnar sex frá Decibel Products. Ljósmynd: TF8SM.
Loftnet TF8RPH er staðsett á turninum við vitavarðarhúsið. Myndin var tekin á Vita- og vitaskipahelginni 2010.
Vel heppnað fræðslukvöld í Skeljanesi
Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson TF3VS fjallaði um undirstöðuatriði í samskiptasiðum radíóamatöra.
Í.R.A. efndi til sérstaks fræðslukvölds í Skeljanesi miðvikudaginn 18. apríl. Dagskráin var miðuð við þarfir þeirra sem stefna að því að gangast undir próf til amatörleyfis þann 28. apríl n.k. Undirbúningur og framkvæmd var í höndum þeirra Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX og Vilhjálms Ívars Sigurjónssonar, TF3VS, prófnefndarmanna.
Vilhjálmur Ívar flutti erindi er nefndist Réttindi, ábyrgð og siði radíóamatöra. Það var flutt með tilvísan til rits þeirra J. Devoldere, ON4UN og M. Demeuleneere, ON4WW, Siðfræði og samskiptasiðir radíóamatöra, sem Vilhjálmur þýddi á íslensku og kom út á vegum félagsins árið 2009.
Vilhjálmur Þór flutti erindi er nefndist Mótun og stilling hennar, ágrip af fræðum og sýnikennsla. Það var flutt, með tilvísan til samantektar Vilhjálms um Merki og mótun sem kynnt var vorið 2011 (og vistuð er á vefsvæði prófnefndar á heimasíðu) svo og framlagðrar greinar eftir hann um Afl og truflanir sem birtist í septemberhefti CQ TF 2005. Að loknum erindisflutningi, fór Vilhjálmur yfir verklega þátt í stillingu mótunar á SSB. Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá Yaesu FT-840 og Icom IC-718 100W sendi-/móttökustöðvar ásamt aukabúnaði sem notaður var við sýnikennsluna.
Sjórn Í.R.A. þakkar þeim Vilhjálmi Þór Kjartanssyni, TF3DX, formanni prófnefndar og Vilhjálmi Ívari Sigurjónssyni, TF3VS, prófnefndarmanni, fyrir vel heppnuð og áhugaverð erindi og óskar væntanlegum próftökum góðs gengis þann 28. apríl n.k.
Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX fjallaði fræðilega og verklega um umfjöllunarefnið “Merki og mótun”.
Sýnikennsla Vilhjálms var bæði áhugaverð og lífleg og tóku viðstaddir virkan þátt í prófunum (sbr. mynd).
Lokað í Skeljanesi fimmtudaginn 19. apríl
Ákveðið hefur verið að félagsaðstaða Í.R.A. við Skeljanes verði lokuð fimmtudaginn 19. apríl n.k. sem er sumardagurinn fyrsti. Næsti opnunardagur félagsaðstöðunnar verður fimmtudaginn 26. apríl, en þá lýkur vetrardagskrá félagsins á yfirstandandi starfsári með erindi Benedikts Sveinssonar, TF3CY, um QRO málefni (sem verður nánar kynnt síðar).
Stjórn Í.R.A. óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.
Fræðslukvöld fyrir verðandi próftaka 18. apríl.
Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX
Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS
Næstkomandi miðvikudagskvöld, 18. apríl kl. 20:00 verður haldið fræðslukvöld fyrir verðandi próftaka í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes. Allir eru hvattir til að mæta, sérstaklega þeir sem ekki hafa áður fengið umfjöllun um þetta efni. Dagskrá er eftirfarandi:
1. Réttindi, ábyrgð og siðir radíóamatöra, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS.
2. Mótun og stilling hennar, ágrip af fræðum og sýnikennsla, Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX.
Fræðileg umfjöllun verður knappari en vera myndi á námskeiði, svo gott væri ef þátttakendur væru
búnir að kynna sér og prenta út skjalið Merki og mótun, sem er að finna á heimasíðu Í.R.A.
Vefslóð: http://www.ira.is/namsefni/
Einnig verður kannaður áhugi þátttakenda á að fá 1-2 dæmakvöld í vikunni fyrir próf.
F.h. stjórnar,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Truflanir í segulsviðinu
Mælingahús háloftadeildar Raunvísindastofnunar H.Í. í Leirvogi. Mælingar hafa verið gerðar frá 1957.
Töluverðar truflanir hafa verið í segulsviðinu s.l. sólarhring, 12.-13. apríl, sbr. meðfylgjandi línurit. Á línuritunum má sjá stöðuna frá kl. 10 árdegis (í gær) til kl. 10 árdegis í dag, 13. apríl. Truflanirnar hófust upp úr kl. 16 í gær (12. apríl). Skilyrðaspár benda til að þær geti haldið eitthvað áfram.
Efsta línuritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla (nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 346° merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 346° til austurs eða 14° til vesturs (360-346 = 14). Meðalmisvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 16° V í þessu dæmi.
Gögn eru endurnýjuð á tíu mínútna fresti. Sjá nánar vefslóð: http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
Fimmtudagserindi TF3CY í dag frestast
Benedikt Sveinsson, TF3T
Erindi Bendikts Sveinssonar, TF3CY, sem halda átti í kvöld, fimmtudaginn 12. apríl kl. 20:30 er hér með frestað af óviðráðanlegum ástæðum um 2 vikur til fimmtudagsins 26. apríl n.k. kl. 20:30.
Opið hús verður í Skeljanesi í kvöld frá kl. 20-22:00 og kaffi á könnunni.
Próf til amatörleyfis verður haldið 28. april
Hluti nemenda sem sat próf til amatörleyfis í félagsaðstöðunni við Skeljanes í maí 2011.
Próf til amatörleyfis verður haldið laugardaginn 28. apríl 2012 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes í Reykjavík. Prófið hefst stundvíslega kl. 10 árdegis. Hafa skal meðferðis blýanta, strokleður, reglustiku og reiknivél sem ekki getur geymt gögn. Önnur gögn eru ekki leyfð.
Prófið er í tveimur hlutum: Amatörpróf í undirstöðuatriðum raffræði og radíótækni. Það er í 30 liðum. Lágmarkseinkunn 4,0 gefur rétt til N-leyfis og 6,0 til G-leyfis. Próf í reglugerð og viðskiptum: Það er í 20 liðum. Lágmarkseinkunn 6,0 gefur rétt til G-leyfis og 4,0 til N-leyfis. Prófnefnd Í.R.A. semur prófin og annast framkvæmd prófhalds, að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.
Að jafnaði eru prófin dæmd og bráðabirgðaeinkunn gefin í framhaldi af prófhaldinu, gjarnan 2 – 3 klst síðar. Þá fer fram prófsýning í Skeljanesi ef aðstæður og þátttaka leyfir. Endanleg staðfesting niðurstöðu liggur hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Standast þarf báða hluta prófs til leyfis. Árangur í hvoru prófi stendur framvegis, óháð gengi í hinu prófinu.
Fyrirspurnum má beina til Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX, formanns prófnefndar. Veffang: villik(hjá)hi.is
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Félagsheimili ÍRA