Félagsmaður okkar, Gunnar Leifur Guðmundsson, TF3LG, lést á Skírdag þann 1. apríl s.l. Fregnir þessa efnis bárust félaginu frá bróðursyni hans, Guðmundi Gunnarssyni, TF3GG. Leifur varð tæplega 82 ára að aldri.
Leifur var handhafi leyfisbréfs nr. 17 og félagsmaður í Í.R.A. um áratuga skeið. Hann starfaði fyrir félagið og sat m.a. í prófnefnd Í.R.A. í nær tvo áratugi, þ.e. frá 1979-1997. Þá sat í varastjórn félagsins í tvö tímabil, þ.e. frá 1979-1980 og 1980-1981. Leifur var virkur radíóamatör þar til síðustu ár er heilsa hans leyfði ekki virka þátttöku.
Stjórn Í.R.A. sendir fjölskyldu hans hugheilar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans.
Með tilvísan til 16. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar Í.R.A. laugardaginn 22. maí 2010. Fundurinn verður haldinn í Yale fundarsal Radisson Blu hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt 18. gr. félagslaga.
Bent er á, að samkvæmt ákvæði í 26. gr. laganna þurfa tillögur að lagabreytingum að berast stjórn félagsins fyrir 15. apríl n.k. Með tillögum að breytingum skal fylgja skrifleg greinargerð þar sem gerð er grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntanlegum áhrifum þeirra
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2010-04-02 20:20:522017-07-25 10:58:49Aðalfundur Í.R.A. verður haldinn laugardaginn 22. maí n.k.
Félagið Íslenskir Radíóamatörar heldur í samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun próf til amatörréttinda laugardaginn 10. apríl. Haldið verður bæði próf í rafmagns- og radíótækni svo og viðskiptaháttum- og reglum.
Prófið verður haldið í Flensborgarskóla og hefst kl. 10:00 að morgni. Fyrst verður rafmagns- og radíótæknihlutinn lagður fyrir svo prófið í viðskiptaháttum- og reglum.
Áhugsamir eru beðnir um að láta Hrafnkel TF3HR (he@klaki.net) vita af væntanlegri þátttöku sinni.
Í aprílhefti tímaritsins “CQ Ham Radio Japan” 2010 er 4 blaðsíðna umfjöllun um Vilhjálm Þór Kjartansson, TF3DX og virkni hans á 160 metrunum, m.a. um virkni sem TF3DX/M og mynd af QSL korti til JA7FUJ sem Vilhjálmur sendi til staðfestingar sambandi þeirra sem hann hafði úr bílnum. Greinin er að stofni til lík þeirri sem birtist í 1. tbl. CQ TF 2010, en ljósmyndir eru fleiri ásamt mynd af XYL; Guðrúnu, TF3GD.
Þar á eftir fylgir samantekt (eftir Vilhjálm) sem skýrir hversu erfitt er í raun að hafa samband á milli TF og JA á 160 metrunum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2010-03-29 16:05:332017-07-24 22:51:16Umfjöllun um TF3DX í aprílblaði “CQ Ham Radio Japan”
Um þessa helgi fer fram CQ WPX SSB keppninn. Ekki varð úr að ÍRA tæki þátt í keppninni að þessu sinni. TF3SG þakkar öllum þeim sem sýndu áhuga á að taka þátt í keppninni fyrir hönd ÍRA. Þeim sem vilja koma og jafnvel taka þátt í keppninni frá ÍRA er bennt á að hafa samband við stöðvarstjóra. Sveinn, TF3SNN er stöðvarstjóri.
Minni á morsnámskeið í kvöld klukkan 19.00 með Axel Sölvasyni, TF3AX. Áherslan er á að hlusta og taka á móti morsi og skrifa niður stafi. Námskeiði er hugsað fyrir þá sem eru að byrja að læra mors og fyrir þá sem vilja ná færni í að taka á móti morsi og skrifa niður. Námskeiðið er öllum opið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3SG - Guðmundur Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3SG - Guðmundur Sveinsson2010-03-25 16:04:372017-07-24 22:52:31Morsnámskeið með Axel í kvöld
Skilafrestur efnis í aprílhefti CQ TF er nk. sunnudag, 28. marz. Lesendur blaðsins eru hvattir til að senda greinar, myndir eða ábendingar um áhugavert efni til ritstjóra.
Í samráði við Axel Sölvason, TF3AX hefur verið ákveðið að framlengja og halda áfram með morsnámskeið. Áherslan verður á að hlusta og skrifa niður stafina og hefst fyrsta kenslu-stundin næstkomandi fimmtudag 25. mars, klukkan 19.00. Námskeiðið er öllum opið og verður sniðið að þeim sem mæta, fullt tillit verður tekið til byrjenda og þeim veitt kennsla og leiðsögn. Þeir byrjendur sem þess óska geta fengið lánaða æfingalykla. Gert er ráð fyrir að kennsla fari fram sunnudagsmorgna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3SG - Guðmundur Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3SG - Guðmundur Sveinsson2010-03-21 16:03:412017-07-24 22:52:31Morsnámskeið í mars og apríl
Í.R.A. mun taka þátt í CQ WPX SSB um næstu helgi frá Í.R.A. Kallmerki Í.R.A. verður TF3W. Keppnin hefst klukkan 00.00 þann 27. mars. Allir félagar eru hvattir til þess að koma og taka þátt í keppninni eða bara fylgjast með. Stefnt er að því að byrja á 80m og færa sig niður á 20m þegar þeir opnast. Það verður sannarlega fjör að taka þátt af fullu krafti með Steppir og kvartbylgju vertikal á 80m. Vinsamlegast sendið Benedikt, TF3CY eða mér póst um fyrirhugaða þátttöku.
73
Guðmundur, TF3SG
Comment frá TF3CY
Ég vill hvetja alla sem mögulega geta tekið þátt, þó ekki nema í klukkutíma að melda sig. Það geta allir tekið þátt og þetta er frábært tækifæri að prófa þáttöku í svona keppni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3SG - Guðmundur Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3SG - Guðmundur Sveinsson2010-03-21 16:03:022017-07-24 22:52:31Þátttaka í CQ WPX SSB um næstu helgi
Myndin er frá vinnu við SteppIR loftnet félagsins 1. nóvember s.l. Ljósm. TF2JB.
Laugardaginn 20. mars 2010 kl. 10 árdegis var mættur hópur félagsmanna í félagsaðstöðuna við Skeljanes. Verkefni dagsins var að koma upp á ný SteppIR Yagi loftneti félagsins eftir viðgerð, en eins og menn muna brotnuðu festingar loftnetsins og það féll til jarðar þann 20. janúar s.l. Þessir voru mættir: Ársæll TF3AO, Bjarni TF3BG, Óskar TF3DC, Benedikt TF3CY, Erling TF3EE, Halldór TF3GC, Guðlaugur TF8GX, Haraldur TF3HP, Guðmundur Ingi TF3IG, Jón Þóroddur TF3JA, Jónas TF2JB, Jón Gunnar TF3PPN, Guðmundur TF3SG og Sveinn Bragi TF3SNN. Vinnan við samsetningu loftnetsins og uppsetningu gekk að óskum (en alltaf eru náttúrlega einhver smáatriði sem tefja…). Það flýtti þó verulega fyrir að Gulli, TF8GX, fékk lánaðan lyftubíl. Loftnetið var komið upp, tengt og tilbúið til notkunar klukkan 12:50. Bestu þakkir til allra sem lögðu hönd á plóginn.
Frá vinstri: TF3CY, TF3SNN og TF3PPN.
Frá vinstri: TF3GC, TF3DC, TF3PPN og TF8GX auk TF3AO.
Frá vinstri: TF3DC, TF3GB, TF3GC, TF3CY, TF3PPN, TF3AO og TF3SNN.
loftnetið á leið á sinn stað upp á turninum.
TF3PPN og TF8GX veifa til marks um að allt sé í góðu gengi.
Tengingarvinnan tók nokkurn tíma.
Loftnetið klárt, verkefninu lokið og karfan á leið niður. Þá var klukkan 12:50.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2010-03-20 15:59:152017-07-24 22:51:16SteppIR loftnetið komið upp á ný og virkar vel.
Fyrstu SteppIR elementin til lagfæringar. Elementið lengst til vinstri er mest skaddað af þessum. Ljósmynd: TF3SNN.
Það staðfestist hér með að farið verður í uppsetningu á SteppIR Yagi-loftneti félagsins laugardaginn, 20. mars, kl. 10 árdegis. Veðurspáin virðist vera nokkuð góð – við gætum átt von á skúrum – en á móti kemur verkið verður léttara en á horfðist vegna þess að við munum fá körfubíl á staðinn.
Sveinn Bragi Sveinsson, TF3SNN, hefur nú lokið við viðgerð loftnetsins og hann verður klár með nýjar festingar og það sem til þarf. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að hjálpa til eru velkomnir. Heitt verður á könnunni og eins og áður hefur komið fram verða ný vínarbrauð frá Geirabakaríi í Borgarnesi á borðum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2010-03-18 15:58:092017-07-24 22:51:17SteppIR loftnetið verður sett upp á laugardag…
Af tilefni ferðar 4×4 klúbbsins þvert yfir hálendi Íslands hef ég sett upp vefhlustun á tíðninni 3,637MHz. Viðtækið er statt í Grímsnesinu og sendir móttekna hljóðið yfir 3G nettengingu út á Internetið.
Leifur Guðmundsson, TF3LG, er látinn.
Félagsmaður okkar, Gunnar Leifur Guðmundsson, TF3LG, lést á Skírdag þann 1. apríl s.l. Fregnir þessa efnis bárust félaginu frá bróðursyni hans, Guðmundi Gunnarssyni, TF3GG. Leifur varð tæplega 82 ára að aldri.
Leifur var handhafi leyfisbréfs nr. 17 og félagsmaður í Í.R.A. um áratuga skeið. Hann starfaði fyrir félagið og sat m.a. í prófnefnd Í.R.A. í nær tvo áratugi, þ.e. frá 1979-1997. Þá sat í varastjórn félagsins í tvö tímabil, þ.e. frá 1979-1980 og 1980-1981. Leifur var virkur radíóamatör þar til síðustu ár er heilsa hans leyfði ekki virka þátttöku.
Stjórn Í.R.A. sendir fjölskyldu hans hugheilar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans.
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður Í.R.A.
Aðalfundur Í.R.A. verður haldinn laugardaginn 22. maí n.k.
Með tilvísan til 16. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar Í.R.A. laugardaginn 22. maí 2010. Fundurinn verður haldinn í Yale fundarsal Radisson Blu hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt 18. gr. félagslaga.
Bent er á, að samkvæmt ákvæði í 26. gr. laganna þurfa tillögur að lagabreytingum að berast stjórn félagsins fyrir 15. apríl n.k. Með tillögum að breytingum skal fylgja skrifleg greinargerð þar sem gerð er grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntanlegum áhrifum þeirra
Fyrir hönd stjórnar,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður Í.R.A.
Próf til amatörréttinda
Félagið Íslenskir Radíóamatörar heldur í samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun próf til amatörréttinda laugardaginn 10. apríl. Haldið verður bæði próf í rafmagns- og radíótækni svo og viðskiptaháttum- og reglum.
Prófið verður haldið í Flensborgarskóla og hefst kl. 10:00 að morgni. Fyrst verður rafmagns- og radíótæknihlutinn lagður fyrir svo prófið í viðskiptaháttum- og reglum.
Áhugsamir eru beðnir um að láta Hrafnkel TF3HR (he@klaki.net) vita af væntanlegri þátttöku sinni.
Umfjöllun um TF3DX í aprílblaði “CQ Ham Radio Japan”
Í aprílhefti tímaritsins “CQ Ham Radio Japan” 2010 er 4 blaðsíðna umfjöllun um Vilhjálm Þór Kjartansson, TF3DX og virkni hans á 160 metrunum, m.a. um virkni sem TF3DX/M og mynd af QSL korti til JA7FUJ sem Vilhjálmur sendi til staðfestingar sambandi þeirra sem hann hafði úr bílnum. Greinin er að stofni til lík þeirri sem birtist í 1. tbl. CQ TF 2010, en ljósmyndir eru fleiri ásamt mynd af XYL; Guðrúnu, TF3GD.
Þar á eftir fylgir samantekt (eftir Vilhjálm) sem skýrir hversu erfitt er í raun að hafa samband á milli TF og JA á 160 metrunum.
TF2JB
CQ WPX SSB
Um þessa helgi fer fram CQ WPX SSB keppninn. Ekki varð úr að ÍRA tæki þátt í keppninni að þessu sinni. TF3SG þakkar öllum þeim sem sýndu áhuga á að taka þátt í keppninni fyrir hönd ÍRA. Þeim sem vilja koma og jafnvel taka þátt í keppninni frá ÍRA er bennt á að hafa samband við stöðvarstjóra. Sveinn, TF3SNN er stöðvarstjóri.
73
Guðmundur, TF3SG
Morsnámskeið með Axel í kvöld
Minni á morsnámskeið í kvöld klukkan 19.00 með Axel Sölvasyni, TF3AX. Áherslan er á að hlusta og taka á móti morsi og skrifa niður stafi. Námskeiði er hugsað fyrir þá sem eru að byrja að læra mors og fyrir þá sem vilja ná færni í að taka á móti morsi og skrifa niður. Námskeiðið er öllum opið.
73
Guðmundur, TF3SG
CQ TF – Skilafrestur efnis sunnudaginn 28. marz Skip to end of metadata
Skilafrestur efnis í aprílhefti CQ TF er nk. sunnudag, 28. marz. Lesendur blaðsins eru hvattir til að senda greinar, myndir eða ábendingar um áhugavert efni til ritstjóra.
73 – Kristinn Andersen, TF3KX – ritstjóri CQ TF
Austurgötu 42, 220 Hafnarfjörður
E-mail: tf3kx@simnet.is. GSM: 825-8130.
Morsnámskeið í mars og apríl
Í samráði við Axel Sölvason, TF3AX hefur verið ákveðið að framlengja og halda áfram með morsnámskeið. Áherslan verður á að hlusta og skrifa niður stafina og hefst fyrsta kenslu-stundin næstkomandi fimmtudag 25. mars, klukkan 19.00. Námskeiðið er öllum opið og verður sniðið að þeim sem mæta, fullt tillit verður tekið til byrjenda og þeim veitt kennsla og leiðsögn. Þeir byrjendur sem þess óska geta fengið lánaða æfingalykla. Gert er ráð fyrir að kennsla fari fram sunnudagsmorgna.
73
Guðmundur, TF3SG
Þátttaka í CQ WPX SSB um næstu helgi
Í.R.A. mun taka þátt í CQ WPX SSB um næstu helgi frá Í.R.A. Kallmerki Í.R.A. verður TF3W. Keppnin hefst klukkan 00.00 þann 27. mars. Allir félagar eru hvattir til þess að koma og taka þátt í keppninni eða bara fylgjast með. Stefnt er að því að byrja á 80m og færa sig niður á 20m þegar þeir opnast. Það verður sannarlega fjör að taka þátt af fullu krafti með Steppir og kvartbylgju vertikal á 80m. Vinsamlegast sendið Benedikt, TF3CY eða mér póst um fyrirhugaða þátttöku.
73
Guðmundur, TF3SG
Comment frá TF3CY
Ég vill hvetja alla sem mögulega geta tekið þátt, þó ekki nema í klukkutíma að melda sig. Það geta allir tekið þátt og þetta er frábært tækifæri að prófa þáttöku í svona keppni.
SteppIR loftnetið komið upp á ný og virkar vel.
Myndin er frá vinnu við SteppIR loftnet félagsins 1. nóvember s.l. Ljósm. TF2JB.
Laugardaginn 20. mars 2010 kl. 10 árdegis var mættur hópur félagsmanna í félagsaðstöðuna við Skeljanes. Verkefni dagsins var að koma upp á ný SteppIR Yagi loftneti félagsins eftir viðgerð, en eins og menn muna brotnuðu festingar loftnetsins og það féll til jarðar þann 20. janúar s.l. Þessir voru mættir: Ársæll TF3AO, Bjarni TF3BG, Óskar TF3DC, Benedikt TF3CY, Erling TF3EE, Halldór TF3GC, Guðlaugur TF8GX, Haraldur TF3HP, Guðmundur Ingi TF3IG, Jón Þóroddur TF3JA, Jónas TF2JB, Jón Gunnar TF3PPN, Guðmundur TF3SG og Sveinn Bragi TF3SNN. Vinnan við samsetningu loftnetsins og uppsetningu gekk að óskum (en alltaf eru náttúrlega einhver smáatriði sem tefja…). Það flýtti þó verulega fyrir að Gulli, TF8GX, fékk lánaðan lyftubíl. Loftnetið var komið upp, tengt og tilbúið til notkunar klukkan 12:50. Bestu þakkir til allra sem lögðu hönd á plóginn.
Frá vinstri: TF3CY, TF3SNN og TF3PPN.
Frá vinstri: TF3GC, TF3DC, TF3PPN og TF8GX auk TF3AO.
Frá vinstri: TF3DC, TF3GB, TF3GC, TF3CY, TF3PPN, TF3AO og TF3SNN.
loftnetið á leið á sinn stað upp á turninum.
TF3PPN og TF8GX veifa til marks um að allt sé í góðu gengi.
Tengingarvinnan tók nokkurn tíma.
Loftnetið klárt, verkefninu lokið og karfan á leið niður. Þá var klukkan 12:50.
TF2JB
SteppIR loftnetið verður sett upp á laugardag…
Fyrstu SteppIR elementin til lagfæringar. Elementið lengst til vinstri er mest skaddað af þessum. Ljósmynd: TF3SNN.
Það staðfestist hér með að farið verður í uppsetningu á SteppIR Yagi-loftneti félagsins laugardaginn, 20. mars, kl. 10 árdegis. Veðurspáin virðist vera nokkuð góð – við gætum átt von á skúrum – en á móti kemur verkið verður léttara en á horfðist vegna þess að við munum fá körfubíl á staðinn.
Sveinn Bragi Sveinsson, TF3SNN, hefur nú lokið við viðgerð loftnetsins og hann verður klár með nýjar festingar og það sem til þarf. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að hjálpa til eru velkomnir. Heitt verður á könnunni og eins og áður hefur komið fram verða ný vínarbrauð frá Geirabakaríi í Borgarnesi á borðum.
TF2JB
Vefhlustun á 3,637MHz
Af tilefni ferðar 4×4 klúbbsins þvert yfir hálendi Íslands hef ég sett upp vefhlustun á tíðninni 3,637MHz. Viðtækið er statt í Grímsnesinu og sendir móttekna hljóðið yfir 3G nettengingu út á Internetið.
Sjá nánar á síðunni Vefradíó
73 de TF3HRafnkell