Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 14. október kl. 20-22. Sérstakur gestur verður Daggeir Pálsson, TF7DHP félagsmaður okkar á Akureyri.
Fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Kaffiveitingar í fundarsal og nýjustu tímaritin liggja frammi. QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólf félagsins og flokka nýjustu kortasendingarnar.
Nýtt radíódót hefur borist í hús og verður í boði til félagsmana frá og með 14. október (sjá meðfylgjandi ljósmyndir).
Vegna Covid-19 er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
Á góðri stundu í Brasserie Aski í Reykjavík. Myndin var tekin þegar Daggeir kom í snögga heimsókn til borgarinnar og þurfti að fljúga norður sama dag. Að þessu sinni dvelur hann lengur og heimsækir okkur í Skeljanes í kvöld, 14. október. Frá vinstri: Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Jónas Bjarnason TF3JB og Daggeir Pálsson TF7DHP. Sigurður Harðarson TF3WS kom með mikið af góðu radíódóti í vikunni sem verður í boði til félagsmanna frá og með 14. október.Georg Kulp TF3GZ færði félaginu þennan 90 cm gervihnattadisk í síðustu viku. Það er Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB sem virðir hann fyrir sér í Skeljanesi. Diskurinn er t.d. tilvalinn til uppsetningar fyrir QO-100 gervitunglið. “Original” búnaður fylgir og Georg sagði að veggfesting sé til staðar ef áhugi er fyrir hendi. Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-10-14 12:31:382021-10-14 12:40:58SKELJANES Í KVÖLD 14. OKTÓBER
0replies
Leave a Reply
Want to join the discussion? Feel free to contribute!
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!