Vetrardagskráin heldur áfram. Á fimmtudag, 24. nóvember er tvennt í boði í Skeljanesi.
Kl. 17: Námskeiðið „Fyrstu skrefin“. Óskar Sverrisson, TF3DC leiðbeinir. Áhugasamir skrái sig tímanlega hjá Óskari í síma 862-3151.
Kl. 20:30: Erindið „Skipulag alþjóðasamtaka radíóamatöra“. Kristján Benediktsson, TF3KB flytur.
QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og raða kortum. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
Hans Konrad Kristjánsson TF3FG sótti námskeið hjá Óskari Sverrissyni TF3DC í Skeljanesi 10. nóvember s.l. Konni var ánægður með námskeiðið og sagði að það sé mjög nytsamlegt fyrir mann eins og hann að fá innsýn í fjarskiptin á böndunum eins og þau fara fram í dag, en hann sagðist t.d. lítið hafa fylgst með innleiðingu á tölvum í áhugamálið frá 1986. Og nú, þegar hann væri tilbúinn til að fara í loftið á ný hafi m.a. verið áhugavert að kynnast stafrænum tegundum útgeislunar, s.s. FT8, auk þess sem rafrænar fjarskiptadagbækur séu nauðsyn. Ljósmynd: TF3JB.Kristján Benediktsson TF3KB . Myndin var tekin í eitt af mörgum skiptum sem hann hefur flutt erindi um alþjóðamál radíóamatöra í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JON.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-11-22 10:09:512022-11-22 10:21:15SKELJANES Á FIMMTUDAG
0replies
Leave a Reply
Want to join the discussion? Feel free to contribute!
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!