SKELJANES LAUGARDAG 26. OKTÓBER
Við endurtökum „opinn laugardag“ á morgun, 26. október kl. 10-14 – sérstaklega fyrir þá félagsmenn sem ekki gátu ekki mætt í Skeljanes s.l. laugardag – en að sjálfsögðu eru allir velkomnir!
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætir í Skeljanes og kynnir búnað, tækni og tól til fjarskiptanna og aðstoðar félagsmenn við að fara í loftið gegnum Es’Hail-2/P4A / Oscar 100 gervitunglið á tali, morsi og stafrænum tegundum útgeislunar.
Menn voru sammála um s.l. laugardag, að þessi fjarskipti væru sérstök upplifun; sterk merki, engar truflanir og góður DX.
Félagsmenn eru hvattir til að koma við í Skeljanesi og fara í loftið. Kaffi verður á könnunni.
Stjórn ÍRA.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!