SKEMMTILEGT KVÖLD Í SKELJANESI
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/09/baldi.jpg)
Ánægjulegt félagskvöld. Góð mæting. Fjörugar umræður og menn hressir.
Félagsmaður okkar, Baldvin Þórarinsson, TF3-Ø33 færði í hús stóra rjómatertu frá Reyni bakara í Kópavogi sem stundum er kennd við Hressingarskálann í Reykjavík. Sagðist hann vilja deila henni með félögunum því hann ætti 71 árs afmæli þennan fimmtudag. Menn létu ekki segja sér það tvisvar, og var sungið fyrir Baldvin: „Hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Baldi…“. Að því búnu var tertunni skipt á milli manna og líkaði hún vel.
Annars voru fjörugar umræður yfir kaffi og tertu um áhugamálið á báðum hæðum. Alls mættu 17 félagar + 1 gestur þetta ágæta fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Hamingjuóskir til afmælisbarnsins frá stjórn ÍRA.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/09/23-sep-ffjorda-1030x469.jpg)
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/09/23-sep-thridja-1030x579.jpg)
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!