Hér er hægt að fylla út eyðublað og óska eftir skráningu á námskeið hjá ÍRA.

Næsta námskeið ÍRA til amatörprófs verður haldið á tímabilinu 16. september til 29. október – verði lágmarksþátttaka.

Námskeiðið verður í boði í Háskólanum í Reykjavík. Í framhaldi er stefnt að prófi Fjarskiptastofu til amatörleyfis laugardag 2. nóvember.

Kennsla fer fram í HR þrjú kvöld í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 17:30-21:30. Skipulag verður birt þegar nær dregur.

(Hægt er að greiða námskeiðsgjald frá og með 2. september n.k. Gjaldið er 24.500 krónur).

Skráning á námskeið