Starfshópur um neyðarfjarskipti á fimmtudag
Næsta erindi á vetrardagskrá Í.R.A. verður haldið fimmtudaginn 2. maí kl. 20:30 í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Starfshópur félagsins um neyðarfjarskipti mun gefa félagsmönnum stöðuskýrslu um verkefnið, en hópurinn skilar endanlegum tillögum til stjórnar í síðasta lagi þann 13. maí n.k.
Starfshópinn skipa: Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA, neyðarfjarskiptastjóri Í.R.A. og formaður; Sigurður Óskar Óskarsson, TF2WIN, fulltrúi stjórnar; Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI; Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY; Jón Svavarsson, TF3JON; og Jónas Friðgeirsson, TF3JF.Starfshópurinn var skipaður af stjórn Í.R.A. á stjórnarfundi þann 17. september s.l.
Þetta verður jafnframt síðasti viðburðurinn á vetrardagskrá 2013. Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta stundvíslega.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!