TF-Útileikar 2017
Fámennt en góðmennt var í Skeljanesi í gærkvöldi þar sem TF3EK fór yfir framkvæmd komandi Útileika og sýndi á grasflötinni við Skeljanes hve auðvelt er að setja upp loftnet í fljótheitum og fara í loftið á 80 og 20 metrum. Allt sem þarf er stöð með aflgjafa, 2o metra langur vír, rápstöng eða eitthvað til að binda endann á loftnetinu í og lyfta því yfir jörð og bíll eða radíóamatör sem mótvægi.

TF3EK og TF3DT skeggræða um upphitun alheims og loftnet.

Þegar líða tók á kvöldið kom einn nýorðinn radíóamatör, TF3PW Jón Björnsson, í heimsókn og sagðist stefna að koma í loftið um hegina frá Skorradal.
Inni í húsi sátu TF3MH og TF3JA og ræddu um félagsheimilið og framtíð þess.
Radíómatörar eru hvattir til að taka þátt í Útileikunum um helgina þrátt fyrir að verulegar líkur séu á slæmum HF skilyrðum. Þessa stundina er k stuðullinn 4.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!