TF3EK OG TF8KY Í SKELJANESI 30. MAÍ
![](https://www.ira.is/wp-content/uploads/2024/05/KY-og-EK.png)
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 30. maí fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00-22:00.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY og Einar Kjartansson, TF3EK mæta með erindin: „VHF/UHF leikar ÍRA 2024“ og „TF útileikar ÍRA 2024“. Flutningur erinda hefst kl. 20:30 stundvíslega.
Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólf ÍRA, sækja kort og raða í hólfin. Nýjustu tímaritin liggja frammi. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
![](https://www.ira.is/wp-content/uploads/2024/05/skeljanes-mynd-1-1030x476-1-3.jpg)
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!