,

TF3W Í IARU HF KEPPNINNI 2023

Skeljanesi 9. júlí. Stöðin QRV á 15 metrum; tæplega 1,5 klst. eftir af keppninni.

Félagsstöðin TF3W var QRV á morsi í IARU HF Championship keppninni helgina 8.-9. júlí. Sigurður R. Jakobsson, TF3CW virkjaði stöðina frá félagsaðstöðunni í Skeljanesi.

Notuð voru þrjú bönd: 20, 15 og 10 metrar og var þetta frumraun á nýju Yagi loftneti félagsins fyrir 18-28 MHz, sem sett var upp í síðustu viku og kom glimrandi vel út.

Heildarfjöldi sambanda var tæplega 1800; nettó fjöldi: 1772. Skipting á milli banda: 20 m. 1100, 15 m. 667 og 10 m. 5 QSO. Fjöldi ITU svæða: 60 og fjöldi HQ stöðva: 35. Viðvera: 13,32 klst. Niðurstaða: 645.430 heildarpunktar.

Sérstakar þakkir til Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW fyrir að virkja stöðina.

Stjórn ÍRA.

Klukkan orðin 12:03 og keppninni lokið. Siggi sagðist ánægður með nýja Yagi loftnetið sem hafi komið mjög vel út.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

two × 5 =