TF3XUU í stuttri heimsókn á Íslandi
Martin Berkofsky, TF3XUU (KC3RE) píanóleikari var hér á ferð nýlega og spilaði m.a. á tónleikum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands í Hörpu þann 26. maí. Martin gaf sér tíma til að hitta nokkra íslenska leyfishafa skömmu áður en hann hélt af landi brott þann 27. maí s.l., sbr. ljósmynd að ofan.
Martin lauk prófi til amatörleyfis hér á landi árið 1984 og starfaði m.a. um tíma sem radíóvitastjóri Í.R.A. á Garðskaga þar sem hann gætti radíóvitans TF8VHF sem varð QRV 19. janúar 1986, QRG 144.939 MHz. Martin er mikill morsmaður og var virkur hér á landi um árabil, bæði sem TF3XUU og TF8XUU.
Vlhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, skrifaði ágæta grein um Martin í febrúarblaði CQ TF 2004. Sjá meðfylgjandi: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2016/10/cqtf_22arg_2004_01tbl.pdf
Sjá einnig skemmtilega umfjöllun um Martin á blogsíðu Ágústar H. Bjarnasonar, TF3OM. Vefslóð: http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/842019/
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!