TÍÐNISVIÐ RADÍÓAMATÖRA
Tíðniheimildir radíóamatöra eru settar fram í gildandi reglugerð á hverjum tíma. Núgildandi reglugerð er nr. 348/2004 ásamt reglugerð um breytingu á henni nr. 1306/2017. Í síðari reglugerðinni er gerð breyting á 8. gr. fyrrnefndu reglugerðarinnar, auk uppfærslu á tíðnitöflu. Þess má geta, að tíðniheimildir radíóamatöra eru (að mestu) samræmdar um allan heim.
Reglugerð nr. 348/2004 um starfsemi radíóáhugamanna; vefslóð: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/samgonguraduneyti/nr/3732
Reglugerð nr. 1306/2017; um breytingu á reglugerð nr. 348/2004; vefslóð: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/1306-2017
Í viðauka með reglugerð nr. 1306/2017 má sjá yfirlit yfir tíðnisvið, sendiafl, bandbreidd og hvort heimildir eru veittar samkvæmt ríkjandi eða víkjandi aðgangi (sjá neðar á síðunni). Jafnframt er sýnd skipting samkvæmt leyfisflokkum. Auk tíðnisviða sem eru upptalin í reglugerðinni, hafa íslenskir leyfishafar aðgang að eftirtöldum tíðnisviðum samkvæmt sérheimildum frá Póst- og fjarskiptastofnun.
SÉRHEIMILDIR
(1) Sérheimild á 160 metra bandi (1850-2000 kHz). Samkvæmt reglugerð er aflheimild 10W á víkjandi aðgangi. Heimild fékkst fyrst 6. janúar 2011 fyrir notkun á fullu afli (1kW) fyrir G-leyfishafa í 1850-2000 kHz í eftirfarandi tilgreindum 10 alþjóðlegum keppnum. Heimildin er uppfærð árlega:
- EUCW 160 metra keppnin – Haldin í janúar/febrúar; á morsi.
- CQ WW 160 metra keppnin – Haldin í janúar á SSB.
- CQ WW 160 metra keppnin – Haldin í febrúar á morsi.
- CQ WW WPX keppnin – Haldin í mars á SSB.
- CQ WW WPX keppnin – Haldin í maí á morsi.
- IARU HF World Championship keppnin – Haldin í júlí, bæði á SSB og morsi.
- EU HF Championship keppnin – Haldin í ágúst, bæði á SSB og morsi.
- CQ WW DX keppnin – Haldin í október á SSB.
- CQ WW DX keppnin – Haldin í nóvember á morsi.
- ARRL 160 metra keppnin – Haldin í nóvember/desember; á morsi.
(2) Sérheimild á 4 metra bandi (70.000-70.200 MHz). Heimildin fékkst fyrst 19. febrúar 2010 og hefur verið framlengd síðan og síðast til tveggja ára. Núgildandi heimild rennur því út 31. desember 2024. Á 70 MHz gildir 16 kHz hámarks bandbreidd og hámarks útgeislað afl 100W.
Þeir leyfishafar sem óska að nýta ofangreindar sérheimildir þurfa að sækja um það sérstaklega til Fjarskiptastofu. Hafi verið sótt um heimild einu sinni þarf að sækja um framlengingu (helst áður en hún rennur út) óski leyfishafi að nota tíðnisviðið áfram. Sækja má um heimild til hrh@fjarskiptastofa.is
Ákjósanlegt er að leyfishafar sem fyrirhuga að taka þátt í alþjóðlegum keppnum í tíðnisviðinu 1850-2000 kHz tilkynni fyrirfram til PFS um þátttöku í hverri keppni þar sem QTH er gefið upp.
(3) Sérheimild á 6 metra bandi (50.000-50.500 MHz). Heimildin hefur verið framlengd sumarið 2024. Hámarks bandbreidd sendinga er 18 kHz. Heimildin er með þeim fyrirvara að komi til truflana á annarri fjarskiptastarfsemi af völdum sendinganna þá skal þeim hætt. Æskilegt er að sendingar fari fram utan byggðar. G-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 1kW og N-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 100W. Endurnýja þarf umsókn fyrir árið 2024. Tímabil: maí-september. Sækja má um heimild til hrh@fjarskiptastofa.is
(Uppfært 17.4.2024/TF3JB).
Tíðnisvið | Forgangsflokkur | N-Leyfi | G-Leyfi | Bandbreidd |
---|---|---|---|---|
135,7-137,8 kHz | 2 | 100 | 1 kHz | |
472-479 kHz | 2 | 5 | 5 | 1 kHz |
1810-1850 kHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
1900-2.000 kHz | 2 | 10 | 10 | 6 kHz |
3500-3800 kHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
5351,5-5366,5 kHz | 2 | 15 | 15 | 3 kHz |
7000-7100 kHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
7100-7200 kHz | 2 | 100 | 100 | 6 kHz |
10.100-10.150 MHz | 2 | 100 | 1000 | 1 kHz |
14.000-14.350 MHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
18.068-18.168 MHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
21.000-21.450 MHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
24.890-24.990 MHz | 1 | 100 | 1000 | 6 kHz |
28.000-29.700 MHz | 1 | 100 | 1000 | 18 kHz |
50-52 MHz | 2 | 50 | 100 | 18 kHz |
144-146 MHz | 1 | 50 | 500 | 18 kHz |
430-440 MHz | 1 | 50 | 500 | 30 kHz |
1.240-1.300 MHz | 2 | 50 | 100 | 20 MHz |
2.300-2.450 MHz | 2 | 50 | 100 | 20 MHz |
5.650-5.850 MHz | 2 | 50 | 100 | 20 MHz |
10-10,5 GHz | 2 | 50 | 100 | 50 MHz |
24-24,05 GHz | 1 | 50 | 100 | 50 MHz |
24,05-25 GHz | 2 | 50 | 100 | 50 MHz |
47-47,2 GHz | 1 | 50 | 100 | 50 MHz |
76-77,5 GHz | 2 | 50 | 100 | 100 MHz |
77,5-78 GHz | 1 | 50 | 100 | 100 MHz |
78-81 GHz | 2 | 50 | 100 | 100 MHz |
122,25-123 GHz | 2 | 50 | 100 | 40 MHz |
134-136 GHz | 1 | 50 | 100 | 100 MHz |
136-141 GHz | 2 | 50 | 100 | 100 MHz |
241-248 GHz | 2 | 50 | 100 | 100 MHz |
248-250 GHz | 1 | 50 | 100 | 100 MHz |