Unnið við loftnet í Skeljanesi
Í gær laugardag mætti hópur vaskra amatöra í Skeljanesið og tókst að koma SteppIR greiðunni í samband á ný. Ekki er þó hægt með góðu móti að snúa loftnetinu í bili því í ljós kom að stýriboxið fyrir rótorinn var bilað eins og sést á myndum hér neðar. En áfram verður unnið að viðgerð og tók TF3Y boxið að sér. SteppIR prjónninn var skoðaður og eitt af næstu skrefum verður að koma honum í gagnið sem ætti að vera fljótgert eftir að nýja stýriboxið nær til landsins.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/2014-10-18-09.34.14-1030x582.jpg)
TF3DC, TF3Y, TF8HP, TF3GB, TF3VS. TF3JA tók myndina.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/TF3GB-181014-1030x773.png)
TF3Y tók þessa fínu mynd af Bjarna, TF3GB.
TF3SG mætti líka til vinnu en náðist ekki inná myndina.
Við aldursgreiningu kom í ljós að meðalaldur hópsins var nálægt 64 árum en þeir elstu nýttust til að stjórna aðgerðinni og hita kaffi, prýðis kaffi reyndar og 3DC brá sér í bakaríið og keypti ekta sixties bakkelsi þar á meðal dýrindis jólaköku að beiðni 3GB sem þó varla hafði tíma til að leggja frá sér verkfærin og koma niður úr stiganum til að njóta veitinganna.
![](http://c.ira.is/download/thumbnails/15008050/2014-10-18%2011.35.06.jpg?version=1&modificationDate=1413702550000&api=v2)
Brunnar tengingar í rótorstýriboxinu.
![](http://c.ira.is/download/thumbnails/15008050/ASpid3Y.png?version=1&modificationDate=1413875384000&api=v2)
Plata úr óskemmdu boxi, mynd TF3Y
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2014/10/2014-10-18-15.17.14-1030x582.jpg)
SteppIR greiðan komin upp.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2014/10/2014-10-18-15.14.53-1030x582.jpg)
Neðsti hluti SteppIR prjónsins
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!