Vel heppnaður flóamarkaður í Skeljanesi
Flóamarkaður Í.R.A. að hausti fór fram sunnudaginn 16. október 2011. Alls mættu yfir 35 manns á viðburðinn sem hófst stundvíslega kl. 13 og stóð yfir fram til kl. 16. Framboð var ágætt, m.a. notaðar UHF stöðvar, mikið af smíðaefni, íhlutir, kassar til smíða, ýmis mælitæki og margs konar aukahlutir, m.a. frá MFJ og Yaesu, auk loftneta fyrir HF, VHF, UHF og SHF böndin frá Mosley, New-Tronics, M2, WiMo og J-Beam. Þá var ágætt framboð af LCD tölvuskjám og sérhæfðum tölvuhlutum. Óhætt er að fullyrða að þeir sem gerðu viðskipti á flóamarkaðnum hafi undantekningarlaust gert góð kaup.
Hápunktur viðburðarins var uppboð á dýrari hlutum og búnaði sem haldið var stundvíslega kl. 14 og annaðist Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, það af einskærri snilld. Alls voru 14 “númer” á uppboðinu og sala með ágætum, en hvað mest var boðið í New-Tronics Hustler 6-BTV stangarloftnet fyrir HF-sviðið og valinkunnar gullhúðaðar “pöllur” (spaðalykil) frá Speed-Paddles. Stórt Mosley TA-53-M 4 staka Yagi loftnet fyrir HF-böndin (sem nýtt) seldist þó ekki, þrátt fyrir sanngjarnt ásett verð og sumir uppboðshlutir seldust jafnvel eftir uppboðið, þegar þeir sem komu seint höfðu náð að kynna sér nánar hlutina, sbr. t.d. nýjan Comtex PS30SW-I 13.8VDC/30A spennugjafa (sem færri fengu en vildu). Stefnt er að því að halda flóamarkað að vori í apríl n.k., en félagið á von á umtalsverðu magni af gefins búnaði, tækjum og íhlutum upp úr áramótunum.
Stjórn Í.R.A. þakkar félagsmönnum fyrir góða þátttöku og Jóni Svavarssyni TF3LMN fyrir myndatökuna.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!