,

Viðtæki yfir netið að Galtastöðum.

KiwiSDR viðtækið yfir netið með staðsetningu á Galtastöðum í Flóa, var tekið niður í lok júnímánaðar. Georg Kulp, TF3GZ leitar að nýju QTH fyrir viðtækið.

Þakkir til Georgs fyrir að reka KiwiSDR viðtækin yfir netið, en hann er jafnframt eigandi og rekstraraðili KiwiSDR viðtækisins á Raufarhöfn og annars KiwiSDR viðtækjanna á Bjargtöngum.

Það er vaskur hópur félagsmanna sem standa að baki uppsetningu og annast rekstur og viðhald

viðtækja yfir netið. Þeir leggja metnað í að halda þeim gangandi – svo ekki sé talað um tíma

og fjármuni. Þetta eru Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Georg Kulp TF3GZ, Árni Helgason TF4AH  og Karl Georg Karlsson TF3CZ, auk annarra sem hafa aðstoðað og komið að uppsetningu og viðhaldi.

ÍRA metur þetta framlag mikils og þakkar þessum félagsmönnum fyrir dugnað og elju við að

sinna verkefninu sem er mikilvægt fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir í þessum tíðnisviðum,

auk hlustara og allra sem áhuga hafa á útbreiðslu radíóbylgna

Stjórn ÍRA.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

six − 1 =