VÍSBENDING UM VIRKNI
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 6.-12. apríl. TF kallmerki fengu yfir 70 skráningar, þar voru 17 einstök kallmerki. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og/eða FT4), en einnig á morsi (CW), fjarritun (RTTY) og tali (SSB). Bönd: 10, 12, 15, 17, 20, 30, 40, 60 og 80 metrar, auk sambanda um gervitunglið QO-100.
Kallmerki fær skráningu þegar leyfishafi [eða hlustari] hefur haft samband við [eða heyrt í] TF kallmerki. Svokallað „self spotting“ er ekki tekið með. Upplýsingarnar eru fengnar á http://new.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar.
Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
TF1EIN FT8 á 60, 17 og 15 metrum.
TF2CT FT8 á 30 metrum.
TF2MSN FT4 og FT8 á 15 og 12 metrum.
TF3AO RTTY á 40 og 20 metrum.
TF3EO CW á 20 metrum.
TF3IRA CW á 10 metrum.
TF3JB CW á 30, 17, 15 og 10 metrum.
TF3JG SSB á 17 metrum.
TF3PKN FT8 á 12 metrum.
TF3PPN RTTY á 15 metrum.
TF3VE FT4 á 15 metrum.
TF3VG FT8 á 80, 60 og 10 metrum.
TF3XO SSB á 20m.
TF5B FT8 á 17, 15 og 10 metrum.
TF8KY FT4 og FT8 á 15 metrum.
TF/KJ7KGJ FT8 á 20 metrum.
TF/MØNKC/P SSB um QO-100 gervitunglið.
.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!