VÍSBENDING UM VIRKNI
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 16.-22. september 2021. Samskonar samantektir voru gerðar í janúar, febrúar, apríl, maí, júní og ágúst á þessu ári.
Alls fengu 13 íslenskir radíóamatörar skráningu að þessu sinni. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og FT4), en einnig á morsi (CW), tali (SSB) og RTTY á 15, 17, 20, 30, 40, 60 og 80 metrum.
Upplýsingarnar eru fengnar á http://www.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar. Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund/-ir útgeislunar og band/bönd:
TF1EIN FT8 á 20 metrum.
TF1OL/P FT4, FT8 á 15 og 20 metrum.
TF2CT FT8 á 20 og 60 metrum.
TF2MSN FT4, FT8, SSB, RTTY á 17 og 20 metrum.
TF3DC FT4 á 20 metrum.
TF3EO CW á 20, 30 og 40 metrum.
TF3MH FT8 á 15 og 17 metrum.
TF3OM CW á 80 metrum.
TF3T SSB á 20 metrum.
TF3VG FT8 á 30 metrum.
TF3VS FT8 á 15 og 30 metrum.
TF3W CW á 20 metrum.
TF5B FT8 á 17, 30 og 40 metrum.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!